Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Síða 18
18 DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. Erlend bóksjá Erlend bóksjá Erlend bóksjá Erlend bóksjá HANDBOQK A GUIDE TO SOUTH AFRICA’S EVERYDAY RACIAL POUCIES ROGER OHOND Aðskilnaðar- stefnan THE APARTHEID HANDBOOK. Höfundur: ROGER OMOND. Penguin Books, 1986. Sá frumskógur laga og reglu- gerða, sem hvíta minnihluta- stjórnin í Suður-Afríku hefur sett á undanförnum áratugum til þess að halda kynþáttunum að- skildum og öllum öðrum en hvítum mönnum í undirgefni, er skýrður í þessari bók suðuraf- rísks blaðamanns, sem nú starfar við The Guardian í Bretlandi. í bókinni eru tekin fyrir öll svið suðurafrísks þjóðfélags og áhrif lagavefs aðskilnaðarstefnunnar skýrð með spurningum og svör- um og dæmum úr raunveruleik- anum. Sú mynd sem við lesturinn fæst af ástandinu er enn óhugn- anlegri vegna þess að hér eru staðreyndirnar einar látnar tala. Fáránleiki kerfisins kemur svo greinilega í ljós í þeim hundruð- um dæma, sem frá er sagt í bókinni, þar sem hatrammlega er deilt um það fyrir dómstólunum hver sé hvítur og hver ekki. Minnir þar margt á andlega ætt- ingja suðurafrískra valdhafa í Þriðja ríkinu. THÍ PEUCAH HISTORYOf G • R • E • E • K LITERATURE Grískar perlur THE PELICAN HISTORY OF GREEK LI1 ERATURE. Höfundur: Peter Levi. Penguin Books, 1985. Prófessorinn og ljóðskáldið Peter Levi fjallar í þessari bók sinni um það besta sem skrifað var á gríska tungu til forna allt frá Hómer til Plútark. Þar spann- ar hann líklega ríflega eitt árþúsund. Eins og Leví tekur sjálfur fram í formála bókarinnar er hér ekki um að ræða tæmandi upptaln- ingu í alfræðistíl heldur sam- fellda frásögn af og yfirlit um verk allra helstu stórmenna þessa blómaskeiðs grískra bókmennta og heimspeki. Hann rekur í stuttu máli inntak verka þeirra höfunda, skálda og heimspekinga sem mestu máli skipta og sýnir fram á hvað sameinar þá og hvað aðgreinir. Jafnframt skýrir hann samhengi verkanna við samtíð höfundanna og sögulegar stað- reyndir. Fyrst og síðast er þessi bók Levi afar læsileg umfjöllun um sum helstu stórvirki heimsbók- menntanna en einnig önnur verk sem gnæfa hátt upp úr meðal- mennsku aldanna þótt þau nái ekki til þeirra hæða þar sem snill- ingar á borð við Hómer, Plató, Shakesapeare og höfund Njálu hafast við í fámennum félags- skap. Goðsagnir um hetjur og guði jarðarbúa A DICTIONARY OF WORLD MYTHO- LOGY Höfundur: Arthur Cotterell. Oxford University Press, 1986. Það skiptir engu hvort litið er til evrópskra vígamanna, amerískra indíána, mongólskra hirðinga, ástr- alskra frumbyggja, afrískra negra. Þessir og aðrir hlutar mannkynsins eiga það allir sameiginlegt að hafa skapað, þróað og varðveitt kynslóð af kynslóð goðsagnir í vanmúttugri tilraun til þess að skýra það sem þeir skildu ekki: lífið, dauðann, nátt- úruöflin. Hinar fornu goðsagnir hafa víða misst veruleikagildi sitt í samfélagi nútímans, en lifa áfram sem menn- ingárlegur arfur og oft á tíðum áhrifamiklar skáldlegar frásagnir. Aðrar goðsagnir, magnaðar af fjöl- miðlum eins og sjónvarpi, kvikmynd- um og blöðum, hafa tekið við af þeim mörgum. Rambo hefur leyst Ódysseif af hólmi í vitund nýrra kynslóða. En hin forna þekking lifir enn í A Dictionarv of World Mythology m . . „ „ .. C9m Arthur(i)tteRii bókum. Erfitt er að ímynda sér betra yfirlit yfir goðsagnir jarðarbúa í jafnknöppu formi og í þessari bók eftir Arthur Cotterell. Hann hefur samið margar bækur um foma menn- ingu austurasiskra þjóða og er rit- stjóri alfræðiritsins „Encyclopedia of Ancient Civilizations". Þessi bók, sem