Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál „Eygi mögu- leika á að lyfta glasi“ A-listinn, góðan daginn. Jú, jú, við getum sótt þig þó að þú sért í hjóla- stól.“ Það er Jóhannes Guðmundsson, kosningastjóri Alþýðuflokksins, sem er að tala í símann, greinilega við væntanlegan kjósanda. „Frjálshyggjusteíinan er dauða- dæmd. Ég er hneyksluð á því fólki sem styður jafnaðarstefnuna en kýs svo Sjálfstæðisflokkinn. Það er ekkert sniðugt því jafnaðarstefnan næst ekki fram með því,“ heyrist úr einu homi kosningaskrifstofúnnar þar sem hópur fólks er að raða saman kosningabækl- ingum. Annar dyggur stuðningsmaður hef- ur þetta að segja og á greinilega von á góðum árangri í kosningunum: „Þetta er í fyrsta sinn sem ég eygi möguleika á að lyfta glasi.“ Hann sér fram á annasaman kjördag en er samt staðráðinn í að horfa á fótboltann. Og nú er kosningastjórinn laus úr símanum. „Það er ljóst að þessi bar- átta kostar peninga, en ekki svo mikið miðað við áður. Við höfúm aðeins gef- ið út einn bækling og eitt borgarblað, sem stóð undir sér sjálft. Síðan hefur Alþýðublaðið gefið út nokkur kosn- ingablöð," segir kosningastjórinn. Hann segir að útvarpsstöðin sé fyrir utan þetta og það kosti reyndar ekki Jóhannes kosningastjóri og Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir frambjóðandi bera saman bækur sínar. DV-mync! GVA mikið að reka hana. Aðaldrifijöðrin segir hann að sé Amundi Ámundason, óþrjótandi hugmyndalind á þessu við íjármögnun kosningabaráttunnar sem að sögn Bryndísar Schram er sviði. -APH Júlíus Valdimarsson og Hildur Tómasdóttir tara yfir stundartöflu kosningarbaráttunnar. DV-mynd GVA „Aksjón út um allan bæ“ „Hér er allt á fúllu, aksjón út um allan bæ,“ sagði Júlíus Valdimarsson, frambjóðandi Flokks mannsins og í öðru sæti listans, er DV-menn bar að garði á kosingaskrifstofu flokksins. „Við höfum gefið út bæklinga, ekið um á hátalarabíl, haldið götufúndi og fjóra til fimm vinnustaðafundi á dag. Þetta er fyrsta kosningabaráttan sem Flokkur mannsins stendur í. Þrjár skrifstofur eru opnai' daglega og að sögn Júlíusar starfa að jafnaði 30 til 40 manns í sjálfboðastarfi fynr flokk- irrn. Hann viðurkennir að það fari miklir peningar í kosningabaráttuna. Til að lækka þennan kostnað bera félagar í flokknum sjálfir út öll dreifibréfin. „Við höfúm ekki efni á að dreifa þeim gegnum póstinn. Kostnaðurinn við að dreifa þannig er um 160 þúsund krónur. Það er erfitt að segja hvað þessi barátta kostar hjá okkur en lág- mark er einhvers staðar milli 100 og 200 þúsund kr. Allur herkostnaðurinn kemur frá flokksfélögum, almenningi og svo hafa nokkur fyrirtæki stutt okkur,“ segir Júlíus. Hann segir að flokkurinn hafi lagt mesta áherslu á vinnustaðafúndi og í dag ætli þeir að vera með útifund á Lækjartorgi. Einnig hafa þeir haldið fundi úti í hverfunum undir berum himni, til dæmis í Breiðholti þar sem íbúar komu út á svalir og hlýddu á boðskapinn. -APH Barátta upp á eina milljón „Þetta er barátta um fjórða mann okkar og tíunda mann íhaldsins," seg- ir Steinar Harðarson, kosningastjóri Alþýðubandalagsins, am leið og hann heilsar DV-mönnum. Hann er í miðju kafi við að undirbúa fúnd sem á að vera í Háskólabíói um kvöldið. „Það hefúr verið mikill erill héma. Hingað koma margir, sérstaklega eftir vinnu á daginn. (Síminn hringir: „Nei, Sigurjón er ekki héma. Hann er niðri á Lækjartorgi.") Við höfum lagt mikla áherslu á vinnustaðafundi í þessari kosningabaráttu og einnig fundi úti á götu til að ná beinu sambandi við kjós- endur. Það er mikilvægt að ná til fólksins þegar ríkisfjölmiðlarnir skýra ekki frá augljósum spillingarmálum sem við höfúm bent á,“ segir Steinar. Hann upplýsir okkur einnig um að mikið hafi verið gefið út af bæklingum og merkjum og svo hafi Þjóðviljinn gefið út tvö kosningablöð. „Kosningabaráttan kostar ekki und- ir milljón, það er klárt. Við reynum að fjármagna þetta með frjálsum ffam- lögum og svo happdrætti." -APH DV-mynd GVA LEÐURSÓFASETT Vörunarhaðurinn hl. Svart eða grátt, 3ja sæta sófi og tveir stólar. Útborgun 8.500,- eftirstöðvar á 6 mánuðum. húsgagnadeild sími 686112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.