Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986.
9
Uflönd
Ný ríkisstjóm
í Malaysíu
Mahatir Mohamed, forsætisráðherra Malaysiu, fyrir miðju á meðal stuðnings-
manna eftir kosningasigur flokks sins í þingkosningum í landinu í siðustu viku.
Dularfull mann-
björg undan
Nýfundnalandi
Ný ríkisstjóm hefur tekið við völd-
um í Malaysíu eftir þingkosningar í
landinu í síðustu viku.
Forsætisráðherra landsins, Mahat-
hir Mohamad, tilkynnti í gær um
skipan nýrrar ríkisstjómar en flestir
ráðherrar fyrrverandi stjómar eiga
einnig sæti í hinni nýju stjóm. Flokk-
ur forsætisráðherrans vann sigur í
þingkosningunum, hlaut 148 af 177
þingsætum á þingi landsins.
Myndatökur
um borð í
hrapandi
flugvél
Japönsk lögregluyfirvöld í
Gunma héraði í Mið-Japan stað-
festu í morgun blaðafregnir þess
eðlis að fundist hefði átekin filma
á einu fómarlambi mikils flug-
slyss er varð i héraðinu í fyrra
er 520 manns fómst með Júmbó
þotu japanska flugfélagsins.
Að sögn talsmanns lögregl-
unnar hafði einn farþeganna
tekið myndir í farþegarými þot-
unnar skömmu áður en hún
steyptist á fjallshiygg í Osutaka
fjallgarðinum og splundraðist.
Sýna myndirnar flugfreyjur
leiðbeina farþegum um notkun
súrefnisgríma og andlit farþega
í nokkrum sætaröðum. Að sögn
talsmannsins líta farþegar út fyr-
ir að vera rólegir og skelfingu
er ekki að sjá á nokkm andliti.
Á myndunum sést einnig þoku-
kennd slæða, er liggur um
farþegarýmið, og segja sérfræð-
ingar hana til komna vegna
minnkandi loftþrýstings.
Umsjón:
Hannes
Heimisson
Þijú kanadísk fiskiskip björguðu
í morgun yfir 150 manns i tveim
björgunarbátum undan strönd Ný-
fiíndnalands að því er segir í tilkynn-
ingu kanadísku strandgæslunnar.
Skipstjóri á einu fiskiskipinu sagð-
ist af tilviljun hafa komið auga á
annan björgunarbátinn í mikilli
þoku aðeins rúmlega sex sjómílur frá
landi. Hafði hann samband við tvö
önnur fiskiskip á svæðinu og björg-
uðu þau fólkinu um borð.
Að sögn talsmanns strandgæsl-
unnar er fólkið af austurlenskum
uppruna, hugsanlega frá Sri Lanka.
Að sögn talsmannsins er ekki enn
ljóst af hveiju fólkið var á reki í
gúmbjörgunarbátum á þessum slóð-
um, enginn skipbrotsmannanna
væri enskumælandi og myndi saga
fólksins ekki skýrast f>Ti- en síðdegis
í dag er komið yrði með skipbrots-
menn til hafnar í St. Johns á
Nýfúndnalandi þar sem leitað >tóí
upplýsinga með aðstoð túlks.
Engra skipa er saknað á þeim slóð-
um þar sem björgunarbátamir
fúndust og því talið líklegast að fólk-
ið hafi verið sett í björgunarbáta úr
öðm skipi skammt frá landi.
Að sögn hafnaryfirvalda í St.
Johns hafa aðeins fjögur skip látið
úr höfn i bænum í síðustu viku er
hugsanlega gætu haft þetta marga
farþega um borð. Em það tvö sovésk
flutningaskip, eitt kúbanskt og það
fjórða óþekkt.
Sjóveikur á bauju í
Haukur Lárus Ibuksson, DV, Kaupmaniiahcfa;
„Hvað í ósköpunum er maðurinn
að gera þama,“ spurðu sovéskir sjó-
menn hver annan er þeir áttu leið um
Kattegat á skipi sínu um síðustu helgi.
Það er vakti undmn þeirra var ung-
ur maður er sat einn og yfirgefinn á
bauju langt úti á sjó. Umhverfis bauj-
una vom öldumar tveir metrar á hæð
og sat piltur grafkyrr á henni og starði
út í loftið.
