Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Page 6
50
DV. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986.
Vísnaþáttur Vísnaþáttur Vísnaþáttur Vísnaþáttur
Dropar þessa dánumanns ...
10.
Heilir og sælir, lesendur góðir.
Þegar Jón Ólafsson skáld og rit-
stjóri gaf út ljóð Páls Ólafssonar
bróður síns kvað Páll:
Heyjum birgur er ég af
illa, því er miður,
það hirtist valla hálíþurrkað
sem hér var slegið niður.
Ljótur var nú líkaminn
og lítið á a<5 græða
en aftur sálar andstyggðin
afbragðs djöflafæða.
Um heimilislífið hjá séra Halld-
óri mági sínum kvað Páll (en hann
dvaldi þar nokkur ár):
Heldur þunglyndislega finnst
mér Ásgeir P. Hraundal hafa kveð-
ið er hann gerði eftirfarandi vísu:
Þá var mikill þjóðarkurr,
þjóðskáld varð að flóni,
þegar Páll var prentaður
á pappírinn frá Jóni.
Hér er rifíst hvíldarlaust
svo hófí engu nemur,
vetur, sumar, vor og-haust
og verst ef einhver kemur.
Er mín gleði ekki nein,
öll fer gæfa í parta,
því nú er slitin ein og ein
æð frá mínu hjarta.
Ekki veit ég hvort allir eru sam-
mála eftirfarandi vísu Sveinbjarn-
ar Beinteinssonar allsherjargoða á
Draghálsi en góð er hún:
Veldur grandi glæpastrikið,
grimmur vandi hefst á ný.
Okkar land er selt og svikið,
sólgnir fjandar ráða því.
Næsta vísa Sveinbjarnar er
vafalaust ort á harðinda- og hey-
leysisvori.
ásjár nokkurrar en Stefán brugðist
illa við og Sigurður þá kveðið þessa
vísu.
Persónulega finnst mér vísan
minna talsvert á kveðskap Sigurð-
ar og eitt er víst að vísur hans flugu
um land allt.
Maður nokkur að nafni Guð-
mundur var grunaður um kynvillu.
Eitt sinn var hann fánaberi fyrir
skrúðgöngu góðtemplara og þá var
kveðið:
Um Ágúst Jónsson smáskamm-
talækni á Ljótsstöðum í Vopnafirði
kvað Páll:
Ágúst fer til andskotans,
yfír þessu hlakka má.
Dropar þessa djöfuls manns
drepa hvern sem smakkar þá.
Ágústi barst vísan til eyma og
nokkru síðar hitti hann Pál í kaup-
staðarferð á Vopnafirði. Vék Ágúst
með hægð að þóknuninni sem hann
hefði fengið fyrir meðulin. Páll
spurði hvað hann hefði út á vísuna
að setja og fór með hana þannig:
Ágúst fer til englaranns,
yfír þessu fagna má.
Dropar þessa dánumanns
duga þeim sem bragða þá.
Heyfeng sínum eitthvert haustið
lýsir Páll á þessa leið:
Um Gísla Wíum kvað Páll:
Frá honum heimskan flýgur
mörg,
fleiri en spörð í kvíum.
Illa fór að Ingihjörg
átti hann Gísla Wíum.
Til Bjarna bónda á Kollaleiru
kvað Páll þessa lítt fögru vísu:
Gakk þú, Bjarni, lagða leið
lífs og dauður góðs á mis.
Andskotinn þér skelli á skeið
og skili þér til helvítis.
Þegar Jón rauði drukknaði orti
Páll:
Jakob Aþanasíusson átti heima
í Tungumúla á Barðaströnd. Þá bjó
í Haga á Barðaströnd Jón Guð-
mundsson en um konu hans,
Valgerði, kvað Jakob:
Henni lag er ekkert á,
öll til baga snúin,
alla daga geltir grá
guðlaus Haga frúin.
Magnús Vigfússon kvað eftir-
farandi náttúrulífs- og náttúrulýs-
ingar:
Upp við vorsins væra hljóm
vakna blóm á túnum,
fuglar sínum sæta róm
syngja á fjalla brúnum.
Rauði Jón I saltan sjó
sagður er nú dottinn.
Þarna fékk þó fjarídinn nóg
I fyrsta sinn I pottinn.
Blómin anga, brosir hlíð,
blær um vanga strýkur
sólin dranga signir blíð,
sær um tanga rýkur.
