Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 29
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. 29 Knattspyrna unglinga - Knattspyrna unglinga - Knattspyrna unglinga 2. flokkur A: Leikur hinna glötuðu tækifæra Fram-Víkingur skildu jöfh, 0-0 Barist um boltann við vítateig Fram í leik Vals og Fram í 3. fl. A. Á myndinni eru frá vinstri: Steinar Guðgeirsson, Fram, Sigurjón Hjartarson, Val, Haukur Pólmason, Fram, Guðbjartur Auðunsson, Fram, Kristbjörn Orri Guðmunds- son, Val, Gunnar Mór Másson, Val, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Fram, og Arnar Sigtryggsson, Fram. DV-mynd HH 3. flokkur A Þrumumark Einars Dan. kom Valsstrákunum á sporið í 3-0 sigri gegn Frömuram - Framdrengurinn Auðunn Olafsson ökklabrotnaði. Fram og Víkingur léku í 2. fl. A 26. spríl sl. og gerðu liðin markalaust jafn- tefli. Þrátt fyrir markalausan leik var hann íjörugur og skemmtilegur. Bæði liðin fengu mýgrút marktækifæra - Framarar þó öllu fleiri og áttu alls 4 stangarskot. En það er ekki nóg að fá færin, það verður víst að nýta þau. Annars áttu markverðir beggja liða góðan dag, þeir Axel Axelsson í Vík- ingsmarkinu og Stefán Lúðvíksson hjá Frömurum. Af öðrum Víkingum voru mest áber- andi þeir Stefán Aðalsteinsson, traust- ur miðvörður, og miðvallarleikmenn- imir Jóhannes Bjömsson, Hörður Theódórsson og Guðmundur Péturs- son. Hjá Fram var aftasta vömin traust með þá Hergeir Elíasson og Lúðvík Þorgeirsson sem bestu menn. Bjami Jakob Stefánsson átti góðan leik sem tengiliður, vann mikið og byggði upp spil. I framlínunni var Amljótur Dav- íðsson bestur, ásamt Þórhalli Víkings- syni. Jónas Bjömsson og Jónas Guðjónsson hafa oftast verið betri en i þessum leik. Leikur B-liða: Fram-Víkingur 3-3. Úrslit leikja Úrslit annarra leikja í Reykjavíkur- mótinu hafa orðið sem hér segir: 2. flokkur: Þróttur-Fylkir (A) frestað KR-Víkingur (A) 2~2 KR-Víkingur (B) 2-4 ÍR-Fylkir (A) 0-3 Leiknir-KR (A) 0-4 ÍR Þróttur (A) 3-0 3. flokkur: Fylkir-ÍR (A) 2-3 Víkingur-Fram (A) 1-1 Víkingur-Fram (B) 2-4 KR-Leiknir (A) 4-0 KR Leiknir (B) &-2 4. flokkur: Fram-Víkingiu* (A) 6-1 Fram-Víkingur (B) 6-3 Ármann-Fylkir (A) 0-15 ÍR-Þróttur (A) 4-0 5. flokkur: Víkingur-Fram (A) 1-9 Víkingur-Fram (B) 2-6 Fylkir-Ármann (Árm. mœtti ekki) Þróttur-ÍR (A) 0-3 Þróttur-ÍR (B) 1-0 Fram-Valur 4-0 Framarar kafsigldu Val í 2. fl. A. 23. apr. sl. með 4-0 sigri og áttu Valsstrák- amir aldrei möguleika. Mörk Framara skomðu: Jónas Bjömsson 2, Jónas Guðjónsson 1 og Bjami Jakob Stef- ánsson 1 mark. Valur teflir ekki fram B-liði í 2. flokki. -HH harka! Unglingasíðan hafði samband við Karólínu M. Jónsdóttur, form. FÍKK (Fél. ísl. knatt- spyrnukvenna) og spurði hana hvort eitthvað nýtt hefði gerst í sambandi við knattspyrnumál kvenna innan Vikings en eins og menn rekur minni til ákvað stjórn knatt- spyrnudeildar Víkings í janúar sl. að leggja niður kvennaknatt- spyrnu innan félagsins. Karólína hafði þetta að segja: „FÍKK sendi stjóm knattspymud. Víkings yfirlýsingu og báðum við hana að endurskoða afstöðu sína. Þetta mál var síðan tekið upp á aðalfundi deild- arinnar og var samþykkt að einungis 2. fl. kvenna héldi áfram. Ég fyrir mitt leyti er hissa á við- horfi þessara manna. Ástæðuna fyrir hrakförum stúlknanna tel