Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986.
Fréttir
Hafa stefnt
hreppsnefnd-
inni vegna skipt-
ingar á „Blöndu-
peningunum1
Deilur hafa blossað upp á milli
Svínavatnshrepps annars vegar og
Þóreyjar Daníelsdóttur og Hreins
Ingvarssonar hins vegar. Deilumar
snúast um skiptingu á fé því sem
Landsvirkjun greiðir til Svínavatns-
hrepps gegn því að hestar verði ekki
reknir á Auðkúluheiði. Greiðir
Landsvirkjun einnig til Torfalækjar-
iuepps og Blönduóshrepps. Hefúr
Landsvirkjun að sögn heimamanna
greitt svokölluð „fjallskil" til hrepp-
anna. Hefur fénu síðan verið útdeilt
eftir fóðurbirgðaskýrslum til þeirra
er átt hafa hesta á heiðinni. Mun
þetta vera kostnaður við að koma
hestunum i haga annars staðar.
Hestar Þóreyjar og Hreins hafa
verið í haga í Svínavatnshreppi en
samkvæmt heimildum DV neitar
hreppurinn að greiða þeim hlut af
þessu fé vegna þess að þau búa á
Blönduósi. „Hreppurinn hefur ekki
tekið fóðurbirgðaskýrslur af hestun-
um en Búnaðarsambandið hefur
úrskurðað að taka eigi þær skýrslur
af þeim stað þar sem hestamir ganga
allt árið. Þau hafa þurft að leita
annað með sína hesta í haga án þess
að fá neinar bætur og nú hafa þau
ákveðið að leita réttar síns,“ sagði
heimildarmaður DV.
Vildu ekkert segja
Málsaðilar vildu sem minnst
segja. Þórey sagði að málið yrði tek-
ið fyrir fljótlega og þangað til vildi
hún sem minnst ræða um það. Sigur-
jón Lárusson, oddviti hreppsins, var
ekki á því að tjá sig um þessi mál
þegar hann var inntur eftir sjónar-
miðum hreppsins. „Þetta er mjög
flókið mál og engin ástæða til að tjá
sig um það í blöðum,“ sagði Siguijón.
JFJ
„Jæja vinur, nú fer að kólna. Ert þú búinn að fá hesthússpláss i vetur?
Nei, ekki enn en það stendur tíl bóta. Eigum viö ekki að vera áhyggjulaus-
ir þangað til og bregöa á leik með hinum tryppunum?" DV-mynd ej.
Yfíifiskmatsmaður:
„Ofgamall í svona erfíði“
„Ég er búinn að starfa við síldarmat
í yfir 24 ár og hef aldrei komið nálægt
ferskfiskmati. Ég neitaði að taka að
mér þetta starf bæði vegna gífurlegrar
yfirvinnu sem fylgir því og svo treysti
ég mér hreinlega ekki til þess aldurs
og heilsu vegna, auk þess sem mér
þótti tími til þjálfunar fyrir það vera
of stuttur, 3-4 dagar,“ sagði Skarp-
héðinn Agnars, 68 ára gamall yfir-
matsmaður. Fiskmatsstjóri fór fram á
það við sjávarútvegsráðuneytið að
Skarphéðinn yrði tekinn af launaskrá
fiá og með 21. júlí vegna þess að hann
vildi ekki taka að sér tímabundið
ferskfiskmat í Keflavík.
„Ég vona bara að þetta mál leysist
áður en síldarvertíð hefst í september
og ég hefji störf mín á ný við sfldar-
matið, mér skilst að það sé nú til
umræðu milli sjávarútvegsráðuneytis
og fiskmatsstjóra.
Gylfi Gautur Pétursson, fulltrúi hjá
sjávarútvegsráðuneytinu, sagði að
Skarphéðinn tæki við sfldarmatinu
næstu vertíð að venju ef fiskmatsstjóri
sendi ekki beiðni til sjávarútvegsráð-
herra um lausn Skarphéðins úr starfi.
Þá kæmi til kasta ráðuneytisins að
úrskurða í málinu.
„Ég vil ekkert segja um hvað við
gerum í þessu máli, ræði ekki mál ein-
stakra starfsmanna í blöðum, nema
að það er skylda Skarphéðins sem yfir-
matsmanns að taka við ferskfiskmat-
inu við þessar kringumstæður," sagði
Halldór Ámason fiskmatsstjóri er
hann var spurður hvort beiðni yrði
send frá ríkismati sjávarafurða um að
Skarphéðinn Agnars yrði leystur frá
störfúm.
