Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 15
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. 15 Argentína: íbúar Buenos Aires göptu af undr- un þegar þeir fyrst heyrðu það: Alfonsin forseti kom í sjónvarpið og sagði að Buenos Aires, oft kölluð Paris Suður-Ameríku, væri ekki lengur höíúðborg Argentínu, heldur litla, syfjulega bæjarholan Viedma sem er nærri þúsund km fyrir sunnan Buenos Aires við ósa fljótsins Rio Negro (Svartá). Alfonsin sagði í sjónvarpsræðu að Viedma yrði höfuðborg vegna þess að það þyrfti að efla lýðræði í landinu og það þyrfti að efla ímynd- unarafl og andlegt þrek Argentínu- manna. Alfonsín hafði hugsað sér að til- kynna útnefningu nýju höfuðborgar- innar (Bonn Argentínu, eins og einhver nefndi hana) á 207 ára af- mæli Viedma. En einhver embættis- maður lak í hlöðin og fréttirnar fóru að berast - Alfonsín varð að koma á skjáinn og skýra frá fyrirætlun sinni. Nú tala menn í Argentínu almennt um Viedma - hlið mót framtíðinni, endurheimt Patagóníu, hinni víð- áttumiklu og dreifðu byggð Argent- ínu þar sem leynast svo margir fjársjóðir: úran, olía, málmar og ak- urjörð. í þennan hluta landsins fengust áður engir til að flytja nema Skotar, Englendingar, Walesmenn og Þjóðverjar. Verkamennirnir yfir- leitt frá Chile, Kóreu og öðrum Asíulöndum. Nú ætla Argentínu- menn sjál&r að dragnast þangað út og byggja upp landsvæðið - byggja það upp innan frá. „Við skulum sýna heiminum að við erum einhvers megnugir," segja menn núna. En hið skulduga land verður auðvitað að fá hjálp að utan, ætli það að lyfta grettistaki og skjóta stoðum undir erfiðan efnahag sinn. Og hin utanaðkomandi hjálp merkir aðeins eitt: frekari erlend lán. Al- fonsín ætlar að fá tvo milljarða dollara hjá Alþjóðabankanum. „Það er bara smáræði, ætlað í nauðsyn- lega fjárfestingu sem mun borga sig margsinnis,“ segja þeir sem trúa á Patagóníuævintýri Alfonsíns. Buenos Aires er orðin að ígerð á þjóðarlíkamanum. Vöxtur hennar er óstjómlegur og óviðráðanlegur. Og borgin hefur náð sér í sjálfvirkt einkaleyfi á allan ijárhagslegan vöxt - til risaborgarinnar fer allt fé. Því verður að breyta. f borginni búa 35% af íbúunum. Þeir nota 39% af orku landsins. Þar eru 45% allra iðnaðar- og verslunarmanna landsins og 48% iðnverkamanna. Stoltir og hræddir í Viedma eru menn stoltir og hræddir. Menn sjá fyrir sér fjöl- menna þjóðflutninga frá Buenos Aires til smáborgarinnar fyrir sunn- an - herfylki atvinnuleysingja og kerfiskalla, möppudýra með skjala- bunka sína og stirðnuð vinnubrögð. f Viedma eru tvö kvikmyndahús núna, eitt leikhús, þrjú hótel og 15 leigubílar. Og auðvitað er marga far- ið að klæja í lófana. Alfonsín ætlar sér stórhreingem- ingu innan kerfisins. Og flutningur fólks til Viedma og Patagoníu á að gerast smám saman. En strax á næsta ári er ætlunin að forsetinn sjálfur fari tvisvar í viku til Viedma og starfi þar. Alfonsín hefur sagt að í Viedma ætli hann að afhenda eftir- manni sínum völdin árið 1989. Buenos Aires - ekki lengur höfuöborg Argentínu. Ný höfuðborg FRANSKT SUMAR 1986 Innkaupastjórar athugið! Erum að taka upp frábæru frönsku sumarleikföngin frá Úrvalið hefur aldrei verið meira. Hafið samband í síma 91- 37710 eða komið og skoðið úrvalið ÍIH INGVAR HELGASON HF, RBS VONARLANDI V/SOGAVEG, SÍMI 37710. FÓSTRA ÓSKAST til starfa við leikskóla Ölafsvíkur. Fóstrumenntun áskil- in. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 93-6153. Bæjarstjórinn Ólafsvík. BORGARNES RITARI ÓSKAST Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Vesturlandi óskar að ráða ritara í hálft starf. Vélritunarkunnátta og góð ís- lenskukunnátta áskilin. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir berist fyrir 15. maí. Frekari upplýs- ingar veitir Eyjólfur í síma 93-7780. Svæðisstjórn Vesturlands, Gunnlaugsgötu 6a, Borgarnesi. LOPI - LOPI Þriggja þráða plötulopi, 1,0 sauðalitir, að auki rauðir, bláir og grænir litir. Opiðfrá kl. 8-5 mánudaga-föstu- daga og laugardaga kl. 10-12. Sendum í póstkröfu um landið. ULLARVINNSLAN LOPI SF., Súðarvogi 4, 104 Reykjavík. Sími 30581. æ BÍLASALANBUK Skmifunni 8 Simi88-84-77. M. Benz 280 SE árg. 1978, vínrauður, sjálfsk., vokva- stýri, aflbremsur, rafdrifnar rúður, centrallæsingar, sóllúga, 6 cyl., útvarp + kassetta, vetrardekk. Verð kr. 680.000. Toyota Hilux X-cab árg. 1984, dísil, rauður, spil o.m. fl., 5 gira, bíll í sérflokki, skipti á ódvrari. Ford Country Sedan árg. 1967, ekinn 70.000 milur, Ijós- blár, 8 cyl., 2 eigendur frá upphafi, útvarp + kassettu- tæki. Endurbyggður fyrir tveimur árum. Sjón er sögu ríkari. Skipti á ódýrari. BÍLASALAN BUK Skeifunni 8 Sími 68-64-77.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.