Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Síða 8
8 DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Miklar breytingar í ríkisstjóm Spánar Pétur Pétuissan, DV, Barœlana Ný ríkisstjórn meirihluta þingflokks sósíalista verður mynduð á Spáni í lok júli undir forsæti Felipe Gonzalez. Þetta verður þriðja ríkisstjóm Felipes. Munu ýmsar breytingar vera í deigl- unni, svo sem að sameina ýmis ráðuneyti og fækka ráðherrum. Orð- rómur er á kreiki um að Alfonzo Gurerra láti af ráðherraembætti og snúi sér alfarið að því að stýra flokks- maskínunni. Einnig gætu komið konur inn í ríkisstjómina en það hefúr aðeins gerst einu sinni áður í sögu spánsks lýðræðis. Aðalástæður fyrir fækkun ráðherra- stóla em þær að ýmis ráðuneyti hafa tapað mikilvægi sínu við valddreifingu til fvlkisstjóma og em nánast mátt- laus af þeim sökum. 15. júlí mun konungurinn he§a við- ræður við talsmenn stjómmálaflokka um stjórnarmyndun og hafandi það í huga að sósíalistar hafa hreinan meirihluta í báðum deildum þingsins verða vióneður jjessar aðeins til mála- mynda. Verðui' þeim sennilega lokið viku síðar eða 22. júlí. í lok þessarar sömu viku mun svo Felipe Gonzalez geta hafið störf með nýrri ríkisstjóm en þangað til mun fyrri ríkisstjóm starfa. Það mun hins vegar verða einungis til málamynda þar sem leiðtogar hennar verða á stöð- ugum ferðalögum næstu þrjár vikum- ar. Hin nýja ríkisstjóm mun svo hefja hið vandasama verk að standa við kosningaloforðin en þau hafa reynst fyrri ríkisstjómum sósialista þung í skauti. Loforðin, sem flokkurinn gaf í þess- ari kosningabaráttu, eru þessi: 1. Örva hagvöxt til að skapa ný at- vinnutækifæri. 2. Minnka verðbólgu og koma henni niður á það stig sem tíðkast hjá öðrum löndum Evrópubandalagsins. 3. Visitölubindingu launa verði komið á. 4. Aukin verði ríkisumsvif til að minnka atvinnuleysi. 5. Einkarekstur sjónvarpsstöðva verði leyfður. 6. Unnt verði með skattaívilnunum að halda niðri vöxtum. 7. Greiddur verði ellilífeyrir til fólks utan almannatrygginga. 8. Tryggður verði ellilífeyrir handa öllum. 9. Fæðingarorlof verði aukið um tvær vikur. 10. Umbætur á þeim lagabókstöfúm sem fjalla um skilnaðarmál. 11. Aukin verði lögregluvemd til að minnka glæpi. 12. Fækkað verði í herjum Banda- ríkjanna á spánskri gmnd. 13. Samið verði við Breta um Gí- braltarhöfða. Næst á dagskránni hjá Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, eftir glæst- an kosningasigur um helgina, er að efna öll stóru kosningaloforðin. Fyrri rikisstjórnir undir hans stjóm hafa lent í miklum erfiðleikum með það atriði. blaðsölustöðum um allt land. Tímarít íyrir alla ■j^1986 ■ verð kr' 160 2 andlit AÐ HANDAN .................. ........... 3 Lóíalestur: Merkúrlman....... 8 ......................... 13 ■.. merkúrlinan Trúir þú honum?.. 29 ...„„T WVT.TjI SSS^^::::::::::::::,a rLÆÐANDI HELL Þegarkarlinner SaganafShooShooBaby .. • “ ^ ----«fTT.TOl, I Búlgaría, aldingarður Evropu .. 80 Þegar karlirm er konuþurfi.» Völundarhús...... konuþtofi KOSSINN: HIÐ L]tFA INNSIGLIÁSTARINNAR BLS. Úrval LESEFNI VIÐ ALLRA HÆFI í rúminu, flugvélinni, bílnum, kaffitímanum, útilegunni, ruggustólnum, inni í stofu. v Askriftar- síminn er 27022 Suður-Afnka: Bretar íhuga refsiaðgerðir Lynda Chalker, aðstoðarutan- ríkisráðherra Bretlands, átti í gær tímamótafúnd með Oliver Tambo, leiðtoga afríska þjóðarráðsins. „Það bar ekki eins mikið á milli og ég hafði óttast," sagði Chalker eftir rúmlega klukkustundar lang- an fund. „Það ber hins vegar mikið á milli vegna þess að ofbeldi er það sem allir aðilar í Suður-Afríku beita og það er ekki vænlegt til árangurs,“ sagði hún. Breska ríkisstjómin hafði áður neitað að ræða við fúlltrúa afríska þjóðarráðsins, sem er bannað í Suður-Afríku, þar til þjóðarráðið féll frá þeirri stefnu sinni að nota ofbeldi til að sigrast á hvíta minni- hlutanum. Fundurinn átti sér stað aðeins degi áður en breska ríkisstjómin tekur ákvörðun um hvaða aðgerð- um hún hyggist beita til að þrýsta á stjóm Suður-Afríku að falla frá aðskilnaðarstefnunni. Embættis- menn segja að nú sé vel mögulegt að Bretar samþykki efnahagsrefsi- aðgerðir. Sir Geoffrey Howe utanríkisráð- herra sagði að hann íhugaði að vera í forsvari fyrir friðarfor þriggja manna til Suðui'-Afríku. í sendinefndinni myndu eiga sæti fyrrverandi, núverandi og verð- andi forsetar ráðhenanefndar Evrópubandalagsins. Howe tekur við forsæti í ráð- herranefndinni i næstu viku. Heimsmet í sjónvarpsglápí Haukur Lárus Haukssan, DV, Kaupmarmah. Danir voru að vísu sendir út úr heimsmeistarakeppninni i Mexíkó, en um leið settu þeir heimsmet. Á miðvikudagskvöld í síðustu viku sáu hvorki meira né minna en 90% dönsku þjóðarinnar leik- inn milli Dana og Spánverja. Svarar það til 4,5 milljón manns. Upplýsingar þessar em fengnar frá könnun Vilstrup-stofnunarinn- ar. Vilja menn fullyrða að hér sé um heimsmet að ræða hvað varðar hlutfall heillar þjóðar fyrir framan sjónvarpsskerminn á sama tíma. Atburðir eins og jarðarför Kennedys, Bandaríkjaforseta, eða þegar maðurinn lenti fyrst á tungl- inu komast ekki með tæmar þar sem knattspymam hefúr hælana í þessu sambandi. Um leið má geta þess að um 44% Þjóðverja sáu sína menn sigra Mexíkó á laugardagskvöldið. Sól og blíða í Danmörku Haukur Lárus Haukssan, DV, Kaupmannah Sólin hefúr skinið glatt frá því í síðustu viku í Danmörku. Síðustu daga hefur ekki sést ský á himni og hefur hitinn verið á bilinu 20-25 gráður. Reiknað er með áframhaldandi sól og hita og í vikulokin er búist við að hitinn fari upp í 30 stig í skugga. Njóta Danir hlýs lofts simnan úr álfúnni en tiltölulega hlýtt hefur verið í Evrópu undan- fama daga. Sjávarhiti er ekki mjög hár enn sem komið er. Hitastigið við Kauj> mannahöfn er í kringum 13—15 gráður. Til að fara í sjóinn verður maður því að hafa hár á bring- unni, eins og Danir segja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.