Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Síða 16
16 DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Það voru alíslenskir aðalsmenn sem stigu upp á svið Tónabæjar og tóku við sigurlaunum úr hendi Þor- geirs rásarstjóra. „Sigurvegarar í MT 1986 eru: GREIFARNIR“ - hafði kynnirinn tilkynnt ekki löngu áður. Flestir viðstaddra og vitaskuld Greifarnir sjálfir réðu sér ekki fyrir kæti. Sigurinn hafði komið fimm- menningunum gjörsamlega í opna skjöldu. „Við höfðum auðvitað gert okkur vonir. En við reiknuðum aldr- ei með sigri,“ sögðu þeir eins og sigurvegurum er tamt á stundum sem þessari. Þrátt fyrir hæverskar yfirlýsingar bar flestum saman um að Greifarnir hefðu verið vel að sigrinum komnir. Hefst nú sagan um drauminn sem varð að veruleika. Falskt píanó og stríðsáratrommur I dag eru Greifarnir fimm: Gunnar Hrafn Gunnarsson, Jón Ingi Valdi- marsson, Sveinbjörn Grétarsson, Kristján Viðar Rafnsson og Felix Bergsson heita þeir fullum nöfnum. Þeir hafa ekki alltaf verið svona margir. Það er einnig stutt síðan að þeir tóku sér aðalstign. Ævintýrið byrjaði samt ekki í öskustó heldur i rúmgóðri stofu í Kópavoginum. Þar sátu Kristján, Jón Ingi og Sveinbjörn fyrir tæpum Greifarnlr flytja Sólskinssönginn í sigurvimunni. DV-mynd G.Bender. Draumur aðalsmannanna rættist þremur árum og létu sig dreyma um frama í tónlistarheiminum. „Við sáum fljótlega að það þýddi ekkert að sitja bara og byggja skýja- borgir. Við ákváðum að gera eitt- hvað í málinu. Fyrstu hljóðfærin voru ekki beint beysin. Við notuðum falskt píanó og tengdum gítarinn og bassann í gegn- um ggmalt lampaútvarp. Síðar áskotnaðist okkur trommusett sem fannst á bæ einum í Kelduhverfi. Það var nothæft þó ekki væri það beinlín- is nýtt. Bassatromman var til dæmis fyllt með dagblöðum frá 1940 og guð veit hvað.“ Um svipað leyti og stríðsáratrommurnar komu í leitirn- ar bættist trommuleikari í hópinn. „Upp frá því kölluðum við fjórmenn- ingamir okkur Special Treatment." Tvær keppnir til Þessi nýja sveit kom fyrst fram á útihátíðinni í Atlavík 1984. Þeir voru þátttakendur í hinni árlegu hljóm- sveitarkeppni. „Okkur tókst bæri- lega þar þó ekki kæmumst við í úrslit,“ rifja þeir upp. „Það var mjög erfitt að spila í fyrsta skipti fyrir 6000 manns.“ Frá útihátíðinni lá leiðin í Fjöl- brautaskólann við Ármúla. „Við vorum eins konar skólahljómsveit Ármúlaskóla þennan vetur samhliða náminu. Eftir áramótin tókum við þátt í Músíktilraunum og lentum í öðru sæti á eftir Gypsy. Um sumarið héldum við svo tvenna tónleika á Húsavík. Auk þess spiluð- um við á bindindismótinu í Galtalæk og tókum aftur þátt í hljómsveita- keppninni í Atlavík. Að þessu sinni lentum við í þriðja sæti.“ Felix fannst í söngleik „Þegar hér vr komið vorum við ennþá á Special Treatment línunni. Textamir voru enskir, rétt eins og nafnið. Við komum aftur í bæinn í haust en fengum ekkert æfingahús- næði. Um áramótin fengum við svo loksins inni í Víkingsheimilinu." Og nú fóru hjólin að snúast. „í febr- úar skelltum við okkur í stúdíó. í ffamhaldi af því ákváðum við að nota frekar íslenska texta en enska, ef ske kynni að það yrði okkur til ffamdráttar. Síðast en ekki síst á- kváðum við að ráða söngvara í sveitina. Okkur var bent á Felix Bergsson og eftir að hafa skoðað myndbönd með honum frá verslunar- skólasöngleikjum höfðum við samband við hann.