Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986.
Fréttir
Óeðlilegt kartöfluverð:
Hafá hækkað 100% umfram
framfærsluvísitölu á árinu
Verð á kartöflum á íslandi í dag
er óeðlilega hátt að mati forráða-
manna Neytendasamtakanna. Frá
því í júlíbyrjun hefur verðið hækkað
úr 47 kr. í 82 kr. kílóið að meðal-
tali. Það er rösklega 74% hækkun.
Neytendasamtökin benda á að í
dag væri hægt að flytja inn kartöflur
sem kostuðu á bilinu 44-57 kr. kg.
Ef jöfnunargjaldið hefði ekki komið
til myndu þessar kartöflur kosta á
bilinu 29-39 kr. kg.
Þegar íslenskar kartöflur komu á
markaðinn í septemberbyijun í fyrra
kostuðu þær 37 kr. kílóið og eru því
seldar nú á 122% hærra verði en þá!
A undanfomum 12 mánuðum hefúr
framfærsluvísitalan hækkað um
21,5% og matvöruvísitalan um 23%.
Eðlilegt verð á kartöflum miðað við
það ætti að vera um 45 kr. kg.
Verðlækkun ekki i nánd
„Það stefnir í metkartöfluupp-
skem í ár en verðlækkun á kartöfl-
um er ekki í sjónmáli. Við teljum
að þær verðhækkanir sem orðið hafa
á kartöflum undanfarið sé óveij-
andi, það er slæmt fyrir neytendur
og það er einnig slæmt fyrir fram-
leiðendur. Neytendur draga hrein-
lega úr kartöfluneyslu sinni eins og
berlega hefur komið í ljós á undan-
fömum árum. Kartaflan víkur af
borðum neytenda fyrir hrísgrjónum
og öðrum matvörum," sagði Jóhann-
es Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, í samtali við DV.
Neytendasamtökin boðuðu í annað
sinn á skömmum tíma til blaða-
mannafundar vegna ástands í
kartöflumálum.
„Við teljum að hagsmunir neyt-
enda séu algerlega fyrir borð bomir
í verðlagningu kartaflna. Þeir víkja
fyrir hagsmunum seljanda eins og
jafhan áður,“ sagði Jóhannes.
Innflutningsbann á kartöflum er
nú gengið í gildi þannig að neytend-
ur eiga ekki í nein hús að venda
með þessar dým kartöflur.
„Það væri hægt að hafa allt að
þrisvar sinnum ódýrari nýuppteknar
kartöflur en nú er og fyrra árs kart-
öflur fyrir allt niður í 20 kr. kg,“
sagði Jónas Bjamason, stjómar-
maður Neytendasamtakanna, en
hann hefur í fjölda mörg ár verið
einn aðalbaráttumaður samtakanna
í kartöflustríðum sem háð hafa verið
við yfirvöld.
Jónas sagði að jöfnunargjaldið,
sem landbúnaðarráðherra lagði á
innfluttar kartöflur, gæti sennilega
Neytendasamtökin telja kartöfluverð óeðlilega hátt hér á landi.
flokkast undir stjómarskrárbrot og
ráðherra hefði misnotað vald sitt
gróflega með útgáfú reglugerðarinn-
ar um gjaldtökuna. Jónas sagði að
með þessum aðgerðum hefði raun-
verulega verið kippt stoðunum
undan forsendu fijálsrar verðmynd-
unar sem byggðist á fijálsri sam-
keppni.
Neytendasamtökin skora á fram-
leiðendur og dreifingaraðila að
lækka verðið á kartöflum nú þegar
og öðrum þeim garðávöxtum sem
hækkað hafa óeðlilega mikið.
Þá vilja Neytendasamtökin beina
því til alþingismanna að fella niður
á næsta þingi heimild landbúnaðar-
ráðherra að leggja allt að 200%
jöfnunargjald á innfluttar kartöflur
og vörur úr þeim.
Neytendasamtökin óska einnig
eftir því að verðlagsyfirvöld rarrns-
aki verðmyndun á kartöflum og
grænmeti og beri saman við verð-
lagninguna áður en hún var gefin
frjáls.
