Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Síða 44
>
Hafii þú ábendingu eða vitn-
eskju imt frétt - hringdu þá í
síma 687858.
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað i DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
Páll Pétursson
Framsoknarflokki:
„TVímælalaus
«fcraustsyTirlýsing‘ ‘
„Þetta eru mjög ótvíræðar niður-
stöður sem sýna að stjómin stendur
nokkuð vel. Fólk metur það við hana
hve vel hefur tekist í slagnum við verð-
bólguna og er greinilega ánægt með
breytt ástand í efnahagsmálum" sagði
Páll Pétursson í forsvari fyrir Fram-
sóknarflokkinn.
„Eg myndi telja þetta eðlilegt ástand
hja Framsókn og ber þessum niður-
stöðum saman við tölur um væntan-
legt fylgi í þingkosningum. Ég tel að
þetta sé tvímælalaus traustsyfirlýsing
á Framsóknarflokkinn og ríkisstjórn-
ina,“ sagði Páll. -S.Konn.
---- Kjartan Jóhannsson
Alþýðuflokki:
Efnahagsað-
stæðurhafaáhrif
„Ég geri ráð fyrir að þaö hafi ein-
hver áhrif á afstöðu fólks til ríkis-
stjómarínnar að ytri efnahagsaðstæð-
ur hafa batnað," sagði Kjartan
Jóhannsson, þingmaður Alþýðu-
flokksins, um niðurstöður könnunar-
acrí- .ipnar í DV í dag.
„Annars held ég að sveiflur í sjtoð-
anakönnunum gefi enga raunverulega
vísbendingu um nið'arstöður i kosn-
ingum, nema að slíkar kannanir séu
framkvæmdar rétt fyrir kosningar.
Fylgismunstrið getur breyst hvenær
sem er,“ sagði Kjartan. -KB
Olafur G. Einaisson
Sjálfstæðisflokki:
Hvatning
„Þessi niðurstaða er vottur um
stuðning fólksins við efnahagsstefriu
rikisstjórnarinnar sem innsigluð var
með kjarasamningunum fyrr á árinu,“
Igegir Ölafur G. Éinarsson, formaður
þingflpkks Sjálfstæðisflokksins, um
stóraukið fylgi við ríkisstjórnina í
skoðanakönnun DV.
„Þetta er stjórnarílokkunum hvatn-
ing til þess að hvika hvergi frá þeim
stefnumiðum sem fylgt hefur verið og
halda ótrauðir áfram við að hemja
verðbólguna." HERB
Geriö verösamanburö
og pantiö
Simi: 52866
LOKI
Hefði ekki verið þjóð-
legra að kveða rímur
í Bergen?
Viðbótarskattar og sektir á Þýsk-íslenska hf.:
Ónákvæmnin kost
aði 52 milljónir
Forstjóri þýsk-íslenska hf., Cmar
Kristjánsson, segir að miklir gallar
og ónákvæmni í bókhaldi fyrirtækis-
ins hafi nú kostað það nærri 52
milljóna króna viðbótarskatta og
skattsektir. Þar að auki segir hann
yfirvofandi sakadómsrannsókn
vegna málsins.
Harla óvenjulegt er að forráða-
maður fyrirtækis tilkynni með
þessum hætti rannsóknar- eða
ákærumál á hendiu því en ekki
rannsóknaraðilar. Ómar segir í til-
kynningu sinni að ríkisskattstjóra-
embættið hafi nú lagt á fyrirtæki
sitt viðbótargjöld með álögiun vegna
hækkunar á eignamati vörubirgða,
vantalinnar sölu og lækkunar á
kostnaði.
Viðbótarsöluskattur er 2.771.659
krónur, viðbótartekju- og eigna-
skattur og fleira er 36.052.834
krónur. Þá eru viðurlög og dráttar-
vextir 12.882.207 krónur, Sem fyrr
segir Ómar ástæðu þessa viðbótarút-
gjalda fyrirtækisins mikla galla og
ónákvæmni í bókhaldi sem stafi aft-
ur af verulegum erfiðleikum í
tölvumálum vegna mjög hraðs vaxt-
ar fyrirtækisins.
Þá segir í tilkynningu forstjóra
Þýsk-íslenska hf. að forráðamenn
fyrirtækisins hafi strax boðið fullt
samstarf við að komast til botns í
skattskilum þess svo unnt yrði að
leiðrétta þau. Þess vegna hafi tekist
að ljúka málinu á svo skömmum
tíma en aðeins fáir mánuðir eru síð-
an rannsókn hófst. HERB
Svona mun lcy-
hópurinn líta út á
sviði Grieg-hall-
arinnar í Bergen
í kvöld. Klæðn-
aðurinn hefur
vakið mikla at-
hygli og þykir
smart. I þessu
gervi er vonast
til að Pálmi, Ei-
ríkur og Helga
syngi Gleðiban-
kann inn í hjörtu
dómenda ogfæri
íslendingum sig-
ur í keppninni.