nú birtist í fyrsta sinn í pappírs- kilju, er aukin og endurbætt útgáfa rits sem upphaflega var gefið út 1979. Cotterell skrifar fróðlegan inngang um goðsagnir almennt og þýðingu þeirra en sjálfu uppsláttarritinu er skipt niður landfræðilega í sjö meg- inkafla: Vestur-Asíu, Suður- og Mið-Asíu, Austur-Asíu, Evrópu, Am- eríku, Afríku og Eyjaálfu. Stuttur formáli er í upphafi hvers kafla. Höfundinum tekst bæði að koma staðreyndum sem og hinu ævintýra- lega og skáldlega til skila. Hér er mikil þekking saman komin í stuttu máli. Goðsagnir hinna ýmsu þjóða og þjóðarbrota eru um margt ólíkar. Samt er það einna forvitnilegast að sjá hversu margt er þó sameiginlegt með þeim hugmyndum sem forfeður mannkynsins gerðu sér hver í sínu horni um lífið, dauðann, náttúruna og guðina. ,,Hugleysingjar“ sem hristu upp í Tékkum THE COWARDS Hölundur: Jósel Skvórecký. Penguin Books, 1985. Eftir atburði ársins 1956 í komm- únistaríkjum varð nokkur tilslökun í sumum ríkjum Austur-Evrópu. Sú brcyting fólst meðal annars í því að farið var að leyfa útgáfu bóka sem áður hafði verið hafnað af forlögum kerfisins. Ein þeirra var skáldsaga sem ungur Tékki hafði skrifað skömmu eftir lok síðari heimsstyrj- aldarinnar, nánar tiltekið á þeim tímum þegar kommúnistar voru að taka völdin i landinu í sínar hendur (1948-1949), en geymt í skrífborðs- skúffu sinni í áratug eða svo. Skáldsagan nefndist Zbabélci og birtist hér í enskri þýðingu. METSÖLULISTAR - PAPPÍRSKILJUR DANMÖRK BANDARÍKIN 1. FayWeldon: VENINDER. (1). 1. Mary Higgins Clark: STILLWATCH. 2. Isabel Allende: ÁNDERNES HUS. (4). 2. Barbara Taylor Bradford: HOLDTHE DREAM. 3. Karen Blixen: DEN AFRIKANSKE FARM. (2). 3. Michael Korda: QUEENIE. 4. Judith Thurman: KAREN BLIXEN. (3). 4. Colleen McCullough: A CREED FORTHE THIRD MILLE- 5. Carsten Jensen: SJÆLEN SIDDER1 ÖJET. (9). NIUM. 5. AliceWalker: 6. Alice Walker: FARVEN LILLA. (6). THE COLOR PURPLE. 6. DanielleSteel: 7. Karen Blixen: BREVE FRA AFRIKA. (7). FAMILY ALBUM. 7. Dick Francis: 8. Frans Lasson og Clara Selborn: KAREN BLIXEN. (5). PROOF. 8. Sidney Sheldon: IFT0M0RR0W COMES. 9. Karen Blixen: SYV FANTASTISKE FORTÆLLIN- GER. (8). 9. JanetDailey: THEGLORY GAME. 10. Elmore Leonard: 10. Mario Puzo: SICILIANEREN. (10). (Tölur innan sviga tákna röð viðkom- GLITZ. Bækur almenns eðlis: 1. Isak Dinesen (Karen Blixen): OUT OF AFRICA AND SHADOWS ONTHEGRASS. 2. Connell Cowan og Melvin Kinder: SMART WOMEN, FOOLISH CHO- ICES. 3. M.ScottPeck: THEROAD LESSTRAVELED. 4. Leo F. Buscaglia: LOVING EACH OTHER. 5. Judith Thurman: ISAK DINESEN: THE LIFE OF A STORYTELLER. andi bókar á metsölulistanum vikuna á (Byggt á New York Times Book Revi- undan. Byggt á Politiken Söndag). ew). Umsjón: Elías Snæland Jónsson Höfundurinn, Jósef Skvórecký, hélt að nú væri hans tími kominn. Það sem hann vissi ekki fyrr en síðar var að kerfispostularnir höfðu ákveðið að gefa skáldsöguna út til þess að sýna fram á hvílíkt skaðræði hlytist af auknu frjálsræði í menn- ingarmálum. Og viðbrögðin urðu samkvæmt því. í blöðum og á fundum var svívirðingum hellt yfir höfund- inn. Sala bókarinnar var bönnuð. Skvórecký missti starf sitt við bók- menntatímarit í Prag. Honum var úthýst. Tíu ár liðu og kommúnismi Dúb- sjeks kom til skjalanna: það voraði í Prag. Skáldsaga Skvórecký var gefin út að nýju og varð fyrsta met- söluskáldsaga eftirstríðshöfundar í landinu. En þegar sovésku skrið- drekarnir kæfðu frjálsræðið síðari hluta árs 1968 féll Skvórecký aftur í ónáð og flutti þá til Vesturlanda í útlegð. Um hvað fjallar svo þessi forboðna og vinsæla skáldsaga? Hún