Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 20
20 DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. Einvígi Ásgeirs Sigurvinssonar og Sören Lerby í Berlín: Fagnar Asgeir sigri ems og Jesse Owens gerði 1936? - þegar hann var fýrsti maðurinn til að ögra stolti Adotfs Hitlers sem ætlaði að sýna umheiminum hvers Þjóðverjar væru megnugir í íþréttum að verða fleiri íslendingar í sviðsljósinu í dag held- ur en ICY-hópurinn sem mun syngja í Evrópusöngva- keppninni í Grieg-höllinni í Bergen. Knattspyrnukappinn Ásgeir Sigurvinsson verður einnig í sviðsljósinu en þó ekki í Bergen. Hann verður á ferðinni á ólympíuleikvang- inum í V-Berlín, þar sem Stuttgart mætir Bayern Munchen í bikarúrslitaleik V-Þýskalands. Það verða 91.000 áhorfendur saman komnir í dag á ólympíuleikvanginum fræga þar sem Adolf Hitler, einræðis- herra Þýskalands, hélt þrumandi ræðu við opnun ólympíuleikanna 1936. Einn kunnur einvaldur verður mættur til leiks í dag eins og fyrir 50 árum. Það er Franz „Keisari" Beckenbauer, landsliðseinvaldur v-þýska landsliðs- ins. Hann mun verða vitni að einvígi tveggja bestu knattspymumanna í V-Þýskalandi, þeirra Asgeirs Sigur- vinssonar og danska landsliðsmanns- ins Sören Lerby. Leikmannanna sem Beckenbauer vildi gjaman tefla fram í v-þýska landsliðinu í HM-keppninni í Mexíkó. „Þetta er sannkallaður draumaúr- slitaleikur. Tvö bestu félagslið V- Þýskalands eigast við. Liðin sem hafa orðið V-Þýskalandsmeistarar þrjú undanfarin ár. Bæði liðin hafa leikið mjög vel að undanfömu og því má reikna með íjömgum og skemmtileg- um leik,“ sagði Beckenbauer í blaðvið- tali 1. maí. Loftbrú til Berlínar Geysilegur áhugi er fyrir leik hinna tveggja frægu knattspvmufélaga frá Suður-Þýskalandi. Uppselt er á leik- inn. Um 20 þús. stuðningsmenn Stuttgart og sami fjöldi frá Múnchen hafa verið að tínast til Berlínar tvo sl. daga. Flugfélagið Lufthansa og önnur flugfélög hafa haldið uppi loft- brú til Berlínar og þá hafa fjölmargir langferðabílar með stuðningsmönnum félaganna farið í gegnum A-Þýska- land, eftir hraðbrautinni E 51. Einvigi Asgeirs og Lerby Blöð í V-Þýskalandi hafa verið upp- full af frásögnum um bikarslaginn í Berlín, vangaveltum og menn hafa spáð. Blöðin slá því upp að á ólvmpíu- leikvanginum fari fram einvígi tveggja bestu miðvallarspilara í V-Þýskalandi, íslendingsins Ásgeirs Sigurvinssonar og Danans Sören Lerby. Leikmenn Stuttgart og Bayem fóm fljúgandi til Berlínar í gær og tóku þeir þá létta æfingar á ólympíuleik- vanginum. „Það er mikil spenna í lofti. Það er greinilegt að til mikils er ætlast af lið- unum,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson í samtali við DV. Ásgeir sagði að hann og Karl Allgöwer hefðu átt við smávægileg meiðsli að stríða eftir hinn fjöruga leik gegn Bremen um sl. helgi. „Eg fékk þá spark í hnésbót. Við verðum þó tilbúnir í slaginn." „Jú, það hefúr verið mikið talað um hin og þessi einvígi inni á vellinum. Einvígi á milli mín og Ix-rby, marka- einvígi sóknarleikmanna, þeirra Klinsmann og Pasic, gegn Bayem- leikmönnunum Dieter