Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 19
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
19
í
drauma-
landinu
Ég er að hugsa um að skrifa honum
Tómasi Izquierdo og bjóða honum
að búa hjá mér um hríð - nú eða
þá að skipta við hann. Sá býr á
Kúbu og hefur ekki sigið blundur á
brá í fjörutíu ár, að sögn DV á mið-
vikudaginn var. Það hlýtur að vera
hreinn hryllingur fyrir manninn að
geta aldrei tekið sér eftirmiðdags-
síestu eins og allir hinir - íyrir nú
utan önnur óþægindi sem þessu
hljóta að fylgja í nokkum veginn
normal samfélagi.
Ég meina það. Or því að yfir fjöru-
tíu læknar hafa ekki getað ráðið bót
á þessum kvilla finnst mér tími til
kominn að manninum verði komið
í umhverfi þar sem litið er á svona
nokkuð sem stórkostlegan kost en
ekki hræðilegan sjúkdóm.
Já, manneskja, sem steinsefur á
meðan Gösta Ekman dröslast með
h'k um allar trissur á skerminum og
rumskar varla að lokinni Innrásinni
frá Mars, getur ekki annað en öfund-
að hann Tómas pínulítið. Þetta var
ég allavega að hugsa á meðan ég las
frásögnina af honum og velti því
jafnframt fyrir mér hvað ég hefði nú
séð og heyrt í fjölmiðlunum síðustu
dagana. Niðurstaðan var því miður
sú, að þrátt fyrir heilmikinn áhuga
og góðan vilja hafði ég oftar en ekki
horfið yfir í draumalandið löngu fyr-
ir tímann.
Þú vinnur of mikið, sagði ég við
sjálfa mig; ásakandi en um leið stolt
eins og sönnum vinnusömum íslend-
ingi ber.
Éitt andartak flaug mér svo sem í
hug að fjölmiðlamir væru kannski
bara svona svæfandi og leiðinlegir,
en auðvitað er málið ekki alveg svo
einfalt.
Að kvöldi 1. maí rann svo loks upp
fyrir mér ljós. Eftir að hafa fyrst
hlaupið lafinóð á milli Lækjartorgs
og Hallærisplans, blakandi eyrum,
og síðan hlustað á gesti Ragnheiðar
Davíðsdóttur á rás tvö í útvarpinu,
var ég ekki í nokkrum vafa um að
íslenska þjóðin ein gæti komið hon-
um Tómasi til bjargar og boðið
honum aðstæður við hæfi.
Allir sem skrifuðu í blöðin 1. maí
og allir ræðumenn dagsins í Reykja-
vík (sem voru reyndar eintómir
kvenmenn) voru ofsalega sammála
um að maður yrði að leggja nótt við
dag til að ná endum saman; að eng-
inn lifði á daglaununum og tvær
fyrirvinnur dygðu varla til. Sem sagt
„drauma“landið fyrir Tomma svefii-
lausa. Hér gæti hann atast á tvöfold-
um vöktum í brjáluðum bónus án
þess að nokkrum þætti það skrýtið.
Honum yrði sennilega bara boðin
aukavinna á þriðju vaktinni. Konan
hans þyrfti líklega ekki að vinna
nema eina vinnu og ég spái því að
þau gætu keypt sér litla blokkaríbúð
fyrir aldamót. Að vísu fylgja sjúk-
dómnum, sem allir hér þyrftu helst
að vera haldnir, fylgikvillar á borð
við minnistap og síminnkandi sjálfe-
traust, en ég heyrði nú ekki betur á
fyrmefndum konum en að slíkt væri
bara til bóta ef maður ætlaði að
halda sönsum í sumum fyrirtækjum
hér um slóðir.
Ég var óvenjulega vel vakandi á
sunnudagskvöldið síðasta, enda
margt sem freistaði í sjónvarpinu.
Ég horfði meira að segja á Dagskrá
næstu viku, aldrei þessu vant, og þar
upplýsti leiklistarráðunautur stofh-
unarinnar áhorfendur um að nú
ættu þeir að fá að sjá fjögur sjón-
varpsverk Jökuls heitins Jakob-
ssonar í bunu og þeir skyldu
endilega nota tækifærið og tékka á
samhenginu í þeim. Þetta væri voða
algengt í útlandinu og þætti gott.
Veskú!
