Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Side 21
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. 21
EVRORSKRA
SJONVARRSSTÖÐVA
-| *9*8*6
Snorri Sturiu-
son og Icy
hittust í Bergen
- sigurlíkur Gleði-
bankans verulegar
Eiríkur Jónsson, DV, Bergen:
„Við vorum i fiskiveislu með
nokkrum þátttakendum frá Suður-
Evrópu og þeir höfðu mestar áhyggj-
ur af því hvar við ætluðum að halda
Eurovision keppninna að ári ef við
ynnum,“ sagði Guðrún Bjarnadóttir,
eiginkona Egils Eðvarðssonar, í
samtali við DV í Grieg-höllinni í
gær. Þá stóðu yfir lokaæfingar vegna
söngvakeppninnar sem send verður
um gjörvalla Evrópu í kvöld.
Icy-hópurinn var sjötti í röðinni og
söng Gleðibankann með miklum til-
þrifum á sviði Grieg-hallarinnar við
góðar undirtektir viðstaddra. Það
var meira að segja blistrað er síðustu
tónar stórhljómsveitarinnar, undir
stjórn Gunnars Þórðarsonar, dóu út.
„Ég er ekkert stressaður,“, sagði
Gunnar Þórðarson í samtali við DV.
„Ég er búinn að æfa þetta svo vel,
það getur ekkert farið úrskeiðis.“
Hefðirðu frekar viljað stjórna
eigin lagi hér á sviðinu í Bergen?
„Það hefði sossum verið nógu
skemmtilegt en Gleðibankinn er fínn
fulltrúi."
Pálmi, Helga og Eiríkur Hauksson
gengu á vit Snorra Sturlusonar í
gær. Snorri stendur í öllu sínu veldi
i aðeins nokkurra metra fjarlægð frá
hótel Rosenkrantz þar sem íslend-
ingarnir búa. Eru því fleiri íslending-
ar í sviðsljósinu hér í Bergen en
IcY-hópurinn.
Ýmis stórtíðindi hafa dregið nokk-
uð úr þeirri athygli er söngvakeppn-
in vekur. Geislavirk ský frá Kiev í
Rússlandi valda Norðmönnum
áhyggjum, forsætisráðherrann hefur
sagt af sér og svo unnu Norðmenn
Argentínu í knattspyrnuleik á mið-
vikudagskvöldið.
Klæðnaður íslensku keppendanna
hefur mælst vel fyrir, enda prýddur
silfurtölum er Jens Guðjónsson
hannaði. Samkvæmt nýjustu spám
veðmangara í London á Gleðibank-
inn eftir að lenda í fimmta sæti ásamt
með lögum frá Spáni og Frakklandi.
Sviss er spáð fyrsta sæti, Belgíu öðru,
Ehglandi þriðja og Irlandi fjórða.
Það er ýmislegt sem bendir til þess að Áse Kleveland, kynnirinn í söngva-
keppninni í kvöld, verði áfram í sviðsljósinu. Hún er hugsanlega næsti
menningarmálaráðherra Noregs. Gunnar Þórðarson stendur í skjóli Ase, sem
er þama að kynna Gleðibankann á aðalæfmgunni sem fram fór í gær.
DV-símamynd GVA
Icy-hópurinn er ekki eini þekkti fulltrúi íslands í Bergen um þessar mundir. Snorri Sturluson heldur uppi okkar merki
í borginni og hefur gert um nokkurt skeið. Styttan af Snorra Sturlusyni stendur skammt frá hótel Rosenkrantz þar
sem Helga, Éiríkur og Pálmi búa. DV-símamynd GVA
Verður kynnirinn
menningarmálaráðherra?
Eiríkur Jónsson, DV, Bergen: armálaráðherra í stjórn Gro Harlem í Noregi og hefur látið stjórnmál til
Áse Kleveland, er verður kynnir í Brundtland er tekur við völdum í sín laka. Hún var meðal íinnars aðal-
beinni útsendingu í Söngvakeppni Noregi eftir helgi. ræðumaður á útihátíðarhöldum
evrópskra sjónvarpsstöðva, verður Áse Kleveland er þekkt söngkona verkalýðsins í Bergen 1. maí.
að öllum líkindum gerð að menning-