Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Qupperneq 26
42
DV. FÖSTUDAGUR 30. MAl 1986.
[
Andlát
Hjálmfríður Eyjólfsdóttir lést 24. maí
sl. Hún fæddist að Firði í Múlasveit
1. r.óvember 1898. Foreldrar hennar
voru Eyjólfur Jóhannsson og Guð-
munda Jónatansdóttir. Hjálmfríðui
giftist Jóni Hókonarsyni en hanr
lést árið 1952. Þeim hjónum varð
Qögun-a bama auðið og eru þrjú á
lífi. Útför Hjálmfríðar verður gerð
fró Fossvogskirkju í dag kl. 15.
lndíana G. Bjarnadóttir lést 21. maí
si. Hún fæddist að Gerði, Innri
Akraneshreppi, þann 29. ágúst 1909.
Foreldrar hennar voru hjónin Sigríð-
ur Jónsdóttir og Bjarni Jónsson.
Indíana giftist Guðna Eggertssyni en
hann lést árið 1971. Þeitn hjónum
varð tveggja barna auðið. Útför Indi-
önu verður gerð frá Innri-Hólms-
kirkju i dag kl. 14.30.
Páll Þorláksson rafverktaki, Fífu-
hvammsvegi 39, Kópavogi, varð
bráðkvaddur aðfaranótt miðviku-
dagsins 28. maí sl.
.Friðþjófur Sigurðsson, Auðshaugi,
V-Barðastrandarsýslu, verður jarð-
settur frá Brjánslækjarkirkju ó
Barðaströnd í dag, 30. maí, kl. 14.
Hrafn Pálsson fró Vestmannaeyjum
verður jarðsunginn í dag, 30. maí,
kl. 13.30 frá Fossvogskapellu.
Fundir
1
Árbæjarsókn
Aðalfundur Árbæjarsóknar verður
haldinn í safnaðarheimilinu fimmtu-
daginn 5. júní nk. kl. 20.30. Venjuleg
aðalfundarstörf. Kaffiveitingar eftir
fund.
Tilkynningar
Kvennaskólanum í Reykjavík
slitið
Kvennaskólanum í Reykjavík var
slitið hinn 24. maí sl. 1 skólanum var
eins og að undanförnu starfrækt
uppeldissvið með þremur brautum,
fósturbraut, íþróttabraut og mennta-
braut. Á haustönn hóf 321 nemandi
nám og um jól var útskrifaður 21
stúdent. Á vorönn voru nemendur
294 og útskrifaðir stúdentar 52.
Verðlaun úr Minningarsjóði Þóru
X Melsteð fyrir bestan heildarárangur
R fékk Bára Elíasdóttir en hún fékk
r einnig verðlaun úr Verðlaunasjóði
j- Ragnheiðar Jónsdóttur. Verðlaun
f Móðurmálssjóðs fékk Anna Margrét
jt Halldórsdóttir og úr Verðlaunasjóði
Guðrúnar J. Briem hlaut Þórunn
* Óskarsdóttir verðlaun. Mörg önnur
verðlaun voru veitt. Afmælisárgang-
ar, 60 ára og 25 ára, færðu skólanum
gjafir og fluttu kveðjur. Af hálfu
nýstúdenta talaði Bjarni Ólafsson en
. skólastjóri, Aðalsteinn Eiríksson,
sleit 112. starfsári skóians.
Utvarp__________________Sjónvarp
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Dagsferðir sunnudag 1. júní.
1) kl. 10.30 Móskarðshnúkar - Trana
- Kjós.
Farastjóri: Magnús Hallgrímsson.
Verð kr. 400. 2) kl. 13 Reynivallaháls
- Reynivellir. Gengið upp Hálsenda
og niður Kirkjustíg hjá Reynivöllum.
Verð 400 kr. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin. Farmiðar
við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorð-
inna. 13 15. júní verður helgarferð i
Mýrdal Höfðabrekkuheiði og Kerl-
ingardal. Gist í svefnpokaplássi.
