Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 25
25
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
Hin hliðin Hin hliðin Hin hliðin
• Berg Guðnason lögfræðing langar mest til að hitta Gaddafi, ieiðtoga Lýbíu.
Uppboð
Eftir beiðni lögreglustjórans i Reykjavík fer fram opinbert uppboð að Borgar-
túni 7 (baklóð) laugardaginn 10. maí 1986 og hefst það kl. 13.30.
Seldir verða margs konar óskilamunir, sem eru í vörslu lögreglunnar, svo
sem: reiðhjól, úr, skartmunir, fatnaður og margt fleira.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík.
Vantar þig rafvirkja?
Talaðu þá við okkur.
Nýlagnir - breytingar
og viðgerðarþjónusta
RAFBJARG HF,
Smiðshöfða 6. - S. 685955.
f HAFNARFJÖRÐUR -
Lmatjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði er, bent á að
síðustu forvöð að greiða leiguna er föstudaginn 9.
maí nk., eftir þann dag verða garðarnir leigðir öðrum.
Bæjarverkfræðingur.
ÓSKILAMUNIR
Hjá lögreglunni í Kópavogi eru í óskilum reiðhjól, úr
og fleira. Munir þessir verða til sýnis á lögreglustöð-
inni, Auðbrekku 10, mánudaginn 5. maí til 10. maí nk.
Þeir munir sem ekki verður vitjað verða seldir á opin-
beru uppboði laugardaginn 31. maí nk. kl. 13.30.
Lögreglan í Kópavogi.
Eg myndi kanna
gullforða
íslendinga
Bergur Guðnason
„Það er að vísu ákaflega
mikið að gera hjá mér núna
en ég er samt að hugsa um
að slá til. Jú, við skulum
bara hella okkur í þetta,“
sagði Bergur Guðnason lög-
fræðingur þegar slegið var á
þráðinn til hans i vikunni.
Bergur er í sviðsljósinu
þessa dagana en eins og
fram hefur komið í fréttum
hefur hann komið við sögu
sem veijandi þess fólks sem
hefúr verið að leita réttar
síns í tengslum við okurmál-
ið fræga. Bergur er ekki
einungis kunnur sem lög-
fræðingur. Hann var um
árabil snjall handknattleiks-
maður og lék fjöldann allan
af leikjum með meistara-
flokki Vals.
FULLT NAFN: Bergur Guðna-
son
ALDUR: 46 ára
MAKI: Hjördís Böðvarsdóttir
BÖRN: Fimm talsins
BIFREIÐ: Mercedes Benz, 280
SE árgerð 1981
LAUN: Góð laun
HELSTI VEIKLEIKI: Góðsemi
HELSTI KOSTUR: Bjartsýni
MESTA GLEÐI í LÍFINU: Þeg-
ar ég varð fyrst íslandsmeistari
með meistaraflokki Vals i hand-
knattleik árið 1973.
MESTU VONBRIGÐI í LIFINU:
Þegar Valur tapaði úrslitaleikn-
um í Evrópukeppninni í hand-
knattleik.
HELSTU ÁHUGAMÁL: Lög-
fræði, golf og knattspyma
BESTA BÓK SEM ÞU HEFUR
LESIÐ: Guðfaöirinn eftir Mario
Puzo
BESTA HLJÓMPLATA SEM
ÞÚ HEFUR HLUSTAÐ A: Safn-
plata með tónlist eftir Grieg
lógfræðingur sýnir á
HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF
ÞÚ YNNIR TVÆR MILUJÓNIR
í HAPPDRÆTTI? Ég hugsa að
ég myndi fara í hnattreisu
HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF
ÞÚ YRÐIR ÓSYNILEGUR í
EINN DAG? Ég myndi skoða
mig um í peningageymslum
Seðlabankans og athuga gull-
forða íslendinga í leiðinni
UPPÁHALDSMATUR: Svína-
bógur, enginn vafi
UPPÁHALDSDRYKKUR: 12
ára gamalt Ballantines viskí
U PP AHALDSSKEMMTISTAÐ-
UR: Sati-ingfellows í London
UPPÁHALDSBLAÐ: DV og
Mogginn, einu blöðin sem ég les.