-KB
DV-símamynd GVA
Nánar er fjallað um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva i blaðauka
á bls. 21-24 og bls. 3.
Meirihluti ríkis-
stjómarinnar eykst
- sjá niðurstöður skoðanakönnunar DV á bls. 4
Veðrið um helgina
Norðanátt-
in alls-
ráðandi
Um helgina verður norðanátt ríkj-
andi á landinu. Norðanlands verða
él og dálítið frost. Sunnanlands verð-
ur þurrt og víða léttskýjað. Hiti
verður 4 til 6 stig að deginum.
Á Austfjörðum verður léttskýjað,
þurrt og vægt frost. Á norðanverðum
Vestfjörðum má búast við éljagangi
og nokkru frosti. Vestanlands verð-
ur léttskýjað, þurrt og hiti væntan-
lega yfir frostmarki.
Landsmenn verða því að bíða enn
um sinn eftir sumrinu.
Sigriður Dúna
Kristmundsdóttir
Kvennalista:
Ríkisstjóm
upp á punt?
„Mér er nær að halda að þessi fylgis-
aukning stjómarinnar sé vegna þess
að hún hefúr bókstaflega ekkert gert
í vetur. Hennar stærstu verk vora að
taka við víðtækum efnahagstillögum
frá aðilum vinnumarkaðarins þegj-
andi og hljóðalaust og ef það er það
sem fylgisaukningunni veldur þá er
þetta auðvitað ekkert annað en van-
traustsyfirlýsing á ríkisstjómina og
traustsyfirlýsing á aðila vinnumark-
aðarins.
Kannski er fólk að segja með þessu
að það vilji helst hafa ríkisstjóm sem
er bara upp á punt - eða þá, og mér
finnst það nú sennilegra, að þessi rík-
isstjóm sér best á meðan hún gerir sem
minnst." -baj
Helgi Seljan
Alþýðubandalagi:
Kemur á óvart
„Mér kemur þetta aukna fylgi við
ríkisstjórnina á óvart, en kannski er
það vegna þess að fólk hefur talið rík-
isstjómina komast í gegnum samning-
ana án þess að átta sig á því að þeir
vom færðir í hendur hennar. Samn-
ingarnir vom ekki hennar verk nema
að takmörkuðu leyti,“ sagði Helgi
Seljan, þingmaður Alþýðubandalags-
ins, um niðurstöður könnunarinnar í
blaðinu í dag.
„En prófraun ríkisstjómarinnar er
eftir, hvemig og hvort hún stendur
við gefin loforð. Maður spyr að leiks-
lokum.
Annars tek ég svona skoðanakönn-
unum með mikilli varúð,“ sagði Helgi
Seljan. -KB
Kolbrún Jónsdóttir, BJ:
Róttækar breyt-
ingar til var-
anlegs árangurs
„Svo virðist sem þessi niðurstaða
bendi til þess að fólk hafi tiltrú á að-
gerðum ríkisstjórnarinnar í kjölfar
nýgerðra kjarasamninga auk þess sem
hagstæðari afkoma þjóðarbúsins út á
við vegna aukins afla og lækkunar
olíu- og bensínverðs á heimsmarkaði
auki á bjartsýni fólks og tiltrú á ríkis-
stjómina. Bandalag jafnaðarmanna
telur að til þess að varanlegur árangur
náist þurfi að gera róttækar breyting-
ar í stjómsýslu-, efnahags- og kjara-
málum.
Athyglisvert er hve þeim fjölgar sem
svara ekki.“ -baj
Bensín-
lækkun
Bensínlítrinn Iækkaði í gær úr 30
krónum í 28 krónur. Bensín hefur þá
lækkað um 7 krónur, eða 20% frá ára-
mótum. Bensínbirgðir eru nú til í
landinu til næstu fjögurra mánaða.
Þessar birgðir voru keyptar í mars og
apríl á mjög hagstæðu verði, eða 129
dollara hvert tonn. Olíufélögin nýttu
sér hið lága verð til að kaupa meira
magn en venja er til.
Undanfama daga héfur innkaups-
verð á bensíni hækkað og er nú 152
dollarar hvert tonn.
Þess má geta að innkaupsverðið fór
í 210 dollara í upphafi ársins. -JH