Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Page 24
24 DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986. Menning Menning Menning Menning Leiklist Auður Eydal ast er að sýningu lokinni en ekki endilega saga búðarmannsins broslega sem verður dálítið brota- Albert eða Guðmundur? Rikisútvarpiö - sjónvarp sýnir: ÁST í KJÖRBÚÐ Höfundur: Ágúst Guðmundsson. Tónlist Valgeir Guöjónsson. Kvikmyndataka og lýsing: Haraldur Friö- Hksson og Ómar Magnússon. Hljóð: Agnar Einarsson og Tómas Gunn- arsson. Klipping: Jimmy Sjöland. Leikstjóri og stjómandi upptöku: Ágúst Guðmundsson. Sennilega hefur mörgum farið svo að góða veðrið og prúðbúinn mannfjöldinn í miðborg Reykja- víkur og víðar í þéttbýli að kvöldi 17. júní hefur freistað meira en seta fyrir framan sjónvarpið, þar sem ný íslensk kvikmynd var þó frumsýnd. Enda heyrist mér sem ótrúlega margir hafi misst af mynd Agústs Guðmundssonar, Ást í kjörbúð, það er að segja þeir sem ekki höfðu aðstöðu til þess að taka hana upp og horfa á hana síðar. Ágúst er hér höfundur, leik- stjóri, stjómandi upptöku og auk þess aðalleikari myndarinnar, þannig að hann minnir á ýmsa fræga menn kvikmyndasögunnar, en segir þó reyndar sjálfur að það hafi ekki upphaflega verið ætlunin að hann léki Albert kjöttækni. Engu að síður fellur hann ágæt- lega inn í rulluna, hallærislegar tilraunir búðarmannsins til þess að koma sér í mjúkinn hjá firúnni fóngulegu, komust ágætlega til skila og þar lét Ágústi best að túlka hlutverkið. Mér fannst hins vegar sagan og þar með hlutverk Alberts renna út í sandinn undir lokin, þegar hann gerir vanmátt- uga uppreisn gegn hversdagslegri tilvem sinni og umhverfi og þar þannig að myndræna hliðin kemur vel út. Tónlist Valgeirs Guðjónssonar, meðal annars í flutningi Egils Ól- afssonar, á líka stóran þátt í að gera myndina áheyrilega og fellur vel að efninu. Margir valinkunnir leikarar koma fram í myndinni og fara margir hverjir á kostum þó að í smáum hlutverkum séu. Nægir þar að nefiia Sigurveigu Jónsdóttur og Jón Sigurbjömsson, viðskiptavini í búðinni, Amar Jónsson blóma- sala og Gunnar Eyjólfsson sem leikur Guðmund kaupmann lysti- lega vel. Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir og Guðný Helgadóttir leika starfsstúlkur í búðinni og Guðlaug Maríu Bjamadóttir er í hlutverki frúarinnar sem öllu fjaðrafokinu veldur. Eiginkonan, sem ekki veit hvaðan á sig stendur veðrið, er leikin af Eddu Björgvinsdóttur. Veikasti hlekkurinn í gerð myndarinnar þótti mér, eins og áður var ýjað að, sjálft handritið, einhvem veginn var eins og botn- inn dytti úr sögunni og aðalper- sónumar náðu því aldrei að lifha almennilega við. Mér fannst þegar upp var staðið kannski eins og aðalpersónan hefði verið Guð- mundur búðareigandi en ekki Albert innanbúðarmaður hans. AE ATHS. Það skal tekið fram að fyr- irsögn á umsögn minni um leikrit Jóns Hjartarsonar, Svört sólskin, var ekki frá mér komin. Henni var breytt án samráðs við mig. AE virtust höfundur og aðalleikari vera komnir upp í hom og eina lausnin vera að senda búðarmann á fyllirí að hætti landans. Annars hefði myndin allt eins getað heitið „Lif í kjörbúð" því að mannleg samskipti í dagsins önn, svipmyndir úr búðinni, smáerjur viðskiptamanna og amstur starfs- fólksins er það sem eftirminnileg- kennd með öllum þessum innskot- um. Tæknilega er myndin ágætlega gerð, hljóðsetning góð og mynda- takan oft reglulega snjöll. Af öllum þeim hlutverkum, sem Ágúst Guð- mundsson leikur við gerð þessara