UPPAHALDSTÍMARIT: News-
WGGk
UPPÁHALDSSTJÓRNMÁLA-
MAÐUR: Davið Oddsson borg-
arstjóri
Umsjón
Stefán
Kristjánsson
UPPÁHALDSHLJÓMSVEIT:
Stórsveit Gunnars Þórðarsonar
UPPÁHALDSSÖNGVARI:
Kristián Jóhannsson
UPPÁHALDSFUGL: Valur
UPPÁHALDSLITUR: Rautt og
hvítt
HVER VAR FYRSTI BÍLLINN
SEM ÞÚ EIGNAÐIST OG
HVAÐ KOSTAÐI HANN? Það
var Volkswagen árgerð 1960 og
hann kostaði 450 gamlar krón-
ur.
MEÐ HVAÐA SKEPNUR
sér hSna hliðina
VILDIR ÞÚ HELST BÚA EF
ÞÚ VÆRIR BÓNDI? Ég hugsa
að ég mvndi velja mér hestana
HVAÐA PERSÖNU LANGAR
ÞIG MEST TIL AÐ HITTA?
Gaddafí Líbýuleiðtoga
HLYNNTUR EÐA ANDVÍGUR
RÍKISSTJÓRNINNI: Hlvnntur
HLYNNTUR EÐA ANDVÍGUR
NÚVERANDI MEIRIHLUTA í
BORG ARSTJÓRN: Hlynntur
honum
HVAÐ VILDIR ÞÚ HELST
GERA EF ÞÚ STARFAÐIR
EKKI SEM LÖGFRÆÐINGUR?
Ég hugsa að ég myndi helst vilja
starfa sem golfkennari
HVAR VILDIR ÞÚ HELST BÚA
EF ÞÚ ÆTTIR EKKIHEIMA Á
ÍSLANDI? í Mónakó
MYNDIR ÞÚ TELJA ÞIG GÓÐ-
AN EIGINMANN? Svona i
meðallagi
FALLEGASTI STAÐUR Á ÍS-
LANDI: Ásbyrgi
FALLEGASTI KVENMAÐUR
SEM ÞÚ HEFUR SÉÐ: Kim
Novak
FALLEGASTA LAND SEM ÞÚ
HEFUR FERÐAST TIL: Aust-
urríki
FYLGJANDI EÐA ANDVÍGUR
BJÓRNUM: Fylgjandi honum
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA í
SUMARFRÍINU? Fara til Spán-
ar
HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA
VERK EF ÞÚ YRÐIR HELSTI
RÁÐAMAÐUR ÞJÓÐARINN-
AR? Koma á menntuðu einveldi
ANNAÐ VERK: Skipa mennt-
aðan einvald
HVAÐA RÁÐHERRAEMB-
ÆTTI MYNDIR ÞÚ VELJA
ÞÉR EF ÞÉR STÆÐI ÞAÐ TTL
BOÐ A? Ég held að ég tæki utan-
rikisráðherrann. Það er þægi-
legt starf
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA Á
MORGUN: Vinna við gerð
skattframtala _gK.
BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40
VW GoH árg. 1984, ekinn 40.000 MMC Pajero órg. 1983, ekinn
km, drappl. Verð kr. 330.000,- 43.000 km, rauður. Verð kr.
530.000,-
MMC Colt GL árg. 1983, ekinn
11.000 km, gullsans. Verö
kr. 260.000,-
VW Jetta GL órg. 1982, ekinn VW Jetta CL1600 árg. 1986, ekinn
69.000 km, gullsans. Verð kr. 8.500 km. Verð kr. 410.000,-
240.000,-
G0TT ÚRVAL NÝLEGRA BÍLA Á STAÐNUM
TÖLVUVÆDD ÞJÖNUSTA
RUMCÓÐUR SÝNINCARSALUR
— REYNDIR SÖLUMENN —
OPIÐ:
Mánud.—föstud.kl. 9.00—19.00.
Laugard. kl. 10.00—19.00.