Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Blaðsíða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986. 9 Utlönd Utlönd „Egótripp hjá Paul Watson“ - segir háseti á Sea Shephard Einkabréf frá Gorbatsjov til Reagans: Vill leiðtogafund strax á þessu ári Eðvarð T. Jónsson, Þórshafn Fullkomin upplausn ríkir nú um borð í kanadíska umhverfisvemdar- skipinu Sea Shephard eftir að fær- eyska lögreglan handtók sjö manns úr áhöfh skipsins fyrir helgina. í gær staðfesti danska dómsmála- ráðuneytið, sem fer með færeysk utanríkismál, þá ákvörðun færeyska landfógetans að vísa Sea Shephard úr færeyskri lögsögu. I ljós kom að tveir sjömenninganna, sem handteknir voru á föstudag, voru fi-éttamenn Assoc- iated Press en skráðir sem hásetar um borð í skipinu. Þeir voru látnir lausir þegar í stað. Lögreglan fór aftur um horð í skipið í gær og tjáði skipstjóranum, Paul Watson, að hann væri óvelkominn til Færeyja næstu þrjú árin og hann yrði handtekinn og skipið gert upptækt ef hann færi ekki strax úr færeyskri lög- sögu. Jafnframt var fimmmenningun- um, sem verið hafa í haldi í Þórshöfn, gefinn kostur á að fara um borð í skip- ið aftur eða fá ókeypis fiugfar til Bretlands. Allir nema einn tóku þann kostinn að fara til Bretlands aftur. Áhöfninni var einnig gefinn kostur á því að yfirgefa skipið og fara tii annars lands. Tveir tóku boðinu og hafði annar þeirra ófagra sögu að segja a£ ástandinu um borð. Sagði hann að bresk yfirvöld hefðu aldrei leyft skipinu að fara frá Bret- landi hefðu þau gert sér grein fyrir ástandi skipsins. Það væri í rauninni ósjóhæft, vélamar úreltar og illa við- haldið og dælibúnaðurinn nánast ónothsefur. Hann sagði jafhframt að þessi ferð skipsins væri „egotripp" Paul Watsons og yfirvélstjórans sem höguðu sér eins og flotaforingjar og litu á áhafnarmeð- Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sov- étrikjanna, hefur gefið til kynna, í einkabréfi sínu til Reagans að hann vilji halda leiðtogafund um afvopn- unarmál á þessu ári, að því er kemur fram í 'lTie New York Times í gær. Blaðið hafði eftir háttsettum emb- ættismönnum að. Bandaríkjastjórn hefði trú á að leiðtogafundur myndi eiga sér stað á þessu ári. Þetta voru viðbrögð við bréfi því sem hinn nýi sendiherra Sovétríkj- anna í Washington afhenti Reagan á mánudaginn. Blaðið sagði að þrátt fyrir að Gor- batsjov segði í bréfinu að leiðtoga- fundur væri óskynsamlegur án þess að fyrst hefði náðst verulegur árang- ur í kjamorkuafvopnunarviðræðum stórveldanna, þá varaðist Gorbat- sjov að gera það að skilyrði fyrir fundi leiðtoganna. Embættismenn sögðu að bréfið hefði verið „jákvætt" og „skynsam- legt“ og í því hefði Gorbatsjov mikið minnst á viðræður stórveldanna í september. Haft var eftir háttsettum embætt- ismanni að greinilegt væri að Gorbatsjov vildi athuga hvemig málin þróuðust. Mikhail Gorbatsjov hefur nú lýst vilja sinum til að hitta Ronald Reagan á þessu ári eins og um var talað eftir fund þeirra í Genf síðastliðið haust. Mikil upplausn ríkir nú um borð í skipi Paul Watsons, Sea Shephard, og tinist áhöfnin af „dallinum" og þiggur boð færeyskra stjórnvalda um ókeypis flug- ferð til Bretlands. Hér sést islenskur Reykjavikurhöfn í fyrra. limina eins og óæðri lífvenu-. Af þessum sökum hefði hann ekki getað hugsað sér að vera lengur um borð. Við þetta bætist að vatnsbirgðir skipsins eru á þrotum og matur af mjög skomum skammti. Paul Watson á yfir höfði sér 15 mán- lögreglumaður á verði við skipið í aða fangelsisdóm fyrir að hafa stofnað lífi kópaveiðimanna í Kanada í hættu með framferði sínu. Sea Shephard liggur nú fyrir utan þriggja mílna lögsöguna og óvíst er hvað yfirmennimir taka til bragðs. Næturvörður f Næturvörður óskast sem fyrst. Vinnutími frá kl. 20-8 í fjóra daga, síðan 4ra daga frí. Þeir sem áhuga hafa á starfinu sendi upplýsingar um nafn, aldur og fyrri störf, ásamt meðmælum, til auglýsingadeildar DV fyr- ir 26. þ.m., merkt „Næturvörður T-126". KENNARAR! tvo kennara að Egilsstaðaskóla. Ódýrt húsnæði í boði og flutningskostnaður greiddur. Upplýsingar gefur Ólafur (í síma 97-1217) eða Helgi (í síma 97-1632). Skólanefnd Egilsstaðaskólahverfis Lada sporl árg. ’84, ekinn 38.000, Toyota Camyr dfsil árg. ’84, sjálfsk., hvltur. Verð 240.000.- ekinn 10.000 á vél. Verð 495.000.- Toyota Corolla Lift Back árg. 78, ekinn 97.000, grænn. Verö 140.000,- K-S8I . B3BR:. Toyota Tercel árg. ’82, ekinn 38.000, hvitur. Verð 260.000.- Enn vantar Toyota HI-LUX árg. ’81, ekinn 70.000, hvítur. Verð 380.000.- Toyota HI-LUX disil árg. ’84, m/tvöföldu húsi, ekinn 35.000, rauð- ur. Verð 695.000.- Honda Civic station árg. ’81, ekinn 68.000, grár. Verö 230.000,- Range Rover árg. 79, ekinn 81.000, beige. Verð 650.000.- TOYOTA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.