ég vera að þær hefúr vantað góðan talsmann inn- an Víkings sem fleytti þeirra málum fram. Það er eftirsjá að Víkingsstúlkunum í 1. deildinni og ekkert lið kemur upp úr 2. deild í staðinn. Að vísu er það sárabót að 2. flokkur- inn fær að starfa áfram. En ég hef á tilfinningunni að hér hafi verið beitt óþarfa hörku. Jafhrétti þarf að ríkja innan félaganna en í þessu tilviki ból- ar lítið á því,“ sagði Karólína að lokum -HH Valsmenn fengu Framara í heim- sókn 23. apríl sl. Hliðarendastrákamir tóku hressilega á sínum stóra og sigr- uðu nokkuð örugglega, 3-0. í fyrri hálfleik léku Framarar gegn strekkingsvindi og sóttu því Vals- strákamir öllu meir. Þó beittu Framarar skyndiupphlaupum af og til, sem sköpuðu talsverða hættu við Vals- markið, en höfðu ekki boimagn til að nýta þau. Á 25. mín. áttu Valsarar vel útfært upphlaup sem endaði með þrumu Ein- ars Daníelssonar frá vítateigi eftir góða sendingu frá Gunnlaugi Einars- syni. Eftir markið tóku Framarar mikinn fjörkipp og áttu góðar sóknarlotur en skorti kraft til að reka endahnútinn á þær. Á 28. mín. sóttu Valsstrákamir stíft. Boltinn barst fyrir mark Fram og til Skúla Egilssonar sem var óvaldaður á markteig og fór því létt með að bæta við 2. marki Vals. Það sem eftir var til hálfleiks var nokkurt jafhræði með liðunum, fleiri urðu mörkin ekki og staðan því 2-0 Val í hag. Valsstrákamir komu mjög ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og gerðu oft rnjög harða hríð að Frammarkinu og það var árangur á 18. mín. því þá bætti Sigurjón Hjartarson, framherji Vals, við 3. markinu eftir að vöm Fram hafði opnast illa. Eftir markið var eins og leikmenn sættu sig við orðinn hlut. Lokatölur þessa leiks 3-0 fyrir Val, verða að teljast réttlát úrslit. Vömin traust, miðjan sterk og sóknin beitt með þá Einar Daníelsson og Sigurjón Hjartarson sem fremstu menn. Gunn- laugur Einarsson tengiliður stjómaði leik sinna manna af mikilli festu. Framstrákamir eru sennilega flestir á fyrra ári í 3. fl. og skorti því líkams- styrk. - Þeir áttu og í erfiðleikum að finna leiðina að marki Vals að þessu sinni en þeir em léttleikandi og eiga áreiðanlega eftir að sýna í sér tenn- umar í sumar. Bestir Framara vom Haukur Pálmason, Anton Markússon og Hólmsteinn Jónasson. Dómarinn, Anfinn Jensen, leyfði helst til mikið í leiknum. Einn Fram- ara, Auðunn Ólafsson, ökklabrotnaði og varð að fara á sjúkrahús. Leiðin- legt atvik og verður hann sjálfsagt lítið með í sumar. Athygli vakti að einn línuvörður var dómara til aðstoðar - hinn margreyndi Daníel Benjamínsson. Slíkt er ný- breytni sem vert er að lofa. Leikur B-liða: Valur-Fram 5-4. HH Oþarfa Karólína - Hún hefur látið svona síðan strákurinn hennar komst í drengjalandsliðið í knatt- spymu.... D0MARAH0RNIÐ Magnús V. Pétursson spurður - Minmsstætt atvik Við spyrjum Magnús V. Pétursson milliríkjadómara 2ja spuminga er varða dómgæslu: 1) Fríspark er dæmt á sóknarliðið í vítateig. Gústi „sweeper" stillir boltanum upp og virðist ætla að spyma fram völlinn úr frísparkinu. En Gústi er hugmyndaríkur leik- maður og breytir skyndilega um ákvörðun og sendir þess í stað bolt- ann til Steins markvarðar sem var allsendis óviðbúinn og þrátt fyrir góð tilþrif Steins rann boltinn óhindrað í markið. Hvað á að