Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986.
61
Sérstæð sakamál - Sérstæð sakamál
Búgarður svipaður á stærð og sá sem markgreifafrúin af Downshire átti nærri Ombersley.
Frá hengingu.
vörðun að leita til lögreglunnar í
London og voru kvaddir til menn frá
Bowstræti. Tveir mjög hæfir lög-
reglumenn, Harry Adkins og Sam
Taunton, voru sendir til Stourbridge
þar sem þeir hófust þegar handa um
yfirheyrslur. Varð brátt ljóst að mað-
urinn í skinnvestinu var sá sem finna
þyrfti. Brátt tókst og að upplýsa að
hann hét William Howe og skömmu
síðar héldu lögreglumennirnir til
Ombersley til þess að handtaka hann
en er þeir komu þangað fréttu þeir
að Howe hefði tekið saman föggur
sínar og væri farinn.
Tveir trékassar
Leynilögreglumennirnir héldu
áfram rannsókninni í Ombersley og
komust þá að því að 21. desember
hafði maður sem líktist mjög Howe
en sagst hafði heita John Wood látið
senda tvo trékassa til gistihússins
Castle and Falcon í Aldersgatestræti
í London. Kvað hann þá myndu
verða sótta þangað.
Adkins og Taunton héldu nú til
London. Var þá ljóst að maðurinn,
sem þeir voru á eftir, hafði farið með
leiguvagni til Worcester og síðan
áfram til Warwick en þaðan hafði
hann svo farið með venjulegum far-
þegavagni til London.
Lögreglumennirnir voru hins veg-
ar of seinir því að þegar þeir komu
til London var búið að sækja kassana
í gistihúsið. Það upplýstist hins veg-
ar að farið hafði verið með þá í
leiguhúsnæði við Rose Alley,
skammt frá Bishopsgatestræti.
Byssa finnst
Kassarnir reyndust vera í herbergi
„herra Wood“ í þessu húsi. Er þeir
voru opnaðir komu fyrst í ljós alls
konar smíðatæki er. svo fannst
skammbyssa, púður og þrjár kúlur.
Var vopnið vafið innan í skinnvesti.
Nú biðu lögreglumennirnir aðeins
eftir því að ná „herra Wood“ en hann
hafði ekki verið í herbergi sínu er
þeir komu í það. „John Wood“ fór
hins vegar mjög varlega. Hann gætti
þess að fara sparlega með fé á krám
og í spilastofum og forðaðist að koma
í herbergi sitt. Þolinmæði Adkins og
Taunton bar þó ávöxt því að á fjórða
degi birtist maðurinn sem þeir biðu.
Var hann þegar í stað handtekinn
og fluttur til Stourbridge.
„Wood“ reyndist vera Howe
Er „John Wood“ var látinn koma
fyrir lögreglufulltrúa í Stourbridge
játaði hann að hafa verið í bænum
er Robins var skotinn en neitaði að
vera nokkuð við málið riðinn. „Ég
er alsaklaus,“ sagði hann. Það var
hins vegar ljóst að rétt nafn manns-
ins var William Howe og var hann
nú sendur í Staffordfangelsið þar sem
hann skyldi bíða þess að vera leiddur
fyrir rétt. Það var hins vegar fylgst
afar vel með honum þar og sú ráð-
stöfun reynist verða árangursrík. í
síðustu viku í febrúar 1813 kom síð-
ari kona hans í heimsókn til hans.
Leynilegt bréf
Á meðan Howe var að ræða við
konuna laumaði hann til hennar
bréfi. Athugull vörður kom hins veg-
ar auga á það og var leitað á konunni
áður en hún fékk að fara.
í bréfinu bað Howe hana að leita
í hlöðu næiri Stourbridge. Var þegar
leitað í henni og fannst þá skamm-
byssa sem svaraði nákvæmlega til
þeirrar sem fundist hafði í London.
Howe neitaði hins vegar stöðugt allri
sekt og þannig stóð málið er hann
kom fyrir Bayley dómara í réttinum
í Stafford 16. mars 1813. Sækjandi
var herra Jarvis en verjandi herra
Campell. Hann fékk þó litlum vörn-
um við komið, því að ákæruvaldið
hafði undirbúið málsóknina vel og
var það ekki síst að þakka Adkins
og Taunton.
Hættulegur vitnisburður
Howe virtist rólegur framan af en
svo fölnaði hann er gráhærður, eldri
maður var leiddur í vitnastúkuna.
Hann hét Powers og rak veðlána-
skrifstofu í Warwick. Lýsti Powers
yfir því að Howe væri maðurinn sem
hefði komið til sín 21. desember til
þess að veðsetja úr sem var með árit-
un og reyndist hafa verið í eigu
Benjamíns Robins.