- Er ekki tekið tillit til aldurs og
heilsu Skarphéðins þegar rætt er um
neitun hans?
„Það er tekið tillit til allra þeirra
þátta sem skipta máli. Hvort þessi
þáttur skiptir máli segi ég ekkert um.“
-BTH
Jafhtefli
Skákunnendur fjölmenntu á Park Lane hótel-
ið í London í gær er Karpov og Kasparov
hófu sjöttu einvígisskákina sem var frestað á
föstudag að beiðni Kasparovs. Skákin varð
snemma spennandi, Kasparov fómaði peði
fyrir sóknarfæri og að því er virtist vænlega
stöðu. Eftir nítján leiki brá hins vegar svo við
að hann lagðist undir feld. Velti vöngum yfir
einum leik i klukkustund og níu mínútur og
þá varð salnum ljóst að frumkvæði hans var
ekki eins ömggt og ætla mátti.
„Er heimsmeistari hugsar i yfir klukkustund
hlýtur hann að finna góðan leik,“ varð einum
áhorfandanum að orði er honum var farið að
leiðast þófið. „Nei, hann veit bara ekki hvað
hann á að gera,“ gall þá í öðrum en um leið
og hann sleppti orðinu birtist leikur á sýning-
arborðinu, hrókur til Davíð sjö. Við „stór-
meistarahringborðið“ hafði engum komið sá
leikur til hugar. Karpov hafði aftur á móti
allt á hreinu. Svar hans kom eftir aðeins
þriggja mínútna umhugsun, síðan mikil upp-
skipti og hann náði sjónarmun betra tafli.
Þannig var staðan er skákin fór í bið.
Karpov á heilbrigðari stöðu en jafiit er á liði
og mislitir biskupar gera yfirbragð hennar
ákaflega jafiiteflislegt. „Staðan er jafntefli,“
sagði hollenski stórmeistarinn Jan Timman,
„en þó er staða Karpovs betri. Hann hefur
sálfræðilegan þrýsting. Kasparov verður að
sitja sem fastast og horfa á slæma peðastöðu
sína.“
Fyrstu augnablik skákarinnar í gær vom
athyglisverð. Tíu mínútum áður en taflið átti
að hefjast renndi hvítur Mercedes Benz glæsi-
vagn Karpovs upp að hótelinu og harm hélt
til svítu sinnar. Kasparov kom sex mínútum
síðar, á gráum Ford, en hann var aftur á
móti fyrri til inn á sviðið. Karpov birtist á
sviðinu rétt áður en Lothar Schmidt yfirdóm-
ari setti klukku Kasparovs í gang. Meistaram-
ir heilsuðust, Kasparov leit upp og í nokkrar
langar sekúndur horfði hann rannsakandi á
heimsmeistarann fyrrverandi. Lék síðan
kóngspeði sínu fram um tvo reiti - í fyrsta
sinn í einvíginu.
Karpov svaraði með Petrovs-vöm og þeir
endurtóku leiki frá fimmtándu skákinni í síð-
asta einvígi - þar til Kasparov breytti út af
og lék leik sem hann segir „ósannfærandi" í
nýrri bók sinni um einvígið. Karpov var vel
með á nótunum og kemur sjálfsagt til með að
þreyta laxinn í dag, er biðskákin verður tefld
áfram.
Sjötta skákin í heimsmeistaraeinvíginu fór í bið í gær:
en þó hehir Kaipov eHthvað
- sagði Jan Timman um biðstöðuna
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Petrovs-vöm
l.e4
Þessi kom öllum á óvart þvi að Karpov hef-
ur átt í erfiðleikum með að finna snjalla vöm
við framrás drottningarpeðsins um tvo reiti
sem báðir hafa haldið tryggð við í einvíginu
til þessa.
I. -e5 2.RÍ3 Rf6
Beint framhald frá sfðasta einvígi. Skákin
nú teflist eins og fimmtánda skákin en þá
náði Karpov auðveldu jafhtefli með svörtu í
22 leikjum.
3.Rxe5 d6 4.RÍ3 Rxe4 5.d4 d5 6.Bd3 Rc6 7.6-
0 Bg4 8.c4 RfB 9.Rc3 Bxf3 lO.Dxfí Rxd4
II. De3 +
Nýr leikur. í áðumefndri skák í Moskvu lék
Kasparov ll.Hel+ Be7 12.Ddl Re6 13.cxd5
Rxd5 14.Bb5 + c6 15.Rxd5 cxbð 16.Db3 en eftir
16.-00 tókst Karpov að halda jafnvæginu.