Höness og Michael Rummenigge. Það hefur verið mikið rætt og ritað um leikinn," sagði Ásgeir. Asgeir sagði að liðin lékju ólík leik- kerfi. Bayem leikur t.d. svæðisvöm en Stuttgart maður gegn manni. „Þetta verður tvímælalaust skemmti- legur og spennandi leikur og leikmenn liðanna em ákveðnir í að standa sig vel. Spumingin er aðeins hvemig menn em upplagðir þegar út í slaginn er komið. Viljinn er alltaf fyrir hendi til að gera sitt besta, en það getur margt komið upp á. Sumir leikmenn ná sér ekki á strik. Það fer þá eftir hvemig leikurinn spilast og þróast," sagði Ásgeir. Bæjarar bjartsýnir „Við erum staðráðnir í að vinna tvöfalt - bæði deild og bikar. Þó svo að Stuttgart hafi fært okkur V-Þýska- landsmeistaratitilinn á silfurfati um sl. helgi með því að leggja Bremen að velli skuldum við Stuttgart ekkert. Þeir fá ekkert í staðinn frá okkur,“ sagði Udo Lattek í blaðaviðtali. Happatala Stuttgart „Við leggjum allt í sölumar til að fara með bikarinn heim til Stuttgart. Það verður ekkert gefið eftir. Við misstum af baráttunni um meistaratit- ilinn með slöku gengi um mitt tímabil í Bundeslígunni," sagði Ásgeir. Ásgeir sagði að það væm nú tvö ár liðin síðan Stuttgart varð v-þýskur meistari. „Nú viljum við fá bikarinn.“ Menn í Stuttgart hafa verið að leika sér að tölum að undanfömu. Þegar Stuttgart var meistari 1984 voru 32 ár síðan félagið varð síðast meistari. Nú er bent á að Stuttgart, sem hefúr tvisv- ar orðið bikarmeistari, hafi fyrst unnið bikarinn 1954 þannig að 32 ár séu síð- an. Stuttgartbúar hafa tröllatrú á að talan 32 sé happatala. Sorgarsaga Bremen - Nú þakka leikmenn Bayem ykkur fyrir að þeir era V-Þýskalandsmeistar- ar? „Já, en þeir geta einnig hrósað happi því að Bremen hrundi á endasprettin- um. Ég vil ekki meina að Bremen hafi misst af titlinum í Stuttgart. Leik- menn liðsins gerðu það á heimavelli Þeir berjast um völdin á miðjunni í Berlín í dag, Ásgeir og Lerby. Þessi mynd birtist utan á hinu fræga íþróttablaði Kicker. sínum með því að gera þar jafntefli gegn Gladbach og Bayem í tveimur síðustu heimaleikjum sínum. Þeir mis- notuðu t.d. vítaspymu gegn Bayem, vítaspymu sem gat fært þeim meist> aratitilinn. Lokasprettur Bremen var mikil sorgarsaga því að félagið hefði verið vel að meistaratitlinum komið. En svona er knattspyman. Það var átak- anlegt að sjá hvemig leikmenn Bremen féllu saman eftir tapið gegn okkur. Þeim dugði jafhtefli. Við lékum á fullu og náðum að sýna mjög góðan leik. Það var hart barist og það hefði ekki verið sanngjamt ef við hefðum slakað á og tekið áhættu fyrir bikarúr- „Því miður var amma Ásgeirs ekki þýsk“ - segir landsliðsþjáffari V-Þýskalands Ásgeir Sigurvinsson, sem átt hefúr hvern stórleikinn á fætur öðmm að undanfömu með Stuttgart, er talinn einn besti knattspymumaður V- Þýskalands og ef hann væri V-Þjóð- veiji fengi hann það hlutverk að stjórna v-þýska landsliðinu í HM- keppninni í Mexikó. Frans Beckenbauer, landsliðsein- valdur V-Þýskalands, sagði í viðtali við „World Soccer“ á dögunum að aðeins tveir leikmenn í V-Þýska- landi gætu