Úrskurður kviðdóms
Það tók kviðdómendur aðeins sjö
mínútur að komast að niðurstöðu.
Howe var fundinn sekur og skyldi
hann hengdur. Og aftakan fór svo
fram þriðjudaginn 18. mars 1813 í
Stafford. Howe viðurkenndi hins
vegar sekt sína rétt áður en hann
var tekinn af lífi. Á þessum tíma giltu
allt aðrar reglur um meðferð líka
manna sem teknir voru af lífi en nú
og því var farið með líkið af Howe
til Fir Treehæðar þar sem það var
látið hanga uppi öðrum til viðvör-
unar. Síðar voru svo gróðursett tré
á hæðinni og henni gefið nafnið
Gibbet Wood.
Sögur um draugagang
1903 fannst beinagrind með ryðg-
uðum hníf í rétt við staðinn þar sem
lík Howe hafði verið látið hanga
uppi og nokkru síðar fóru að heyrast
sögur um draugagang við Gibbetveg
en svo heitir vegurinn yfir hæðina.
Skömmu fyrir árið 1950 var kona á
gangi þarna i tunglsljósi er hún varð
vör við að maður gekk á eftir henni.
Hann tók mjög löng skref og fór hratt
yfir en allt í einu gerði konan sér
grein fyrir því að ekkert heyrðist
þegar hann gekk. Þá féll enginn
skuggi af honum á jörðina þrátt fyr-
ir tunglskinið. Þegar hún virti hann
svo nánar fyrir sér sá hún að hálsinn
sýndist ótrúlega langur og mjór og
virtist höfuðið sveiflast til beggja
hliða. Er maðurinn kom að staðnum
þar sem lík William Howe hafði ver-
ið látið hanga uppi hvarf hann
skyndilega.
Margir forðast Gibbetveg á kvöld-
in.
RENNISMIÐUR
Óskum að ráða rennismið hið fyrsta. Upplýsingar veit-
ir Magnús Nikulásson verkstæðisformaður.
Vegagerð ríkisins
Borgartúni 5
105 Reykjavík
LOPI - LOPI
Þriggja þráða plötulopi, 10 sauðalitir, að auki rauðir,
bláir og grænir litir. Opið frá kl. 8-5 mánudaga-föstu-
daga og laugardaga kl. 10-12. Sendum í póstkröfu
um landið.
ULLARVINNSLAN LOPI SF.,
Súðarvogi 4,
104 Reykjavík.
Sími 30581.
Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra auglýsir laust til
umsóknar starf iðnráðgjafa á Norðurlandi vestra.
Allar nánari upplýsingar veitir núverandi iðnráðgjafi í
síma 95-4181 eða á skrifstofu sinni, Hnjúkabyggð
33, Blönduósi. Umsóknir berist Iðnþróunarfélaginu
fyrir 6. júní nk.
Stjórn INVEST.
Námsstyrkur við
Minnesotaháskóla
Samkvæmt samningi Háskóla Islands við Minnesota-
háskóla (University of Minnesota) er veittur styrkur
til eins íslensks námsmanns á ári hverju. Styrkurinn
nemur skólagjöldum og dvalarkostnaði. Nemendur,
sem lokið hafa prófi frá Háskóla islands, ganga fyrir,
en jafnframt þurfa þeir að hafa fengið inngöngu við
skólann.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu rektors. Umsókn-
um skal skilað þangað fyrir 1. júní nk. Nánari upplýs-
ingar fást hjá námsráðgjafa.
Háskóli íslands
Seljum í dag
Saab 99 GL árg. 1982, 2{a dyra, sil-
ver, beinskiptur, 4ra gíra, ekinn 65
þús. km, sumar- og vetrardekk.
Verð kr. 270 þús.
Saab 99 GL árg. 1979, 2|a dyra,
gulur, beinskiptur, 4ra gira, ekinn
114 þús. km. Mjög fallegur. Verð
kr. 180 þús.
Lancia A 112 árg. 1983, 3ja dyra,
rauður, beinskiptur, 4ra gíra, ekinn
aðeins 21 þús. km, útvarp og kass-
ettutæki, sumar- og vetrardekk. Bíll
i algerum sérflokki. Verð kr. 170
þús.
Saab 900 GLS árg. 1982, 4ra dyra,
dökkblár, sjálfskiptur, ekinn aðeins
46 þús. km. Góður bill. Verð kr. 335
þús.
Opið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opnunartíma.
TÖGGUR HF.
UMBOÐ FYFUR SAAB OG SEAT
Bíldshöfða 16, símar 681530 - 83104.