Sovétmennimir gerðu dönskum yfir-
völdum viðvart og kom vitavörður
piltinum til bjargar.
Tildrög þessa atviks vom þau að
pilturinn var ásamt kunningjum sín-
um við veiðar í Kattegat og varð
skyndilega sjóveikur. Því var hann
„settur í land“ á baujunni og sigldu
kunningjamir síðan á brott.
Var meiningin að sækja vininn síð-
ar.
Yfirmaður danska slysavamafélags-
ins er ekki gmnlaus um að hér hafi
verið um spaug að ræða. Spaugið verð-
Kattegat
ur dýrt þar eð vitavörðurinn fær
borgað fyrir björgunina og líklegt er
að slysavamafélagið sendi pilti einnig
reikning þar sem mikil ieitaraðgerð
var skipulögð og sett í gang eftir að
tilkynning sovésku sjómannanna
barst yfirvöldum.
í flotastöð danska sjóhersins segjast
menn aldrei hafa heyrt annað eins og
þar sem enginn bátur var nálægt bauj-
unni varð að hefja umfangsmiklar
björgunaraðgerðir.
Öflug öryggisgæsla á fundi
forsætisráðherra Norðurianda
Haukur Láius Hauksaan, DV, Kaupmannahöfa:
Danskir öiyggisverðir hafa i nógu
að snúast þessa dagana vegna fundar
forsætisráðherra Norðurlanda er hófst
á Fjóni í gær.
Stendur fúndurinn yfir í tvo daga
og hefúr öryggisgæsla hér í Danmörku
aldrei verið viðameiri.
Morðið á Olof Palme er mönnum
enn í fersku minni og við áætlaðan
fund utanríkisráðherra Norðurland-
anna síðar í þessari viku er búist við
engu minni öryggisráðstöfunum.
1 miðri viku býður Margrét drottn-
ing upp á kvöldverð í utanríkisráðu-
neytinu og er þar þrjátíu manns boðið
til veislu. Fjöldi öryggisvarða kemur
hins vegar til með að tvöfalda íjölda
veislugesta og lýsir það óttanum við
hugsanleg hryðjuverk.
Yfirmaður öryggismála dönsku kon-
ungsfjölskyldunnar, Jörgen Porsdal
marskálkur, segir að það sé af sem
áður var. Drottningin og meðlimir rík-
isstjómarinnar geti, ekki ferðast jafn-
frjálst um og áður. Þeir dagar séu nú
taldir er hægt var að sjá drottninguna
í innkaupaferð í mestu makindum með
móður sinni í verslunum höfuðborgar-
innar.
Porsdal sagði í tilefni forsætisráð-
herrafúndarins að dagleg öryggis-
gæsla um konungsfjölskylduna hefði
verið stóraukin og í fullri samvinnu
við hana.
Svefnbekkur, með yfirhillu, dýnu og 3 púðum, kr. 10.720,-.
8 skúffu kommóður kr. 4.210,-.
6 skúffu kommóður kr. 3.430,-.
4 skúffu kommóður kr. 2.750,-.
Hægindastóll kr. 2.290,-.
Öll húsgögnin eru spónlögð með slitsterkri plast-
filmu í eikarlit, kvistafuru og hvítu.
^húsgagnahöllin
Hl'VI W'A'I BÍLDSHÖFÐA 20- 112 REYKJAVÍK -91-681199 og 681410
TON
AF BARNAHÚSGÖGNUM TÖKUM VIÐ HEIM OG
ÞAU MUNU SELJAST UPP Á NOKKRUM DÖGUM
HER ER VERÐIÐ
Svefnbekkur með dýnu og 3 púðum, 190x70 sm, kr. 6.530,- með
góðu bómullarefni.
Svefnbekkur, með endahillu, dýnu og 3 púðum, kr. 9.280,-.
Skrifborð, lengd 120 sm, kr. 3.600,-.
Klæðaskápur, breidd 80 sm, kr. 5.960,-.
Bókahilla, breidd 60 sm, kr. 2.880,-.
Skrifborðsstóll kr. 2.000,-.
Svefnbekkur, með dýnu og 3 púðum, kr. 6.530,- með góðu bómull-
arefni.
Skrifborð, lengd 150 sm, kr. 4.690,-.
Bókahilla, breidd 90 sm, kr. 3.510,-.
Skrifborðsstóll kr. 2.000,-.