Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 25
DV. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986.
41 *
Menning Menning,Menning
Eitt
Iftið
lauf
Baltasar - Fyrir mjólk mennskrar góðvildar, teikning, 1985.
Á sýningu Baltasars, Fimm þemu,
sem nú stendur yfir í Galleríi Gang-
skör, eru aðeins 26 teikningar, flestar
í svart/hvítu og/eða grátónum, flestar
af einfoldum fyrirbærum á heimilinu
eða úti í náttúrunni.
En þótt sýningin sé lítil (og kannski
þess vegna) hefur Baltasar sjaldan
verið í betra formi. Eins og margir
Katalóníumenn er hann í eðli sínu
harðsnúinn raunsæismaður með of-
vaxið ímyndunarafl og list hans hefur
gengið út á það að samræma þetta
tvennt af sinni alkunnu verkkunnáttu.
Sjálíúm finnst mér raunsæið fara
Baltasar betur en ærslafengnar hugd-
ettumar, sérstaklega þegar hann hefur
einfalt mótíf að glíma við eins og hér,
mjólkurbrúsa, sprek, eitt lítið lauf. En
hið fábrotna stef opnar iðulega mögu-
leika til frekari spuna, eins og í tónlist,
þegar undirstef eru pijónuð við megin-
stef. Þar nýtur sín frjósemi Baltasars,
tæknileg leikni hans og glettni.
Gamlir brúkshlutir, amboðin, halda
sér eins og þeir eru, en listamaðurinn
sveipar þá óræðri birtu, þannig að
þeir virðast önnur og meiri en þeir
eru. Þeir virðast búa yfir einhverri
leynd sem okkur er ekki ætlað að ráða,
en ertir okkur þó stöðugt.
Tilbrigði Baltasars um laufblað gefa
einnig mikið af sér. Við sjáum lauf að
hausti, nýsprottin lauf, lauf sem eigna
sér myndflötinn, lauf sem ríma við
form líkamans. Möguleikamir virðast
óendanlegir.
Teikningar af sprekum og hestum
em hins vegar opnari í forminu, en
smæð þeirra gefur þeim innilegt yfir-
bragð sem þau hafa fram yfir mörg
stærri málverk listamannsins með
sama útgangspunkti.
„Ecce homo“ myndir Baltasars ættu
eiginlega að kallast „Ad hominem".
Þetta em „Goyeskur“, eins og nokkur
málverk á síðustu sýningu hans, og
fjalla á galsafenginn og nokkuð svo
gráglettinn hátt um nokkra þekkta
einstaklinga í íslensku listalífi.
Hér fer áhorfandi eilítið hjá sér,
finnst éins og hann hafi verið staðinn
að því að hnýsast i einkamál lista-
mannsins.
Baltasar hefur sjaldan verið eins
agaður, fimur og sjálfum sér sam-
kvæmur og á þessari þokkafullu
sýningu.
Frágangur hennar er sömuleiðis til
fyrirmyndar, allt frá innrömmun til
sýningarskrár. -ai
Nýr bamabókahöfundur
verðlaunaður
í fyrradag vom í fyrsta sinni afhent
verðlaun úr Verðlaunasjóði íslenskra
bamabóka, sem stofnaður var af fjöl-
skyldu Ármanns Kr. Einarssonar og
Bókaútgáfunni Vöku á síðasta ári.
Áður óþekktur bamabókahöfundur,
Guðmundur Ólafsson, hlaut þau fyrir
fyrstu bók sína, Emil og Skunda.
Nema verðlaunin 40.000 krónum,
auk venjulegra höfúndarlauna sam-
kvæmt samningi Rithöfundasambands
íslands. Miðað við meðalupplag
bamabóka gæti þetta samtals numið
rúmlega eitt hundrað þúsund krónum.
f ræðu, sem Ólafúr Ragnarsson út-
gefandi hélt við afhendinguna, sagði
hann að samkeppni sjóðsins hefði ve-
rið auglýst um mitt síðasta ár og er
ffestur rann út um áramót hefðu 45
handrit borist.
„Öll handrit vom merkt dulnefnum
höfunda og var verðlaunasagan sögð
eftir Frans Fransson," sagði Ólafur.
„Dómnefndarmenn vom á einu máli
um að á bak við þetta dulnefrii leynd-
ist einhver þekktur og reyndur
höfundur, svo kunnáttusamlega væri
sagan skrifuð. En reyndin var önnur.
Hér er kominn fram á sjónarsviðið nýr
höfundur bamabóka."