dæma? 2) Gústi er aftur á ferðinni undir lok leiksins. Hann nær boltanum eftir tæklingu við einn frramherja andstæðinganna utan eigin víta- teigs. Enn hyggst Gústi senda boltann til markvarðar - þeir em nefnilega góðir vinir - en tekst ekki betur til en svo að boltinn hafnar hjá andstæðingi sem var fyrir innan vömina og þakkaði sá kærlega fyrir sig og skoraði mark. Var sá sem skoraði rangstæður? Svör Magnúsar em þessi: Spurn- ing 1) Þar sem spyman er fram- kvæmd innan vítateigs skal hún endurtekin, hvort sem markvörður snertir boltann eður ei. Boltinn er ekki kominn í leik fyrr en utan víta- teigs. Framkvæmi Gústi spymuna aftur á móti utan vítateigs og mark- vörðurinn snertir boltann, sem síðan fer í markið, dæmist mark. Ef boltinn Magnús V. Pétursson millirikjadóm- ari, hefur sinnt dómgæslu 1. deildar í 30 ár. hins vegar rennur óhindrað í markið dæmist homspyma. Spuming 2) Markið er fullkomlega löglegt. Ef annars vegar framherji spymir boltanum inn fyrir vöm and- stæðinganna og boltinn snertir vamarmann á leiðinni og hafnar hjá sóknarmanni sem er einn og óvald- aður fyrir innan vömina þá er rangstaða. Þá vitum við það. Eftirminnilegt atvik, Magnús? „Það hefur margt eftirminnilegt skeð gegnum tíðina. En það atvik sem mér dettur svona fyrst í hug þessa stundina var þegar dómaratríó fór héðan til að dæma Evrópuleik í Glasgow. Leikurinn var milli Celtic og írska liðsins Highbumia. Einar Hjartarson dæmdi en við Valur Benediktsson vorum línuverðir. Það var þéttsetinn völlur, milli 60 og 70 þúsund áhorfendur. Þegar um það bil 30 mínútur vom liðnar af leiknum birtist allt í einu þessi líka gríðarstóri hundur, á stærð við meðalkálf, og kom hann skokk- andi til mín og fór að stjaka mér til. Ég verð að segja eins og er að mér leist síður en svo á blikuna því hvutti var ófrýnilegur með afbrigð- um og lét mjög illa. Utlitið var ekki gott því áhorfend- ur vora famir að fylgjast meira með mér og hundkvikindinu en leiknum. Að síðustu tók ég á mig rögg, vék mér að honum og sagði byrstur: „I am just a linesman, there is the re- feree,“ (Ég er bara aumur línuvörður - þessi þama er dómarinn) og benti ég með flagginu á Einar. Það var eins og Snati skildi þetta því hann tók á rás til Einars og þjarmaði hastarlega að honum og hljóp hringi í kringum hann og var ófrýnn mjög. Ég sárvorkenndi Ein- ari því staðan var erfið. Að lokum stóð Einar kyrr og mátti sig hvergi hræra því hundkálfurinn þrengdi sífellt hringinn. Ég sé endalokin ennþá ljóslifandi fyrir mér: Einar náfölur og flautaði meðan loft entist því skelfingin var svo mikil en nú stöðvaðist leikurinn. Lögreglumenn komu til skjalanna og handsömuðu ófriðarsegginn og þungu fargi var létt af vini mínum Einari sem fylgdi hersingunni út að hliðarlínu. Ég tók eftir að Einar var byrjaður að jafna sig því hann var þungur á brún þegar hann vísaði seppa burt af vellinum. Þessi uppákoma kostaði 10 mín. töf á leiknum og veitti Einari svo sannarlega ekki af þeim tíma til að ná sér eftir ósköpin. Endalokin urðu góð og við lukum okkar störfum með ágætum, held ég. En þessu atviki gleymi ég aldrei. -HH. 0-0 - Hann er i sérstöku uppáhaldi hjá þeim þessa stundina þvi hann beit nefnilega dómarann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.