Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986.
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Sætur sig-
ur hjá
Framsókn?
Það er engu líkara en að framsókn-
armenn búist við sætum sigri í kosn-
ingunum því á kosningaskrifstofu
þeirra má sjá á hverju borði barmafull-
ar skálar af sælgæti: konfekti, sleikip-
innum, lakkrís og myndarlegum
bolsíum.
„Það er auðvitað skemmtilegra að
hafa eitthvað að bjóða upp á með kaff-
inu,“ segir Sigrún Sturludóttir kosn-
ingastjóri þegar hún er spurð um
tilvist þessa sælgætis. Skýringin kem-
ur reyndar skömmu seinna. Dyggur
og trúr framsóknarmaður og sælgætis-
innflytjandi hefur lagt sitt af mörkum
í kosningasjóðinn.
I öllum herbergjum er fólk að vinna
bæði til vinstri og hægri og sumir á
hlaupum eftir miðjum ganginum.
„Hingað koma margir til að bjóða
fram aðstoð sína eða til að ræða það
sem er að gerast. Við erum nefnilega
á hraðri uppleið þó allir vilji þurrka
okkur út,“ segir Sigrún. Hún er ein-
mitt að undirbúa opið hús. Þangað á
að bjóða þeim er flutt hafa til Reykja-
víkur utan af landsbyggðinni. Þar
mun Diddú syngja og Jóhannes Kristj-
ánsson eftirherma leika kúnstir sínar.
Án efa mun hann bregða sér í gervi
hins vinsæla leiðtoga, Steingríms Her-
mannssonar.
„Þetta allt kostar auðvitað sitt þó
að kosningabaráttan hjá henni Brynd-
ísi kosti ekki neitt. Við reynum þó að
vera mjög hófsöm í útgjöldum og ætl-
um okkur ekki að skilja eftir okkur
langan skuldahala. Við sníðum okkur
stakk eftir vexti,“ segir Sigrún.
I einu herberginu rekumst við á
Halldór E. Sigurðsson, fyrrverandi
Gamla kempan, Halldór E., leggur sitt af mörkum í kosningabaráttunni. Kosningastjórinn, Sigrún Sturludóttir,
fylgist með og Sólveig Hjörvar flettir upp í kosningabiblíunni, götuskránni.
DV-mynd GVA
ráðherra flokksins, og Sólveigu Hjör- snýst allt um að ná í atkvæði. Tvö Halldór E. og mælir víst af reynslu.
var. Þau eru önnum kafin. „Þetta atkvæði geta skipt öllu máli,“ segir -APH
Gunnlaugur Sævar kosningastjóri ásamt Maren, Guðrunu og Petreu, sem eru að leggja seinustu hönd á flokkun seldra
og óseldra happdrættismiða. DV-mynd GVA
„Stóra mynd
af Davíð“
Á kosningaskrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins var allt í fullum gangi er
DV-menn bar að að garði. Sigurbjöm
Magnússon, framkvæmdastjóri þing-
flokksins, og Bjöm Bjömsson, fyrrum
meðlimur í Savanna-tríóinu, vom
önnum kafnir við að skipuleggja útlit
fúndarins á Lækjartorgi. Ýmsar hug-
myndir vori viðraðar.
„Ætli við höfum ekki stóra mynd af
Davíð fyrir framan Útvegsbankann,
svo fundarmenn séu ekki að hugsa um
þann banka meðan á fundinum stend-
ur,“ segir Bjöm og hlær hátt.
Næst liggur leiðin til kosningastjór-
ans, Gunnlaugs Sævars Gunnlaugs-
sonar. „Við erum hæfilega bjartsýnir
en þurfum að vinna hörðum höndum
fyrir þessu. Það er ekkert gefið í þess-
um efnum,“ segir kosningastjórinn.
Hann upplýsir okkur jafhframt um
að starfandi séu einar átta kosninga-
skrifstofur á vegum flokksins. Þaðan
sé stjómað dreifingu bæklinga og þess
háttar. Dagurinn hjá honum hefst
kfukkan átta. Þá koma saman 19 efstu
frambjóðendur ásamt honum og leggja
á ráðin fyrir daginn. Sá háttur hefúr
verið hafður á allan þennan mánuð.
,Jú, auðvitað er þetta fjárfrekt. Það
liggja engar tölur fyrir um hvað kosn-
ingabaráttan kostar. Við höfum m.a.
staðið fyrir happdrætti til að standa
straum af kostnaðinum," segir Gunn-
laugur.
í næsta herbergi er einmitt verið að
flokka happdrættismiða niður, því
dráttur er á næsta leiti. Þrír bílar og
utanlandsferðir em í boði og aðeins
er dregið úr seldum miðum. .^pjj
Fullt hús
af konum
Á kosningaskrifstofú Kvennalistans
em bara konur eins og gefúr að skilja.
Og með komu okkar hafa hin hefð-
bundnu hlutfoll snúist við; tveir karlar
á móti fjölda kvenna.
Kosningastýran, Kristín Ámadóttir,
viðurkennir að þama sé ekki mikill
vinnufriður. „ N/ið gerum okkar kosn-
ingabaráttu aðallega út á götur, torg
og vinnustaðafundi," segir hún.
„Við gefúm ekki upp, að svo stöddu,
hvað kosningabaráttan kostar.
Reyndar hefúr fjárhagsáætlun okkar
farið úr böndunum, en því verður
kippt í liðinn. Við reynum að fjár-
magna þetta með happdrætti, merkja-
sölu og einnig höfum við selt hollt
sælgæti. Svo hafa tínst hingað inn
eldri menn sem lagt hafa fé í kosninga-
sjóðinn. Þeir sjá okkur líklega í réttu
ljósi og em komnir yfir stressaldur-
inn,“ segir Kristín og hlær.
Hún segir okkur einnig frá því að
Kvennalistinn sé eini flokkurinn sem
gefið hafi út stefnuskrá og er stolt af
því. „ Við byggjum okkar baráttu á
ákveðinni hugmyndafræði en ekki
einstökum rnálum."
Kvennalistakonur hafa haft nóg að
gera undanfarið og ættu 50 til 60
vinnustaðafundir að gefa vísbendingu
um það. Og fram að kosningum verður
áfram nóg að gera.
„Við munum halda áfram að vera
sýnilegar meðal fólksins og á laugar-
daginn verður hér opið hús,“ segir
kosningastýran.
-APH
Kosningabaráttan í algleymingi. Kristín Arnadóttir i símanum og Kristín Jónsdóttir flettir stefnuskránni. Fyrir aftan þær
má sjá Helgu, Guðrúnu og Magdalenu.
DV-mynd GVA