Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986.
Utlönd
Segja ræningjann hafa verið
sannfærðan um að altt gengi vel
Tveir gislanna höfðu rétt komist út úr flóttabifreiðinni er hún sprakk skyndiiega í loft upp. Beið ræninginn þar
bana ásamt einum gisla sinna er hann hafði þvingað til að aka bifreiðinni á flóttanum.
Níu hundrað mílna róðri lokið
Haiikur LárasHauksam, DV, Kaupmannahofti:
Nýjustu fréttir af Færeyingnum Ove
Joensen, sem frægur er orðinn i
Danaríki fyrir róður sinn frá Færeyj-
um til Danmerkur, herma að hann
sé nú kominn til Sjálands.
Á hann að hafa komið til Gilleleje
á Norður-Sjálandi á laugardags-
kvöld eflir að hafa verið tepptur á
Jótlandi í tíu daga vegna mótvinds
og mikilla strauma.
Fékk hann að vonum góðar mót-
tökur og meðal gesta voru Færey-
ingar í þjóðbúningum, er dönsuðu
færeyska þjóðdansa, og síðast en
ekki síst móðir hans, er beðið hefrir
eftir syninum þar í tíu daga.
Ove fór auðvitað ekki í land, en
það gerir hann fyrst í Kaupmanna-
höfh er hann tekur land við Löngu-
línu og gefúr Hafmeyjunni
rembingskoss.
Reiknað er með að hann nái þang-
að um hádegi í dag og þar verði
aragrúi manns til að hylla kappann
eftir 900 sjómílna róður.
Guðrún Helga Sgurðardóttir, DV, Helsinki:
Gíslarnir er voru í bílnum, er
sprakk í loft upp hér í Mikkeli í Finn-
landi, telja að það hafi verið ræning-
inn sjálfur er sprengdi bílinn í loft
upp.
Hann hafi ávallt verið með dína-
mítið í bílnum tilbúið til sprengingar.
Þeir segja einnig að ræninginn
hafi allan tímann verið sannfærður
um að allt myndi ganga vel, lögregl-
an myndi láta hann vera og þess
vegna myndi hann geta sleppt gísl-
unum lifandi að lokum.
Anne Hmalainen, önnur þeirra
tveggja er sluppu lifandi úr spreng-
ingunni, segir að lögreglan hafi allan
tímann gefið þeim merki um að koma
sér út úr bílnum en þær hafi ekki
talið sér það fært því þá hefði bíllinn
verið sprengdur.
Hún segir að lögreglan hafi aldrei
gefið ræningjanum tækifæri til að
koma sínum málum að enda hafi
hann orðið mjög taugaóstyrkur um
leið og lögreglan nálgaðist.
Hafi hann trommað með fmgri á
takkann á straumbreytinum er átti
að leiða til dínamítsins er ræninginn
hafði ávallt með sér.
Einnig hefur komið í ljós að gíslun-
um leið vel með ræningjanum í
bílnum á leið til Mikkeli. Þau hafi
rætt saman í bróðemi um fjölskyldu-
mál sín og ýmislegt annað í þeim
dúr. Segja gíslamir að ef þeir hefðu
fengið að aka á braut áður en spreng-
ingin varð í bílnum í Mikkeli hefði
sennilega allt farið vel.
Enginn „fjöl-
miðlasirkus“
Bandarískir og sovéskir sérfræðing-
ar í afvopnunar- og utanríkismálum
hefja í dag annan dag viðræðna um
samskipti ríkjanna í Moskvu.
í gær fúnduðu embættismenn ríkj-
anna í alls átta klukkustundir en
ekkert hefur verið látáð uppi um gang
viðræðnanna.
Það eina sem formaður bandarísku
sendinefndarinnar, Paul Nitze, ráð-
gjafi Reagans forseta og einn helsti
sérfræðingar Bandaríkjamanna í af-
vopnunarmálum, vildi segja um
viðræðumar var að þær hefðu verið
„alvarlegar".
Haft er eftir bandarískum embættis-
mönnum í Moskvu að samningsaðilar
hefðu gert með sér gaghkvæmt sam-
komulag um að láta ekkert uppi við
fjölmiðla um gang viðræðnanna.
„Þetta em alvarlegar viðræður og
við viljum ekki láta þetta verða að
neinum frölmiðlasirkus," sagði banda-
rískur embættismaður.
Paul Nitze, formaður bandarísku
sendinefndarinnar í Moskvu, hefur
ekkert viljað láta hafa eftir sér um
gang viðræðnanna og aðeins sagt
að þær væru „alvarlegar".
