Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 12
12 DV. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986. A FÉLAGIÐ SVÆÐAMEÐFERÐ heldur starfsleikninámskeið í svæðameðferð í júní, júlí og ágúst. Rétt-til þátttöku hafa þeir er lokið hafa hæfnismati. Námstími er 200 klukkustundir (300 kennslustundir). Áætlað er að námskeiðið fari fram mánudaga til föstu- daga kl. 8-12 fyrir hádegi. Nánari upplýsingar í símum 79736 og 617020. Þeir sem þegar hafa skráð sig til þátttöku endurnýi umsóknir sínar. Stjórnin TVISVAR Á ÆVINNI (sýnd í Tónabíó nýlega) Genr iluchnau Ann’Margm FJU'n Humyn Amv Mudijgan Allx Siuvdy < Brám í)t*n>u,h> Fjórar stjörnur - fyrsta fjögurra stjörnu kvik- mynd þessa árs. Hún er jafnvel betri þegar menn sjá hana í annað sinn. Kathleen Carol, New York Daily News. Dreifing: J.S. VIDE0 sími 611202,611080,611040. BÍLAKJALLARINN Fordhúsinu v/hliö Hagkaups. Símar 685366 og 84370. F0RD HÚSINU Vantar tilfinnanlega á skrá hjá okkur allar gerðir nýlegra bíla, '82, '83, '84, '85. Höfum kaupendur með háar útborganir eða staðgreiðslur. Okkur vantar: Fiesta eða Uno '85, staðgr. Ford Econline '78, '79, '80. Suzuki st. 90, bitabox, '81 eða yngri. Bronco, '74-77, á 300 þús., á skuldabréfi. Taunus station, '82, eða japanskan, '82 eða '83, station. Aðeins mjög góður bíll kemur til greina. Escort, '82, '83, '84, staðgreiðsla. Einnig bíl á ca. 50-70 þús. staðgr. Framkvaamdastjóri: Finnbogi Ásgeirsson. Sölumenn: Jónas Ásgelrsson, Halldór Úllarsson, Skúll Gislason, Þórarinn Flnnbogason Magnús Halldórsson. *3/ *3/ •?/ *3/ *3/ *3/ *J/ »í/ *j/ *3/ «3 / *3/ «3 / *3 / *3/ «3 / *3 / *3. /S* /f* /S* /í* /f* /C* /í* /S* /S* /í* /f* /f*/i Hollusta ávaxftadrykkja í grein þessari ætla ég að fjalla um hollustu ávaxtadrykkja og ávaxta- safa. Hollusta? Það er enginn efi á því að ávaxta- drykkir eru vinsælastir drykkja meðal yngstu kynslóðarinnar. Þeir hafa þótt sjálfsagðir sem drykkur með mat á vel flestum leikskólum, dagheimilum og jafnvel í skólum. Minna hefur farið fyrir ávaxtasöf- unum og er ástæðan örugglega sú að þeir eru miklu dýrari. En er einhver munur á ávaxta- drykk (t.d. Hi-C, Svala eða Gosa) og ávaxtasafa (t.d. Trópí, Flóridana eða Blöndu)? Jú, munurinn er töluverður. Ef við skoðum ávaxtadrykkina fyrst. Ávaxtadrykkir innihalda u.þ.b. 10-16% af hreinum appelsínu-, epla- eða sítrónusafa, sem siðan er þynnt- ur með vatni. Til þess að auka geymsluþol þessa vatnsþynnta drykks er sett út í hann rotvamar- efni, yfirleitt natríum bensóat (E- 211). Einnig er sett í drykkina litarefiii (þó ekki í Hi-C, samkvæmt upplýs- ingum á umbúðum). Mörgum finnst þó sú ráðstöfun helst til öfgakennd vegna þess að liturinn er yfirleitt alltof sterkur og gefur vökvanum óeðlilegan lit. Að lokum er sett í drykkina holl- ustustimpill, sem er C-vítamín. C-vítamín hefur marga eiginleika, ekki bara sem bætiefni. C-vítamín virkar sem rotvöm og heldur litar- efninu (litnum) stöðugu. Ekki má gleyma sykrinum, sem bætt er út