Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Qupperneq 32
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 25. JUNf 1986.
Miðneshreppur:
Lögtaki
synjað
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflug-
velli hefur dæmt í máli Miðneshrepps
gegn utanríkisráðherra þar sem
hreppurinn krafðist lögtaks á eignum
ríkissjóðs til tryggingar ógreiddu
álögðu byggingarleyfisgjaldi vegna
flugstöðvarbyggingarinnar. Var kröfu
hreppsins um lögtak synjað.
I dómsniðurstöðum segir að dómur
þessi sé m.a. byggður á þeim forsend-
um að sú byggingamefhd sem utan-
ríkisráðherra skipaði á sínum tíma sé
lögmæt en hún veitti byggingaraðila
stöðvarinnar byggingarleyfi.
Upphæð sú er krafist var lögtaks
i.^fyrir nam 572.000 kr. er lögtaksbeiðnin
var lögð fram í nóvember í fyrra. Lög-
maður hreppsins, Ólafur Ragnarsson
hrl., sagði í samtali við DV að hann
reiknaði með því að þessum úrskurði
yrði áfrýjað þar sem um prófinál væri
að ræða. -FRI
Landhelgisgæslan:
. Rak tvö
skip til
hafnar
Landhelgisgæslan rak tvö skip til
heimahafnar af miðunum noröur af
Homi fyrir skömmu. í öðru tilfellinu
var réttindalaus maður við stjóm og
í hinu var haffæmiskírteini útmnnið.
Skip þessi eru Ingibjörg ST 37 og
Hafbjörg HU 100. Á Ingibjörgu var
skipstjórinn í fríi og stýrimaður í stöðu
hans. Sá reyndist ekki hafa réttindi
til skipstjómar og var þar að auki með
"'•undanþágu til stýrimannsstarfeins.
Haffæmiskírteini Hafbjargar rann
út 10. maí sl. og að sögn Landhelgis-
gæslunnar var ástandið á öllu um
borð mjög lélegt. Báðum þessum mál-
um var vísað til Siglingamálastofnun-
ar. -FRI
ALLAR GERÐIR
SENDIBILA
LOKI
Líklega er bara
fyrsti april í dag!
Gengislækkun er
ekki í myndinni
Gengislækkun á næstunni er ekki
inni í myndinni að sögn heimildar-
manna DV hjá ríkisstjóminni. Sumir
fúlltrúar fiskvinnslu hafa kvartað
að undanfomu og sú spuming vakn-
að hvort ríkisstjómin þyrfti að falla
frá stefnunni í gengismálum og
lækka gengið. Við það mundu for-
sendur kjarasamninga bresta og
verðbólga verða meiri en ætlunin er.
Talsmenn ríkisstjómarinnar segja
að plús sé í sjávarútvegi í heild.
Útgerðin gangi vel. Staða fiskvinnsl-
unnar sé þolanleg eða með öðrum
orðum nálægt núlli, hvorki hagnað-
ur né tap. Góðar horfúr séu í salt-
fiskmálum. Fiystingin sé nálægt
núlli.
Gengi hefur að meðaltali lítið sem
ekkert breyst frá því að kjarasamn-
ingar voru gerðir. Þá hefui- gengi
Bandaríkjadollars verið nær óbreytt
frá áramótum.
-HH
Einar Olafsson, útsölustjóri á Lindargötunni, með tveggja lítra hvítvínskút sem fæst á 450 krónur.
Léttvín á útsölu í „Ríkinu
ki
Hið ótrúlega gerðist í morgun.
Útsala hófst í „Ríkinu“. Dæmi eru
um meira en helmingsafslátt.
Viðskiptavinir vom famir að
streyma að þegar útsalan hófet upp
úr klukkan níu í morgun í áfengis-
versluninni við Lindargötu. Á
morgun hefet einnig útsala í „Rík-
inu“ á Akureyri. Um þrjú þúsund
flöskur verða seldar.
Útsalan nær eingöngu til borð-
vína. Um 25 tegundir af rauðvíni,
hvítvíni og rósavíni fást með þriðj-
ungsafslætti og í einstaka tilfellum
meiri.
„Þetta em tegundir sem ekki hafa
selst mjög mikið,“ sagði Höskuldur
Jónsson, forstjóri ÁTVR.
„Ég hef ekki trú á því að þessi vín
falli að bragðlaukum ritstjórans
ykkar,“ sagði Einar Ólafsson, út-
sölustjóri á Lindargötu.'
Mest verður selt af bandaríska
rauðvíninu Inglenook. Flaska, sem
rúmar 1,5 lítra, lækkar úr 790 krón-
um niður í 500.
Hvítvínið Chardonnay Christian
Brother lækkar um meira en helm-
ing, úr 530 krónum niður- í 250
krónur. -KMU
Veðrið á morgun:
Skýjað
og sól
Veðrið á morgun verður nánast
eins og í dag. Suðvestanátt er ríkj-
andi á landinu, skýjað sunnan- og
vestanlands, en bjart á Norður- og
Austurlandi. Hiti verður á bilinu
9-16 stig, heitast á Austurlandi.
„Trúi því ekki
að forsætis-
ráðherra leki“
- segir Friðrik Sophusson
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra og Jón Helgason dómsmála-
ráðherra hafa átt fund með
Rannsóknarlögreglu ríkisins um
hugsanlegan þátt Alberts Guðmunds-
sonar iðnaðarráðherra í svokölluðu
Hafskipsmáli. Forsætisráðherra stað-
festi þetta í samtali við DV í morgun
en vildi ekki greina nánar frá efni
fundarins.
Á þingflokksfundi sjálfstæðismanna
á mánudaginn var kom fram þó nokk-
ur óánægja með framgöngu forsætis-
ráðherra í þessu máli.
„Þetta var ekki rætt á fundinum
sjálfum," sagði Friðrik Sophusson,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins, í
samtali við DV. „En undir kaffiborð-
um var því haldið fram að Steingrímur
hefði haldið fund með Hallvarði Ein-
varðssyni rannsóknarlögreglustjóra
og að æ síðan hefðu hinir og þessir
menn úti í bæ haft ýmis málsatvik
efitir Steingrími. En ég trúi því ekki
sjálfur að forsætisráðherra sé að segja
óviðkomandi fólki frá einstökum at-
riðum þessa máls,“ sagði Friðrik.
-EA
Smáfiska-
drápí
Eyjum
- skyndilokun
Sjávarútvegsmálaráðuneytið hefur
gefið út tilskipun um skyndilokun á
miðunum rétt norðvestan við Vest-
mannaeyjar vegna mikils magns af
smáþorski sem hefur verið veiddur þar
undanfama daga.
„Það er alveg greinilegt að þeir hafa
verið að landa smáþorski að næturlagi
og matsmaður hefur þá ekki orðið var
við smáfiskinn. Það vill oft verða
þannig með nætui'löndun að þegar
búið er að salta fiskinn í kör til gá-
maútflutnings að menn geta ekkert
verið að gramsa langt ofan í körin.
Matsmaður hefur gefið vottorð fyrir
þessum afla án þess að vita af smáfisk-
inum.“ sagði Björn Jónsson, veiðieftir-
litsmaður í Reykjavík.