myndar, fannst mér hlutverk hans sem leikstjóra og stjómanda upp- töku best og hann hefur haft góða menn bak við kvikmyndavélamar, Þessir heiðursmenn kepptu í því hver væri fljótastur að drekka úr pela með túttu, en í pelanum var ávaxtasafi. DV-mynd Ægir Kristinsson Fáskrúðsfjörður: Aldraðir í eins dags ferð Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúösfiröi; SI. sunnudag buðu Lionsklúbbamir ""a Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breið- dalsvík og Djúpavogi öldmðu fólki á þessum stöðum til eins dags ferðar. Lagt var af stað frá Fáskrúðsfirði um kl. 8 á sunnudagsmorguninn í sólskini og 20 stiga hita og ekið sem leið liggur til Breiðdalsvíkur. Þar hittust ferðafé- lagamir af suðurfjörðum. Síðan var farið inn að Þorvaldsstöðum í Breið- dal, þar lýsti Valborg Guðmundsdóttir í Tungofelli staðháttum. Hádegisverð- ur var í Staðarborg. Eftir hádegi var lagt af stað inn Breiðdal og yfir í Skriðdal, stansað var við Þingmúla í Skriðdal. Þar lýsti Sölvi Ólason úr Lionsklúbbi Fáskrúðsfjarðar stað- háttum, en hann er fæddur í Þingmúla. Mörg ömefni em við Þingmúla s.s. Þinghóll, Goðatún, Goðasteinn og Goðatóttir auk annarra. Frá Þing- múla var haldið til Egilsstaða og síðan til F áskrúðsfj arðar en þar var snæddur kvöldverður í gmnnskólanum. Eyjólf- ur Ólafsson og Jón Sigurðsson frá Djúpavogi sungu dúett við góðar und- irtektir matargesta. Að kvöldverði loknum sungu Bima Bjömsdóttir og Aðalbjörg Magnúsdóttir gamanvísur úti á skólalóðinni, síðan var stiginn (íáns og vom ferðafélagamir, sem vom um 150, alveg himinlifandi yfir ferða- laginu og veitingum öllum sem vom í boði klúbbanna. Uppgjör Listahátíðar: „Verðum sennilega í kringum núllið“ „Við erum að byrja á uppgjör- inu núna og ég get ekki annað sagt en að þetta líti bærilega út,“ sagði Salvör Nordal, fram- kvæmdastjóri Listahátíðar, í samtali við DV. Að sögn Salvarar gengu flest atriðin ágætlega upp, að undan- skildum opnunartónleikunum sem Cecile Licad hélt. Hún keppti þar við fótbolta og kosn- ingar og hafði það slæm áhrif á aðsóknina. Heildarkostnaðaráætlun Listahátíðar hljóðaði upp ó 21. 381.600 kr. og tekjuliðurinn var áætlaður 13.631.000 kr., i að- gangseyri, auglýsingum og öðm, auk 7.750.600 kr. í styrkjum frá ýmsum aðilum. Salvör sagðist telja að útkoman yrði nálægt núllinu og verður það að teljast gott ef satt er, miðað við það tap sem óður hefur verið á Listahá- tíð. Varðandi þá listamenn sem forfölluðust sagði Salvör að nokkur aukakostnaður hefði ve- rið við að fá aðra til að hlaupa í skarðið. „I samningum við þetta fólk var gert ráð fyrir veikinda- forföllum og þar eð þau vom boðuð með eðlilegum hætti eig- um við enga bakkröfu vegna samningsbrota. Kostnaðurinn við að fá Margaret Price í stað Katju Riccarelli var talsverður og munaði um 200.000 til 300.000 kr. á þvi. Þetta jafnaði sig aftur upp því Kristján Jóhannsson var ódýrari en Paata Burchuladze." Poppið verpti gulleggjum fyrir Listahótið, en gert hafði verið ráð fyrir um 6000 áheyrendum en í stað þess urðu þeir um 10. 000. Endanlegan gróða er ekki enn búið að reikna nákvæmlega út. Sýning Dramaten á Fröken Júlíu var langdýrasta atriðið og hljóðaði kostnaðaráætlun upp á 2,7 milljónir. Á móti kom að visu styrkur frá Norrænu leiklistar- nefndinni upp á 500.000 kr. en miðað við að sýningamar á verk- inu vom einungis þrjár er líklegt að þessi viðburður verði sá kostnaðarsamasti þegar upp er staðið. -S.Konn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.