í þessa drykki. Og eins og sást í töflu 1 í fyrstu umfjöllun minni er sykurmagnið yfirleitt á bil- inu 11-12% í hverjum desilítra (100 ml). Hægt er að velta því fyrir sér hvort einhver munur væri á hollustugildi ef sett yrði út í kók slatti af C-vítam- íni (t.d. 25 mg í 100 ml). Yrði þá leyft að gefa bömum það í leikskóla vegna þess að það væri svo hollt (út af C- vítamíninu auðvitað)? Ætla ég lesendum að velta þessu fyrir sér. Ávaxtasafamir em töluvert öðm- vísi. Þeir innihalda hreinan safa og engan litar- eða rotvamarefni (sam- kvæmt upplýsingum á umbúðum). í þeim flestum er C-vítamín, sem kem- ur úr safanum, en ekki er bætt í, og kolvetnin em ávaxtasykur sem kem- ur úr safanum. Matur og hollusta Gunnar Kristinsson matvælafræðingur Þar að auki er nokkuð af trefjaefn- um í safanum. Niðurstaðan er því sú að það sem er hollt fyrir alla er selt á miklu dýr- ara verði en það sem ekki getur talist til hollustu. Þannig er í raun verið að beina bömum inn á óæskilega braut. í neysluvenjum. Lokaorð: Frá mínum bæjardyrum séð skiptir ekki máli hvort mikið er af C-víta- míni eða lítið í ávaxtadrykkjum, drykkurinn verður svo lítið hollari fyrir það. Vatn er ódýrasti drykkurinn sem við getum fengið. Með breytingum á neysluvenjum ætti að vera hægt að fullnægja vökvaþörf með því að drekka vatn og beina til dæmis áherslunni að C-vítamínineyslunni í gegnum neyslu á ávöxtum og græn- meti. Fyllsta ástæða er til að hvetja hlut- aðeigandi yfirvöld til þess að styrkja næringarfræðing til að gefa út upp- lýsingabækling um vatn til þess að kynna fólki kosti vatnsins. Að lokum væri fróðlegt að vita hversu mikinn sykur böm innbyrða á heilu ári í gegnum neyslu sína á ávaxtadrykkjum og er alls óvíst að fólk geri sér grein fyrir því um hversu mikið magn gæti verið að ræða. Ljúffengur og fljótlegur túnfisksréttur. Makkarónuréttur með túnfiski Þessi réttur er mjög fljótlegur og sér- lega ljúffengur. Hann er skemmtileg tilbreyting frá þyngri réttum nú með hækkandi sól. 1 hann þarf: 200 g soðnar makkarónur krydd eftir smekk, t.d. paprikuduft, salt og pipar 200 g niðursoðinn túnfisk 30 g smjör 2- 3 matskeiðar hveiti 2-3 dl mjólk 120 g rifinn ost Kryddið makkarónumar eftir smekk og losið túnfiskinn í sundur. Bræðið smjörið í litlum potti, bætið hveitinu við og hrærið vel. Hellið mjólkinni saman við í smáskömmtum, hitið að suðumarki. Hrærið vel þar til blandan þykknar. Látið þá helminginn af ostin- um saman við og kryddið vel, látið suðuna rétt koma upp. Komið makk- arónunum og túnfiskinum fyrir í grunnu, eldföstu móti og hafíð lag af sósunni efst. Þar ofan á stráið þið því sem eftir var af ostinum, setjið loks nokkra smjörbita ofan á. Setjið mið- svæðis í heitan ofh og látið bakast í ca 15 mínútur við 200 gráður. Réttur- inn er borinn fram vel heitur. Ferskt grænmetissalat fer vel með. Ætlað fyr- ir fjóra. -RóG SVEFNSOFAR VörinarkaðBrin ht. Húsgagnadeild - sími 686112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.