Ármann Kr. Einarsson afhenti sjálf-
ur verðlaunin og sagði ffá tildrögum
sjóðsins, sem hann sagði vera sitt
hjartans mál. Verðlaunahafanum ósk-
aði hann velfamaðar og bætti við:
„Emil og Skundi er skemmtileg og
spennandi saga, persónusköpun er
sterk og atburðarás listilega ofin.“
Guðmundur Ólafsson þakkaði fyrir
sig og þakkaði sömuleiðis bömum sin-
um og konu, Olgu Guðrúnu Ámadótt-
ur rithöfundi, uppörvun og innblástur.
í stjóm Verðlaunasjóðsins em Ólaf-
ur Ragnarsson, Ármann Kr. Einars-
son, Sigrún Klara Hannesdóttir, en
ráðgjafar em Hildur Hermóðsdóttir,
Eðvarð Ingólfsson og Halldóra Jóns-
dóttir. Halldóra er fúlltrúi lesenda
bama- og unglingabóka, en grunn-
skólar landsins munu tilnefúa fulltrúa
í dómnefnd sjóðsins til skiptis. -ai
„Höfundakoss" gæti þessi mynd heitið. Olga Guðrún Amadóttir rithöfundur
smellir kossi á eiginmann sinn, Guðmund Ólafsson, er hann hlaut verðlaun
úr Verðlaunasjóði islenrfra barnabóka. Yngsta bam þeirra hjóna heldur sig
við ungbarnabókmenntimar. DV-mynd GVA
Boðsmót Taflfélags Reykjavíkur 1986 hefst að Grensásvegi 46 mánudaginn 2. júní kl. 20.00. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monradkerfi, þannig: 1. umferð mánudag 2. júní kl. 20.00 2. umferð föstudag 6. júní kl. 20.00 3. umferð mánudag 9. júní kl. 20.00 4. umferð miðvikudag 11. júní kl. 20.00 5. umferð föstudag 13. júní kl. 20.00 6. umferð mánudag 16. júní kl. 20.00 7. umferð miðvikudag 18. júní kl. 20.00 Öllum er heimil þátttaka í boðsmótinu. Umhugsunartími er 1 1/2 klst. á fyrstu 36 leikina en síðan 1/2 klst. til viðbótar til að Ijúka skákinni. Engar biðskákir. Skráning þátttakenda fer fram í síma Taflfélagsins á kvöldin kl. 20.00-22.00. Lokaskráning verður sunnu- daginn 1. júní kl. 20.00-23.00. Taflfélag Reykjavíkur, Grensásvegi 44-46, Rvk. Símar: 83540 og 681690. «
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 14., 19. og 23. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Sörla- skjóli 66, þíngl. eign Árna Þ. Bjömssonar, fer fram eftir kröfu Guðmundar Agústssonar hdl. og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaqinn 2. júní 1986 kl. 11.30. Borgarfógetinn í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 152., 155. og 164. tbl. Lögbritingablaðs 1985 á Lækjarseli 4, þingl. eign Ævars Breiðfjörð, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Iðnaðarbanka íslands á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júni 1986 kl. 15.00. Borgarfógetinn í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var i 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Kambaseli 7, þingl. eign Sigurðar G. Eggertssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- bankans, Ara Isberg hdl. og Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júní 1986 kl. 14.30. Borgarfógetinn í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var i 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Kaplaskjólsvegi 89, tal. eign Þráins Sverrissonar, fer fram eftir kröfu Veðdeild- ar Landsbankans, Áma Einarssonar hdl. og Gjaldheimtunnar i Reykjvík á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júni 1986 kl. 11.15. Borgarfógetinn í Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Grjótaseli 9, þingl. eign Heiðars Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- bankans og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júni 1986 kl. 14.15. Borgarfógetinn í Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Tunguseli 1, þingl. eign Júníusar Pálssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júni 1986 kl. 16.00. Borgarfógetinn i Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Flyðrugranda 20, þingl. eign Hauks Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júní 1986 kl. 11.00. Borgarfógetinn í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var I 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta i Flyðrugranda 14, þingl. eign Haraldar Haraldssonar en talin eign Bjama Þórðarsonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júni 1986 kl. 10.45. Borgarfógetinn í Reykjavík. :■>
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Teigaseli 1, þingl. eign Axels Sveinssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júní 1986 kl. 15.30. Borgarfógetinn í Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Teigaseli 4, þingl. eign Rósu Ámadóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- bankans á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júní 1986 kl. 15.45. Borgarfógetinn í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 152., 155. og 164. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta i Flúðaseli 93, þingl. eign Finnboga Karlssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 2. júní 1986 kl. 14.00. Borgarfógetinn í Reykjavík.