Lange neitar að fallast á
afsögn fjármálaráðhenans
David Lange, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, sagðist í morgun ekki
myndu samþykkja afsögn eins ráð-
herra í ríkisstjóm sinni er bauðst til
að segja af sér embætti fyrir meintan
upplýsingaleka úr ráðuneyti sínu.
Roger Douglas frármálaráðherra
bauðst til að segja af sér í síðustu viku
eftir að upp komst að efnisinnihaldi
fjárlagafrumvarps ríkisstjómarinnar
hafði verið lekið til fjölmiðla.
Að sögn Lange hefur rannsókn
málsins leitt í ljós að fjármálaráð-
herrann átti hvergi aðild að því að
upplýsingamar láku út og hefur hann
því neitað að fallast á afeögn ráð-
herrans.
Að sögn forsætisráðherrans hefur
þegar verið fyrirskipuð opinber rann-
sókn á því hvemig það gat gerst að
efhi fjárlagafrumvarpsins komst til
fjölmiðla mörgum klukkustundum áð-
ur en það var formlega lagt fram á
þjóðþinginu í Wellington þann 31. júlí
síðastliðinn.
Raapikainen
ekki með að ári
Guðrún Helga Sigurðaxdóttir, DV, Heisinlá:
Innanríkisráðherra Finnlands, Ka-
isa Raapikainen, hefur lýst því yfir að
hún muni ekki gefa kost á sér ráð-
herrastól eftir þingkosningamar á
næsta ári.
Innanríkisráðherrann segir í viðtali
við eftirmiðdagsblaðið Uusi Suomi,
Nýja Finnland, að hún sé búin að fá
nóg afþeirri gagmýni og þeim árásum
er hún hafi fengið á sig eftir að hún
varð innanríkisráðherra. Hún segir að
sem ráðherra sé alveg sama hvað hún
geri, alltaf sé hún gagnrýnd og á hana
séu gerður árásir en lítið fari fyrir
þökkunum.
Talið er að gagnrýni sú er innan-
ríkisráðherrann talar um í viðtalinu
sé í sambandi við gagnrýni á hana
eftir ummæli hennar um slysið í
Chemobyl og nú síðast eftir miður
jákvæð ummæli um framgöngu lög-
reglunnar í Mitteli, þar sem tveir
létust og ellefu særðust í sprengingu
er ef til vill hefði vel verið hægt að
komast hjá.
Danskir lögreglumenn eru óánægðir með launakjör sín og útiloka ekki
að beita verkfallsvopninu ef viðunandi samningar nást ekki i janúar
næstkomandl.
Danskir lögregluþjónar í verkfall?
Haukur Lárus Haukaaan, DV, KaupmannaMfn:
Ýmislegt bendir nú til þess að
næsta árið verði stormasamt hjá
dönskum lögregluþjónum.
Kjarasamningaviðræður danska
fjármálaráðuneytisins og samtaka
lögreglumanna í janúar næstkom-
andi geta hugsanlega leitt til fyrsta
verkfalls lögreglumanna í danskri
sögu.
I þessari viku fundar aðalstjóm
danskra lögreglumanna um kom-
andi kjarasamninga.
Segir talsmaður stjómarinnar,
Tommy Agerskov, að almennur vilji
sé meðal lögreglumanna að láta
reglugerðir um skyldur embættis-
manna ríkisins liggja milli hluta ef
ekki næst samkomulag og túlkast
það sem verkfallshótum í flestum
gölmiðlum.
Aðalkrafa lögreglumannanna er
leiðrétting launa og segja þeir að
laun sín hafi ekki fylgt almennri
launaþróun í landinu.
Einnig krefjast þeir meiri sveigjan-
leika í launagreiðslum og hækkaðs
álags vegna vaktavinnu.
Á stjómarfúndinum í vikunni
verður einnig rædd nýjung er felst í
lengingu eftirlaunatíma fyrir vakta-
vinnu þannig að lögreglumaður í
vaktavinnu geti fyrr komist á eftir-
laun.
Haft er eftir talsmanninum að til-
laga þessi verði á meðal aðalkrafiia
lögreglumanna í kjaraviðræðunum.
Segir hann þessar hugmyndir einnig
vera í gerjun hjá öðrum launþega-
samtökum og að um sanngimismál
sé hér að ræða þar sem ýmsir agnú-
ar séu almennt á vaktavinnu. Segir
talsmaðurinn að tími sé til kominn
fyrir danska lögreglumenn að fá al-
mennilega borgað fyrir oft á tíðum
hættulega og krefjandi vinnu.