segir frá unglingspilti, Danny að nafni, og félögum hans á þeim átakadögum i maí 1945 þegar sovéski herinn er að hrekja þýska nasista frá Tékkóslóvakíu. Það sem kerfisstjór- unum fannst óþolandi helgispjöll var hverjum augum Danny, og reyndar fleiri söguhetjur, líta þessa frelsun Rauða hersins. Staðreyndin er nefnilega sú að Danny hefur meiri áhuga á að spila á saxófóninn sinn jasslög og komast í návígi við draumadísina sína, Irenu (sem reyndar er að bíða eftir fréttum af unnusta sínum sem er úti að stríða), en að berjast við Þjóðverja. Hann er jafnframt áhorfandi að hug- leysi og tækifærismennsku, þar sem hver reynir að bjarga sjálfum sér sem best hann getur. Skáldsagan sver sig að nokkru í ætt við þær skáldsögur aðrar frá sjötta áratugnum þar sem lýst er uppreisnargjörnu ungu fólki sem ber litla virðingu, svo ekki sé meira sagt, fyrir þeim sem eldri eru og lítur á athafnir þeirra með samblandi af fýr- irlitningu og vorkunnsemi. En hér er þetta unga fólk í miðri hringiðu stríðsátaka og stjórnmálaumbylt- inga sem flækir enn frekar hin persónulegri vandamál. Skvórecký hefur haldið áfram að skrifa skáldsögur eftir að hann flutt- ist til Vesturlanda (hann hefur um árabil verið prófessor í bókmenntum við háskólann í Tórontó). En honum hefur reynst erfitt að skrifa aðra skáldsögu sem jafnast á við þessa. JUMKV WIIJJUI s. IUIUUHGIIS INTftÖOUCTIÖN 8Y At.LEN GINSBER I eitrinu JUNKY. Höfundur: William S. Burroughs. Penguin Books, 1986. Þessi fyrsta bók bandaríska rit- höfundarins William S. Burro- ughs (upphaflega útgefin árið 1953) er ein af þekktari frásögn- um bókmenntanna af lífi í eitr- inu. Burroughs segir hér frá eigin reynslu: hann var um árabil eit- urlyfjaneytandi sem hafði ofan af fýrir sér með því að selja öðrum eitur og stela, einkum af drukkn- um mönnum. Hér lýsir hann sjálfum sér og öðrum eiturlyfjaneytendum og er sú frásögn öll hin óhugnanleg- asta hvort sem umhverfið er New York, New Orleans eða Mexíkó- borg: heimur fórnarlamba eitur- lyfjanna virðist alls staðar vera í grundvallaratriðum eins. Allen Ginsberg ritar formála að bókinni sem reyndar á upphaf sitt í bréfum sem Burroughs skrifaði honum um lífið í eitrinu. Við lestur Junky verða margar aðrar og nýrri bækur um hlið- stæð efni sem barnaskólalesning. fjtá Stefna Owen A UNITED KINGDOM. Höfundur David Owen. Penguin Books, 1986. Leiðtogi flokks þess sem nefnist The Social Democratic Party og stofnaður var fyrir nokkrum árum af klofningsmönnum úr breska Verkamannaflokknum, er David Owen, sem var utanríkis- ráðherra lands síns á árunum 1977 til 1979. Owen tók við leið- togaembættinu árið 1983. Sem flokksleiðtogi hefur hann síðustu árin útfært stefnu flokks síns í hinum ýmsu málum, bæði í ræðu og riti. Þessi bók er safn slíkra greina þar sem tekið er á mörgum sviðum þjóðmála. Kjarninn í boðskap Owens er þó sá að vandamál Breta séu fyrst og fremst slæmri stjórn landsmál- anna í þrjá áratugi að kenna. Leiðin út úr ógöngunum sé að taka upp hlutfallskosningar til þingsins og veita bandalagi jafn- aðarmanna og frjálslyndra brautargengi, í það minnsta að því marki að það komist í sam- steypustjórn. Núverandi kosningalög i Bret- landi byggja á einmenningskjör- dæmum og eru því mjög óréttlát, sérstaklega gagnvart minni flokkum eins og bandalaginu sem hefur margfalt fleiri atkvæði á bak við hvern þingmann en Ihaldsflokkurinn og jafnvel V erkamannaflokkurinn. Owen er gagnrýninn á margt í bresku þjóðlífi og kemur með ýmsar tillögur til úrbóta, eins og títt er um stjórnarandstæðinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.