18.-22. júní (5 dagar) Látrabjarg -
Barðaströnd. í þessari ferð er gengið
á Látrabjarg, ekið um Rauðasand,
Barðaströnd og víðar. Gengið að Sjö-
undá. Gist í svefnpokaplássi í
Breiðuvík. Upplýsingar á skrifstof-
unni, Öldugötu 3.
Afmæli
75 ára verður nk. miðvikudag, 4. júní,
Siguijón Sigmundsson múrari, frá
Hamraendum í Breiðuvík, Lang-
holtsvegi 53. Hann ætlar að taka á
móti gestum í tilefni afmælisins á
morgun, laugardaginn 31. maí, í Do-
mus Medica við Egilsgötu milli kl.
15.30 og 18.
80 ára verður á sunnudaginn, 1. júní,
Sigríður Jónsdóttir, Garði í Mý-
vatnssveit, S-Þing. Eiginmaður
hennar var Halldór Árnason bóndi,
sem látinn er fyrir nokkrum árum.
Hún er Skagfirðingur að ætt og
uppruna.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
fer í kvöldferðalag mánudaginn 2.
júní. Farið verður til Grindavíkur,
Bláa lónið skoðað og drukkið þar
kaffi. Lagt af stað frá Kirkjubæ ki.
20. Upplýsingar í síma 24846.
Karlinn í tunglinu
Um síðustu helgi var opnaður í
Kópavogi nýr unglingaskemmtistað-
ur. Skemmtistaðurinn heitir Karlinn
í tunglinu og er að Skemmuvegi 34a,
Kópavogi. Ætlunin er að vera með
opið á föstudagskvöldum frá kl. 22-
03 fyrir unglinga á aldrinum 16-20.
Auk þess verður húsið leigt út undir
einkasamkvæmi. Samgöngur eru
mjög góðar því staðurinn er ekki
nema steinsnar frá Mjóddinni og þar
með aðalsamgönguæðum höfuðborg-
arsvæðisins. Auk þess ganga vagnar
frá SVK í hverfið. Eftir dansleiki
verða rútur sem aka unglingum heim
í helstu hverfi Reykjavíkur og Kópa-
vogs og einnig nágrannabyggðarlög
ef þörf krefur, svo sem Garðabæ,
Hafnarfjörð og Mosfellssveit. f vetur
hefur enginn staður verið fyrir ungl-
inga á aldrinum 16-20 og hafa þeir
ekki átt í nein önnur hús að venda.
Jón E. Guðmundsson myndmenntakennari:
Ánægður með allt
nema gagniýni
Ég hlustaði töluvert á rás 1 i
gær, byrjaði á kvöldfréttum og var
þetta eitt af þeim fáu skiptum sem
maður heyrir gleðifréttir þar þegar
sagt var frá velgengni Stuðmanna
í Kína. Það er alltaf ánægjulegt
að fá svona fréttir inn á milli allra
hörmungafréttanna, þær eru bara
of sjaldgæfar.
Daglegt mál er þáttur sem ég
hlusta líka alltaf á og er alger
nauðsyn enda er mjög fróðlegt að
hlusta á hann og hafa eflaust marg-
ir gott af því. Leikinn milli Tékka
og íslendinga hlustaði ég líka á og
þótti leitt að Tékkarnir skyldu
vinna okkur eins og við má búast.
Nú síðan kom þátturinn hans
Sveins, Á ferð, alveg finnst mér
þessir þættir stórgóðir og mjög sér-
stakir, ég held að þetta hafi verið
20. þátturinn og hef ég hlustað á
flesta þeirra.
Þar sem ég hlustaði mikið á rás
1 í gær, gat ég því miður ekki hlust-
að á rás 2 líka maður getur ekki
gert allt í einu. Ég hef nefnilega
stundum hlustað á þættina hennar
Ragnheiðar, Gestaganginn, og haft
gaman af. Rás 2 finnst mér annars
alveg ágæt.
