Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Qupperneq 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Fimmtán manna lið bar ábúandann á Höfða út:
Vegarriót •HÖf (5i
Fimmtán manna lið undir forystu
Jóhannesar Ámasonar sýslumanns
braust inn í bæinn Höfða í Eyjahreppi
í gærmorgun og bar út ábúandann,
Sigurð Oddsson, og búslóð hans.
Fimmtán til tuttugu sveitungar hans
höfðu búið um sig á bænum og veittu
óvirka mótspymu.
Sannkallað stríðsástand ríkti er allt
tiltækt lögreglulið í Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu, fimmtán lögreglu-
þjónar, gerði áhlaup á bæinn Höfða
um klukkan 9.30 i gærmorgun. Fimmt-
án til tuttugu sveitungar ábúandans,
Sigurðar Oddssonar, höfðu búið um
sig á bænum og meinuðu lögreglulið-
inu inngöngu.
Lögreglumenn hófu aðgerðir með
því að loka afleggjurum að Höfða í
því skyni að koma í veg fyrir að ná-
grannar hans kæmu honum til hjálp-
ar. Njósn um aðgerðir sýslumanns
hafði hins vegar borist og hafði fimm-
tán til tuttugu manna lið þegar búið
um sig á staðnum.
Bílar dregnir burt
Enginn svaraði er sýslumaður barði
að dyrum á Höfða um klukkan hálf
tíu í gærmorgun. Á annan tug
harðlæstra bifreiða haföi verið lagt
þétt upp að dyrum hússins og urðu
lögreglumenn því að byija á því að
opna bílana með vír og draga í burtu.
Að svo búnu barði sýsiumaður að dyr-
um og krafðist inngöngu. Vamarlið
nágranna Sigurðar Oddssonar beið
innandyra á meðan á þessu stóð og
flugvélar fréttamanna, sem ekki fengu
að komast landleiðina á staðinn, flugu
lágflug yfir.
inni og nota afl lögreglubifreiðar til
að bijóta hurðina upp.
Lögreglumenn gengu inn við svo
búið með kylfur á lofti og hótuðu veij-
endum líkamsmeiðingum ef þeir
reyndu að koma í veg fyrir útburð
með valdi. Veijendur reyndu ekki að
koma í veg fyrir það er búslóð Sigurð-
ar Oddssonar var tekin með valdi,
borin út í bíla og keyrð í burtu.
Sýslumanni tókst þama í annarri
tilraun að bijóta á bak aftur mót-
spymu Sigurðar Oddssonar og ná-
granna hans við framkvæmd dóms
Lögreglumenn brjótast inn
með kylfur á lofti
Er óskum sýslumanns um inngöngu
var ekki sinnt bóf lögregluþjónn kylfu
á loft og braut rúðu. Það dugði ekki
til inngöngu og þá var gripið til þess
ráðs að koma stólpa fyrir á útihurð-
i..—
r <5u
Brelaafjor
Stykkl
aa
Haffi
i a
’m.
Faxaflol
Þegar mest var voru um 50 manns saman komnir í nágrenni Höfða.
DV-mynd KAE.
fógetaréttar um útburð. Dómur um
útburð var kveðinn upp í fógetarétti
í Stykkishólmi, að kröfii Jóns Steinars
Gunnlaugssonar, lögmanns eiganda
Höfða, sem er dánarbú Thors Thors,
en þolandi hefur áfiýjað málinu til
Hæstaréttar. - ás.
að brjóta hurðina upp
Notuðu lögreglubíl til
DV-mynd: Ami Snævarr.
Aðgerðin fór eðlileca fram eftir að hurðin var brotin upp.
„Ekki var um
annað að
velja en
valdbeitingii’
- sagði Jóhannes Ámason sýslumaður
„Það var ekki um annað að velja
en valdbeitingu eða beitingu lögreglu-
valds við framkvæmd þessa útburðar-
dóms vegna þess sem á undan hafði
gengið,“ sagði Jóhannes Ámason,
sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu, í samtali við DV er hann
var inntur álits á atburðinum við
Höfða f Eyjahreppi.
„Er þessi framkvæmd var reynd í
fyrra skiptið, þann 11. júní, voru hafð-
ir í frammi tilburðir til að hindra hana
og jafhframt haft í hótunum um að
slíkt mundi endurtekið og því mættum
við nú með fjölmennt lið lögreglu-
manna.“
Jóhannes sagði ennfremur að sér
þætti það fulllangt gengið að menn
hefðu í frammi mótmæli, sem þau er
þama áttu sér stað, gegn löglegri að-
gerð yfirvalda. Um 15 manns hefðu
verið inni í húsinu er hann og lögregl-
an kom á staðinn og hefði verið neitað
að opna húsið. Eftir að lögreglan
braust í gegnum útidyrahurðina hefði
aðgerðin hinsvegar farið eðlilega fram.
Utburðardómurinn var kveðinn upp
í ágúst í fyrra en Jóhannes sagði að
ákveðið hefði verið að bíða með fram-
kvæmd hans yfir veturinn. Þótt
dóminum hefði verið áfrýjað í apríl sl.
frestaði það ekki aðgerð en hún væri
fr amkvæmd á ábyrgð gerðarbeiðenda.
-FRI