Neytendasamtökin hvetja einnig
stjómvöld til þess að fella niður inn-
flutningsgjöld á kartöflum og
grænmeti.
-A.BJ.
Peningamarkaöur
VEXTIR (%) hæst
Innlén óverötryggö
Sparisjóðsbækur óbundnar 8-9 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ab.Lb.Vb
6 mán. uppsögn 9.5-12.5 Ab.Vb
12 mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað i 3-5 mán. 8-13 Ab
Sp. í 6 mán. og m. 8-13 Ab
Ávisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-35 Lb
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistryggð.
Bandarikjadalur 6-7 Ab
Sterlingspund 8-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab
Danskar krónur 6-7.5 Ab.Sb
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 15.25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge og19.5
Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 7-9
Útlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 4 Allir
Til lengritíma 5 Allir
Utlán til framleiöslu
ísl. krónur 15
SDR 8
Bandarikjadalur 8.25
Sterlingspund 11.75
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskírteini
3ja ára 7
4ra ára 8.5
6ára 9
Með vaxtmiðum(4 ár) 8.16
Gengistryggð(5 ár) 8.5
Almenn verðbréf 12-16
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5
Oráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala 1463 stig
Byggingavisitala 272.77 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaöi 5% 1. júli
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverös:
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 140 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er
miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
flestum bönkum og stærri sparisjóðum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán. Skammstafanir:
Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðar-
bankinn, Ib = Iðnaðarbankinn, Lb=
Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn,
Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunar-
bankinn, Sp = Sparisjóðimir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
Þjóðarbókhlaðan:
Viðgerðir á hliðar-
turnum vegna leka
„Þama er verið að ganga frá þétt-
ingum meðfram hliðartuminum á
húsinu vegna þess að leka hefur orðið
vart. Hinir hhðartumamir verða lag-
færðir á næstunni," sagði Finnbogi
Guðmundsson, landsbókavörður og
formaður byggingamefndar Þjóðar-
bókhlöðunnar, þegar haiin var spurð-
ur hvaða framkvæmdir það væm sem
nýlega hófust þegar vinnupallar vom
reistir við einn fiögurra hliðartuma
byggingarinnar.
„Annars er þetta minniháttarleki,
er einkum á steypusamskeytum og þar
er nú verið að þétta. Það verður að
ganga frá lagfæringum við þetta áður
en farið er í frekari framkvæmdir inn-
anhúss. Viðgerðimar ættu ekki að
taka langan tíma.“
Finnbogi sagði ennfremur að í vetur
hefðu verið í gangi framkvæmdir inn-
anhúss í bókhlöðunni, við múrverk
og fleira, en næsta skref utanhúss
Búið er að reisa vinnupalla við einn hliðarturn Þjóðarbókhlöðunnar en leka hefur orðið vart á steypusamskeytum.
DV-mynd Óskar Öm
Utsala á Prjónagarni
Brasil
Rio ...
Lovely
Áður
.. kr>24 ....
.. kj^wr^,
Martinique Mohair áður J&Tnú kr 80
NÚ Áður Nú
kr87 NewYork . kr 92
kr 72 Flits kiWM ... . kr 95
kr 93 Joy kiwor... kr 73
Sértilboð á öðrum tegundum - Munið Ráðgjafaþjónustuna og ókeypis uppskriftir í kaup-
bætir
INGRID,
Hafnarstræti 9 JK-Póstverzlun Sími 24311/621530
væri m.a. að setja gler í glugga og
ganga frá innganginum að sunnan-
verðu.
Með aukinni fiárveitingu til Þjóðar-
bókhlöðunnar næstu þrjú árin er
áætlað að byggingu hennar verði lok-
ið á þessum áratug en síðan fram-
kvæmdir hófúst árið 1978 hafa þær
legið niðri samanlagt í þijú ár. Er nú
loks fvrirsjáanlegt að skriður komist
á framkvæmdimar.
-BTH
UVEKAN
alla vikuna
---------4