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnan/ands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt i gangi á markaöstorginu.
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þúhringir...27022 Við birtum... Þaö berárangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Oplð:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00—14.00
sunnudaga. 18.00—22.00
Frjálst,óháö dagblaö
ER SMÁAUGLÝSINGABLADID
Mikið gat ég aflað ei,
eign ég glata minni,
nú á latur lítið hey,
löngum sat ég inni.
Gvendur undan Gútta-her
gekk og bar sinn klafa
af því hann á eftir sér
enginn vildi hafa.
Næstu þrjár vísur eru einnig eft-
ir Sveinbjörn:
Gekk ég þar um grænan völl,
góður var sá fundur.
Nú er farin ástin öll,
eins og barinn hundur.
Ekki veit ég hver orti næstu vísu
en hún mun vera frá þeim tímum
er breska hernámsliðið var hér:
Áður var ég engum háð,
æskurjóð og fögur,
en nú er ég orðin Breta bráð,
barnshafandi og mögur.
Er í hverfullt syndasukkið
sóttur skerfur táls,
þar senn erfí út er drukkið
alls þess gerviprjáls.
Ærið grett með illsku-raus
út eru sett til breka
full af prettum prýðislaus,
Páll og slettireka.
Hildur Benediktsdóttir í Mý-
vatnssveit skrifaði mér og segir að
vísan:
Það er dauði og djöfuls nauð
að dyggðasnauðir fantar
safna auð með augun rauð
þá aðra brauðið vantar.
sé eftir Davíð Jónsson (Nála-
Davíð) og vitnar máli sínu til
stuðnings í grein í 5. tölublaði
Heima er best 1963 eftir Sigurð
Björnsson á Kvískerjum og er vís-
an þar talin ort 1804.
Þær upplýsingar, sem ég hafði,
eru „Vísnatíningur eftir Jón Thor-
oddsen, Landsbókasafn (2093, 8vo).
Þar er hún sögð eftir Ólaf Briem á
Grund, en í „Eg skal kveða við þig
vel“, Landsbókasafninu, eftir upp-
haflegu handriti Brynjólfs stúdents
Bogasonar í Flatey, er vísan sögð
eftir Sigurð Breiðfjörð og ort um
Stefán Eiríksson, bróður Sigurðar.
Hafði Sigurður beðið bróður sinn
Sá orðrómur gekk á hernámsár-
unum að hermennirnir renndu ekki
bara hýru auga til kvenna heldur
lifðu þeir líka ástalífi með kúnum
ef þeir sæju sér færi. Um þetta
kvað Þorsteinn Jónsson frá Gil-
haga:
Stórum hafa stofninn bætt
strákar af bresku kyni,
kálfar og börn af aðalsætt
eru hálfsystkini.
Eftir hverja fýluferð
fötin þarf að viðra,
hún er alveg undraverð
Englaveiðin syðra.
Eftir að búið var að stofna lýð-
veldi 1944 og Kaninn tekinn við
af Bretum kvað Jónas Jóhannsson
bóndi í Öxney:
íslands meyjar eignast jóð
undan svörtum Könum.
Síðan við urðum sjálfstæð þjóð
sinna þær ekki Dönum.
Jónas Jónasson frá Torfumýri
kvað þessa góðu hringhendu:
Sólin þaggar þoku grát,
þerrar saggans úða,
fjólan vaggar kolli kát,
klædd úr daggar skrúða.
Verið þið sæl að sinni. Stefán Jó-
hannesson, Kleifum.
Tónlistarkennari
- organisti
Tónlistaraskóla Ólafsvíkur og Ólafsvíkurkirkju vantar
tónlistarkennara og organista til starfa á komandi
vetri, æskilegt er aö umsækjandi geti kennt á fleira
en eitt hljóðfæri.
Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofu Ólafsvíkur í síma
93-6153.
Bæjarstjóri.
Mjólkurframleiðendur
• Nýir og uppgerðir mjólkurtankar í öllum stærðum.
• Mjaltavélakerfi
• Rafdrifnir/handsnúnir smjörstrokkar
• Rafdrifnar/handsnúnar skilvindur
• Örugg þjónusta, leitið upplýsinga
Ágúst Schram, heildverslun
Tryggvagötu 17 (Hafnarhúsinu)
S. 622850. Kvöld/helgar s. 40947