Textaleikurinn er afrakstur heimavinnunnar
en vitanlega er Karpov við öllu búinn.
Il.-Re6 12.cxd5 Rxd5 13.Rxd5 Dxd5 14.Be4
Db5
„Svarta staðan er traust og hvítur er peði
undir,“ segir Kasparov í bók sinni um ein-
vígið í Moskvu og telur þetta framhald
ósannfærandi á hvítt. Hann og aðstoðar-
mannahersveitin hafa greinilega komist að
annarri niðurstöðu síðar, nema aðeins hálfur
sannleikurinn hafi verið settur á prent.
15.a4 Da6 16.Hdl Be7
Leikir svarts em nánast þvingaðir. Þannig
hefði 16.-Bc5 boðið hættunni heim vegna 17.
Df3 c6 og nú er hróksfómin 18.Hd7! sterk. Ef
svartur þiggur hrókinn lendir hann eftir 18.
Kxd7 19.Dxf7 + Be7 20.BÍ5 Dc4 21.Bg5! í
óyfirstíganlegum erfiðleikum vegna hótunar-
innar 22.Bxe6+ Dxe6 23.Hdl og vinnur. Betra
er að hróka en eftir 18.-00 19.Bd3 Db6 20.
a5Db4 21.Bd2! á hvítur einnig betra, þvf að
biskupinn er friðhelgur vegna biskupsfómar
á h7 og ef 21.-Dxb2, þá 22.Bc3 og aftur má
ekki snerta biskupinn.
17 .b4 0-0
Þeir tefldu báðir hratt. Karpov kýs að forða
kóngnum frá miðborðinu og skeytir engu um
b-peðið.
18. Dh3 g6 19.Bb2
Til greina kom 19.Dc3!? eins og Jóhann
Hjartarson stakk upp á en hann er nú staddur
í London og teflir á opna samveldismótinu
ásamt Jóni G. Viðarssyni (vann Indverjann
Singh í 1. umferð en Jón tapaði fyrir Murey
frá Israel).
19. -Dc4!
Sterkasti leikurinn - hann kemur drottning-
unni í leikinn. Slæmt var 19.-Bxb4? vegna 20.
Hd3! með hótuninni 21.Dxh7 + Kxh7 22.Hh3+
og mátar. Einnig virðist 19.-RÍ4 20.De3 Bg5
21.Khl Hae8 22.DÍ3 ekki jafna taflið.
Skákmeistaramir takast í hendur. DV-mynd Jón L. Ámason.
Skák
Jón L Ámason
í þessari stöðu hugsaði Kasparov sem lengst.
Allir bjuggust við 20.Bd5 sem Karpov svarar
með 20.-Dc2 (en ekki 20.-Dxb4? vegna 21.Ba3
og eitthvað lætur undan) og virðist halda
velli. Þá er 21.Be5 Had8 22.Hdcl annaðhvort
svarað með 22.-Dd2 eða jafhvel 22.-Dxcl+'
23.Hxcl Hxd5 og svartur á prýðilegt tafl.
20. -Hae8!
En ekki 20.-Dxe4? vegna 21.Dc3! með yfir-
burðastöðu á hvítt. Karpov lék að bragði.
21. Bd5 Dxb4 22.Bc3
Eini leikurinn því að 22.Ba3 er slæmt vegna
22. -Dd4 með ásetningi á hrókinn og mát-
hótun. Nú einfaldast taflið.
22.-Rf4 23.Bxb4 Rxh3+ 24.gxh3 Bxb4 25.
Hxc7 b6 26.Hxa7 Kg7 27.Hd7 Hd8 28.Hxd8
Hxd8 29.Hdl
Ákaflega jafnteflislegt en Karpov heldur
sálfræðilega skæruhemaðinum áfram enda
getur hann bætt stöðu sína á meðan Kasparov
verður að bíða.
29.-Hd6 30.Hd3 h5 31.Kfl Hd7 32.Kg2 Bc5
33.KÍ1 h4 34.Bc4 He7 35.HÍ3 Bd6 36.Kg2 Hc7
37.Bb3 f5 38.Hd3 Bc5 39.Hc3 K16 40.Hc4 g5
41.Hc2 Ke5
Biðstaðan. Kasparov (hvítur) lék biðleik.
JLÁ