leikið sama hlutverk fyrir lið sitt og Michel Platini leikur fyrir franska landsliðið. Það væm þeir Ásgeir Sigurvinsson og Sören Lerby, sem væm hvorugur V-Þjóðverji. Horst Köppel, þjálfari v-þýska liðs- ins, sá Ásgeir eiga snilldarleik með Stuttgart gegn Bremen um sl. helgi. í viðtali við Kicker sagði hann: Ás- geir er leikmaður sem við gætum notað i Mexíkó, en því miður var amma hans ekki þýsk. Hann vill ekki gerast v-þýskur ríkisborgari. Þess má geta að ástæðan fyrir því að Köppel minntist á ömmu Ásgeirs er að það var skrifað um það í blöð- um í V-Þýskalandi ekki alls fyrir löngu að Ásgeir væri gjaldgengur í v-þýska landsliðið á HM i Mexíkó, þar sem amma hans heföi verið þýsk. -SOS slitaleikinn gegn Bayem,“ sagði Ásgeir. Bayern fékk eftirlíkingu Þess má geta að forráðamenn v- þýska knattspymusambandsins vom búnir að reikna með því að Bremen mundi tryggja sér meistaratitilinn. Þeir vom mættir með sigurskjöldinn til Stuttgart. Aftur á móti var farið með eftirlíkingu af honum til Múnchen þannig að leikmenn Bayem hömpuðu eftirlíkingunni sl. laugar- dag. Vildu fá Asgeir aftur Eins og hefur komið fram í blöðum framlengdi Ásgeir samning sinn við Stuttgart til 1989 fyrir nokkmm dög- um. Aður hafði Bayem Múnchen haft samband við Ásgeir og óskað eftir því að hann kæmi aftur til félagsins. Ás- geir fór frá félaginu fyrir fjórum árum eftir óánægju með framkomu þjálfar- ans, Pal Csemai. - Verður Ásgeir í hefndarhug þegar hann leikur gegn Bayem í V-Berlín í dag? „Þessa spumingu kannast ég við. Ég hef oft verið spurður þannig sl. fjögur ár. Nei, ég hef einskis að hefha. Dæmið gekk ekki upp hjá mér þegar ég var hjá Bayem. Síðan ég fór frá Bayem hef ég oft sannað og sýnt að ég er leikmaður sem Bayem gat not- að. Ég fer ekki í hefhdarhug inn á ólympíuleikvanginn í Berlin. Ég mæti til leiks til að gera mitt besta í sam- vinnu við félaga mína. Við stefnum allir að sama takmarkinu: Að fara heim til Stuttgart með bikarinn lang- þráða,“ sagði Ásgeir. Spumingin er því hvort Ásgeir og félagar hans fara eins ánægðir út af ólympíuleikvanginum og bandaríski blökkumaðurinn Jesse Owens gerði 1936. Þá hrelldi hann Hitler með því að hverfa á braut með fjóra verðlauna- peninga á ólympíuleikunum. -SOS Þeir leika Samkvæmt upplýsingum, sem DV fékk frá Berlín í gær, verða lið Stuttgart og Bayem þannig skipuð. Innan sviga má sjá hve mörg mörk markahæstu leikmenn liðanna skomðu í Bundeslígunni: Stuttgart Armin Jáger Rainer Zietsch Giinther Scháfer Karl-Heinz Förster Michael Nushöhr Andreas Múller Guido Buchwald Karl Allgöwer (21) Ásgeir Sigurvinsson (9) Júrgen Klinsmann (16) Predrag Pasic (5) Bayern Jean-Marie Pfaff Klaus Augenthaler Norbert Eder Hans Pflúgler (6) Norbert Nachtweih Lothar Mattháus (10) Sören Lerby (8) Reinhold Mathy Roland Wohlfarth (13) Dieter Höness (15) Michael Rummenigge (19) • Bayern skoraði 82 mörk í Bund- eslígunni, fékk á sig 31. Stuttgart skoraði 69 en fékk á sig 45. • Markatala Bayern í bikarkeppn- inni er 14-3, en Stuttgart 19-6. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.