“ Felix þáði boðið og um leið var nafninu breytt. „Við sáum að það passaði ekki að syngja á íslensku og heita ensku nafni. Greifamir var ein tillaga af mörgum og það nafn sem okkur leist best á.“ Norðanmenn héldu nú aftur í stúd- íó, að þessu sinni undir nýju nafni og með nýjan söngvara. 1 sömu viku tóku piltarnir þátt í undanrásum Músíktilrauna og fóru í sjónvarps- upptöku. Sjö dögum síðar stóðu þeir á sviðinu í Tónabæ sem yfirlýstir sig- urvegarar. Veruleikaborgir Sigurinn er sætur. Skyndilega em Greifunum allir vegir færir. Verkefhi eru næg; tónleikar, böll og utan- bæjarpiltamir hafa þegar skuld- bundið sig til að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni af 200 ára * afmæli borgarinnar. Þeirra skýjaborgir eru að sönnu ekki svo gamlar. Það munar einum hundrað níutíu og sjö árum. En ffaminn er eins raunverulegur og öndvegissúlurnar við borgarmörkin. Draumurinn er oðinn að veruleika. -ÞJV Bless í bili, B U B B I Hvað skyldu komast margir inn á Hótel Borg? Eigi veit ég það svo obboðslega gjörla. Hitt veit ég að varla hefði verið hægt að bæta mörgum við allan þann fjölda sem fyllti salinn á fimmtudagskvöldið. Klisjan „fullt hús“ lýsir ástandinu engan veginn. Tilgangur þessarar samkomu var ekki bara að halda verkalýðsdag- inn hátíðlegan. Það var meira gert í leiðinni. Fólk var komið til að hlýða á og sjá fremstu trúbadora landsins leiða saman hesta sína. Það er ekki á hverjum degi sem slíkt skeður og alls ekki verra að svoleiðis stórviðburð beri upp á hátíðisdag verkalýðsins. Félagam- ir báðir tilheyra jú alþýðunni og hafa oftar en ekki staðið í forsvari fyrir sitt fólk. Meira að segja Gleðibankinn Alltof langt mál yrði að fara að telja upp allt sem skeði þetta kvöld. Stiklum því á stóru. Tveir upprenn- andi tónlistarmenn, Bjarni Tryggvason og Guðjón Guðmunds- son, komu fram ásamt félögunum tveim og fluttu eigið efni. Þeim tókst báðum mjög vel upp og upp- skám kröftugt lófatak gesta. Vert er að gefa þessum piltum gott auga í framtíðinni. Efnisskrá Bubba og Megasar spannaði vítt svið. Lögin vom frá ýmsum tímum, ýmist eftir þá sjálfa eða aðra. Viðstaddir vom ófeimnir við að koma með tillögur: Grísa- lappalísa, Fatlafól, meira að segja var beðið um GLEÐIBANKANN! Og sá gestur var sannarlega bæn- heyrður. Þegar allt var loks um garð geng- ið áttaði maður sig á hvað þetta var í rauninni gleðileg stund. Kveðjustund. Þetta vom síðustu tónleikar Bubba hér að sinni. Alls er óvíst hvenær hann og Megas hittast aftur og taka nokkur lög. En þeir verða á stjái hvor í sínu lagi. Bubbi er heldur ekki alfarinn þó hann snúi sér nú að öðru. Við lifum á þessum kveðjutónleikum þar til við hittumst næst. Bless í bili, Bubbi. -ÞJV Bubbi stigur niður af stólnum og heldur baksviðs. Þetta voru síð- ustu tónleikar hans hér að sinni. DV-mynd G. Bender.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.