Sjónvarpið er mjög gott yfirleitt,
margt sem ég hef áhuga á á dag-
skránni hjá þeim. Ég er þó hissa
yfir fimmtudagsfríunum þeirra,
þetta er eins og í gamla daga þá
var fimmtudagur kallaður vinnu-
konufrídagur því þá fóru allar
vinnukonur í frí. Það má kannski
líkja sjónvarpinu við vinnukonu?
Raunar hef ég ekkert út á hvorki
sjónvarp né útvarp að setja. Það
er ekki hægt að gera öllum til
hæfis, það ættu allir að vita, og ég
hef ekki áhuga á að vera sífellt að
gagnrýna allt og alla i kringum
mig. Ætli að það megi ekki segja
að ég sé bara ánægður með allt!
-BTH
•i
U .X.v.-.-.,:.
Ný snyrtistofa í Hafnarfirði
Nýlega var opnuð snyrtistofa að
Klausturhvammi 15, Hafnarfirði,
undir nafninu Yrja. Stofan býður
upp á alla almenna snyrtingu, fóta-
aðgerðir, handsnyrtingu, vaxmeð-
ferð, andlitsböð og litanir. Unnið er
úr Clarins snyrtivörum. Seldar eru
snyrtivörur frá Clarins, Milopa og
Chigogo. Opið er alla virka daga frá
kl. 13 18 og laugardaga kl. 10-13.
Síminn er 651939. Eigandi Yrju er
Hulda I. Benediktsdóttir snyrtifræð-
ingur.
Minningarsjóður samtaka um
kvennaathvarf
Samtök um kvennaathvarf hafa ný-
lega látið gera minningarkort og
mun það fé sem þannig kemur inn
renna óskert til reksturs Kvennaat-
hvarfsins. Nokkrar gjafir hafa þegar
borist. Kortin eru afgreidd á tveim
stöðum, Reykjavíkurapóteki og á
skrifstofu samtakanna í Hlaðvarp-
anum að Vesturgötu 3, 2. hæð, sem
er opin alla virka daga árdegis kl.
10-12. Þeir sem þess óska geta hringt
á skrifstofuna og fengið senda gíró-
seðla fyrir greiðslunni. Síminn er
23720.
Flensborgarskóla slitið
Flensborgarskóla var slitið 23. maí
sl. og voru þá brautskráðir 57 nem-
endur með próf frá skólanum, 54 með
stúdentspróf, en 3 með próf af öðrum
námsbrautum. Bestum námsárangri
náði Sigríður Skaftfell, félagsfræði-
braut, sem fékk alls 41 sinni A í
einkunn í áfanga, en 2 sinnum B.
Aðrir sem voru með ágætiseinkunn
voru Halldór Hauksson, tónlistar-
braut, Jóhanna Jóhannsdóttir,
viðskiþtabraut, og Eiríkur Gunn-
laugsson, náttúrufræðibraut. Við
skólaslitin flutti skólameistari,
Kristján Bersi Ólafsson, ræðu og af-
henti einkunnir og bækur í viður-
kenningarskyni fyrir góðan
námsárangur. Nemendur, sem luku
gagnfræðaprófi frá skólanum fyrir
réttum 40 árum, voru margir við-
staddir skólaslitin og afhenti tals-
maður þeirra, Bragi Björnsson,
skólanum peningagjöf frá hópnum.
Einnig færði fulltrúi 10 ára stúdenta,
Halldór Árni Sveinsson, skólanum
gjöf. Við skólaslitin talaði einnig
fulltrúi nýstúdenta, Birgir Grétars-
son, og Flensborgarskólakórinn söng
undir stjórn Hrafnhildar Blomster-
berg.
Kynning á tilbúnum fiskréttum
Tuttugu manns, þar á meðal fulltrú-
ar fimmtán fyrirtækja í matvælaiðn-
aði, eyddu sl. miðvikudegi hjá
Iðntæknistofnun, við að smakka og
kynna sér framleiðslu á 20 mismun-
andi tilbúnum fiskréttum, sem
eldaðir voru í tilraunaeldhúsi Efna-
og matvælatæknideildar og fram-
reiddir á staðnum. Fyrir
eldamennskunni stóðu starfsmenn
Gastronomisk Institut í Danmörku,
Mette Espensen, sem matreiddi, og
Hans Ole Espensen vöruþróunar-
stjóri, sem kynnti réttina, útskýrði
framleiðsluaðferðir og innihald og
fjallaði um markað, m.a. hvar í heim-
inum hver tegund hentaði og seldist.
