Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Page 11
DV. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986. 55 Súluungar, allstálpaðir en ófleygir. Þeir verða yrjóttir þegar þeir fella hvita ungadúninn. Brandugglan - sem heyrir fugla best. tjaldinu, reistu ofan á álsúlum upp með kletti - og þarna var fjöl- skyldan að gæða sér á rjúpu. Ungarnir voru blóðugir um gogg- inn. Fálkinn hefur það þannig að karlfuglinn veiðir en það er kven- fuglinn sem matar ungana. Karlfuglinn kemur ekki í hreiðr- ið, hann leggur bráðina frá sér álengdar. Og þannig var það í þetta skipti. Karlfuglinn kom með nýja rjúpu, gaf frá sér kallmerki og kvenfuglinn og ungarnir litu upp. Ég smellti af.“ Það er rétt að taka það fram að hafórn, fálka, haftyrðil og snæ- uglu er bannað að mynda hér á landi án sérstaks leyfis ffá menntamálaráðuneytinu. Og Hjálmar R. Bárðarson hefur haft slíkt leyfi til að mynda í bók sína. Fuglar Islands er ekki bara ljós- myndabók. Hún skiptist í íjórtán meginkafla og er tileinkuð dr. Finni heitnum Guðmundssyni fuglafræðingi. í upphafi stóð til að þeir ffændur, Hjálmar og Finnur, ynnu saman að bókinni - og höfðu hafið vissan undir- búning þegar Finnur veiktist. En hann hvatti Hjálmar til verksins og veitti honum frjálsan aðgang að sínum rituðu heimildum um fugla. Þannig hefur Hjálmar stuðst við texta dr. Finns - og tileinkar honum verkið. I bókinni eru um 500 ljósmynd- ir, teikningar og kort, þar af 392 litmyndir. Auk megintexta eru myndirnar og viðamikill mynda- texti, sem þeim fylgir. mjög fræðandi fyrir alla þá sem áhuga hafa á að kynnast íslenskum fugl- um. atferli þeirra og umhveríí. Bókin er komin út á ensku. auk íslensku - og er væntanleg á dönsku, þvsku og frönsku. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.