Það er auðvitað þakkar vert að
sjónvarpið skuli splæsa á okkur
svona þemaviku en ég held að þeir
í útlandinu láti yfirleitt fylgja lauf-
létta úttekt á viðkomandi höfundi,
eða a.m.k. huggulegan inngang. Al-
veg er ég t.d. handviss um að ekki
hefði þurft að margbiðja mann á
borð við Svein Einarsson að taka
slíkt að sér. Ég er reyndar jafnviss
um að hann (eða einhver annar)
tæki að sér að flytja fróðlegan og
skemmtilegan eftirmála ef sjónvarp-
ið sæi að sér í tíma. Ég meina
einfaldlega eitthvað í þeim dúr að
nú eruð þið búin að sjá fjögur sjón-
varpsleikrit Jökuls og hvað fannst
ykkur? Tókuð þið eftir þessu eða
hinu? Eruð þið sammála því að ...
Því ekki að bjóða nokkrum áhorf-
endum í sjónvarpssal að ræða um
verkin. Einhveijir þeirra mættu
jafnvel vera yngri en sextán og eldri
en sextíu - mín vegna.
HILDUR
FINNSDÓTTIR
FÁRAST YFIR
FJÖLMIÐLUM
Svona mætti raunar fjalla um verk
fjölmargra höfunda í ýmsum grein-
um og ég efast ekki um að við
áhorfendur kynnum að meta vel
matreidda leiðsögn í bókmennta-
fræði, leikhúsfræði, listfræði o.s.frv.
sem hlyti að fylgja í kaupbæti. Og
það þýðir ekkert að væla um að fólk-
ið vilji ekki svona lagað. Það er
nefiiilega svo að fólkið vill nánast
hvað sem er, svo framarlega sem það
er almennilega gert. Nú, og hver
náði betur til fólksins en Jökull þeg-
ar honum tókst best upp? Elskuðum
við hann ekki einmitt fyrir mann-
eskjulegheit og oft grátbrosleg en
öllum skiljanleg viðbrögð litla
mannsins svokallaða í hörðum
heimi? Væri ekki bara ráð að tékka
á þessu og heiðra þannig minningu
skáldsins?
Ég ætla að geyma mér að geð-
vonskast yfir Kólumbusi en verð þó
að segja að sem óvirkum Gaflara
fannst mér ansi skítt að þeir skyldu
ekki splæsa skoti á sæfarann sigla
seglum þöndum inn á Hafnarfjarðar-
höfh.
Svona rétt í lokin langar mig til
að minna á ellefta boðorðið sem rifj-
aðist upp fyrir mér 1. maí og ég hef
áreiðanlega ekki verið ein um að
margbrjóta upp á síðkastið: Eigi
skaltu gimast launaskrið náunga
þíns!
NU eR þÉK
Hingað til hefur ekki verið á allra færi að fjárfesta á þann hátt sem
hagkvæmastur hefur verið á hverjum tíma.
Til að koma til móts við almenning hefur KAUPÞING HF. hafið sölu
svonefndra EININGABRÉFA sem ALLIR ráða við. Við kaup á
EININGABRÉFUM nýtur þú HÁMARKS ÁVÖXTUNAR, tekur
LÁGMARKS ÁHÆTTU og ert með ÓBUNDIÐ FÉ.
Einfaldara getur það ekki verið.
— HVERNIG ER ÞETTA HÆGT?
Þú verður ásamt fjölmörgum öðrum einstaklingum þátttakandi í stórum
sjóði sem kaupir verðbréf með hæstu mögulegri ávöxtun — verðbréf sem
að öðrum kosti væru einungis innan seilingar mjög fjársterkra aðila.
MARGT SMATT GERIR EITT STÓRT.
í þessum sjóði vegur þitt fé jafn þungt og þeirra sem meira hafa
handa á milli. Að baki EININGABRÉFUNUM standa örugg veð
eða aðrar jafngildar tryggingar.
Hringdu í síma 686988 og fáöu nánari upplýsingar.
NAFNVEXTIR HELSTU SPARNAÐARFORMA:
Spamaöarform Nafnvextir Raunvextir
• Almennir sparisióösreikningar 8,0—9,0%
• Sérreikningar banka 12,0—13,0%
• 6 mán. verðtryggöir reikningar 15,4—15,9%* 3,0—3,5%
• 18 mán. verötryggöir reikningar 19,8—20,4%* 7,0—7,5%
• Spariskfrteini rfkissjóós 19,8—22,1%* 7,0—9,0%
• Bankatryggö skuldabréf 23,2—24,3%* 10,0—11,0%
■ EININGABRÉF 31,0%* nú 17%
* Miöaö við 12% árlega veröbólgu.
AtttÍHADTAc,oSÖGN
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar “23T 68 69 88