Þessi kynning var haldin sameigin-
lega af Otflutningsmiðstöð iðnaðar-
ins, efna- og matvælatæknideild ITÍ
og Iðnlánasjóði, sem kostaði hana,
og er í tengslum við átak, sem verið
er að gera til útflutnings á tilbúnum
matvælum og jafnframt við vöruþró-
unarverkefni, sem nú er unnið með
8 fyrirtækjum í matvælaiðnaði og
miðar að framleiðslu úr fiskmeti á
gæðavöru í háum verðflokki. Auk
Útflutningsmiðstöðvarinnar og Iðn-
tæknistofnunar tekur Rannsókna-
stofnun fískiðnaðarins þátt í því
verkefni.
Nicole Ross skemmtir í Kreml
Nú um helgina gefst íslendingum i
fyrsta sinn tækifæri til að sjá það sem
á erlendri tungu nefnist Drag-show.
Þessi listgrein er ævaforn og á rætur
sínar að rekja til fornra austur-
lenskra hefða þar sem konur máttu
ekki koma fram né sækja leikhús og
urðu því karlmenn að leika kven-
hlutverkin líka. Nútímaútfærsla á
þessu er þannig að á svið kemur ein-
hver fræg söngpersóna sem syngur
og dansar (Diana Ross, Tina Turner,
Prince....) og í lok atriðis sviptir
hún/hann af sér dulargervinu og eft-
ir stendur karlmaðurinn Nicole
Ross. Ross er mjög þekktur í Banda-
ríkjunum og hefur m.a. skemmt með
Little Richard. Ross kemur hingað á
vegum skemmtistaðarins Kremlar og
sýnir þar 30. og 31. maí og sunnudag-
inn 1. júní. Átriði Ross er um 20
mínútur að lengd.
Ferðalög
Útivistarferðir
Fimmtudagur- 29. maí kl. 20.30.
Myndakvöld - Hornstrandakynning
Síðasta myndakvöldið fyrir sumarið
verður í kvöld kl. 20.30 í Fóstbræðra-
heimilinu, Langholtsvegi 109. Komið
og kynnist skemmtilegum ferða-
möguleikum innanlands. Kaffiveit-
ingar í hléi. Dagskrá: Ferðakynning
með myndasýningum. 1. Hvitasunnu-
ferðirnar. Sýndar myndir m.a. af
frábærum ferðum Útivistar um
hvítasunnu á Snæfellsjökul og Ör-
æfajöku). 2. Breiðafiarðareyjar.
Útivist mun taka úpp reglulegar
helgarferðir þangað í sumar strax og
aðstæður leyfa. 3. Sumardvöl í skál-
um Útivistar Básum, Þórsmörk. 4.
Trimmdagar ÍSl 20.-22.júní. Sagt frá
þátttöku Otivistar í þeim með Reykj-
arvíkurgöngu, göngu um Elliðaárdal
og Viðeyjarferðum. 5. Sumarleyfis-
ferðirá Hornstrandir. Útivist fer alls
6 ferðir á Hornstrandir í sumar. Far-
ið verður 8. júlí, 16. júli, 18. júlí og
31. júlí. Aukaferð verður 6. ágúst.
Þetta eru 8-10 daga ferðir. Allir ættu
að geta fundið einhverja ferð við sitt
hæfi. Ath. myndakvöldið er öllum
opið. Sjáumst.
Ferðafélag íslands
Helgarferð í Þórsmörk 30. mai-1.
júní.
Gist í Skagíjörðsskála. Það er hvíld
frá amstri hverdagsleikans að dvelja
Ymislegt