Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. „Ekki bara kattafargan í vesturbænum" Spumingin Lesendur Hefur þú í hyggju að auka neyslu þína á hvalkjöti? Guðmundur Björnsson matsveinn: Ég hef alltaf borðað mikið af hval- kjöti svo að ég þarf ekkert að auka neysluna. „Þetta kalla eg gisið net“ Pétur Jónsson hringdi: Undanfarið hefur mikið veiið rætt um herferð lögreglunnar gegn hrað- akstri og ölvun við akstur, og heyrir maður af fólki sem stoppað hefur ve- rið allt upp í fjórum sinnum á ferð sinni um ísland. Ég hef nú aldeilis aðra sögu að segja. Um verslunarmannahelgina fórum við nokkur saman í bíl til Homafjarðar. Þegar við komum til Eystralóns, en þangað em um það bil 500 kílómetrar, sáum við fyrst lög- reglubíl. Þetta kalla ég gisið net, hvar var öll löggæslan sem talað hefur ve- rið um? I þessum eina lögreglubíl, sem við sáum var, aðeins einn lögreglu- maður, og hundleiddist honum greini- lega. Mér er spum, hvar voru allar her- sveitimar um verslunarmannahelg- ina? Allavega vom þær ekki á leiðinni til Homafjarðar og ekki einu sinni á Ártúnshöfða eins og auglýst hafði ve- rið. Ólafía Ingólfsdóttir hringdi: Ég verð nú að segja að það er ekki bara kattafargan í vesturbænum. Ég er búsett í Vogunum og hér er allt morandi í köttum. Ég er ekkert á móti köttum út af fyrir sig en stundum geta þeir skilið eftir sig leiðinda ummerki, þá er ég ekki að tala um étnar rækjur eða rifnar gardínur, heldur kattar- hlandslykt. Fyrir mánuði síðan meig köttur í bamavagninn og er gjörsamlega ómögulegt að losna við lyktina, ég er búin að reyna allar mögulegar aðferðir, en lyktin gýs alltaf upp við og við. Það hefúr greinilega verið fressköttur sem skildi eftir sig þessi ummerki því lyktin er svo sterk. Að svo stöddu hef ég enga löngun til að setja bamið mitt út í vagninn, því hann er svo illa lyktandi. Mér finnst þetta mjög hart því vagninn er sama sem ónýtur. Hvemig í ósköpunum er hægt að losna við kattarhlandslykt? Ef ein- hver kann ráð við þessu, þá endilega komið því á framfæri til DV. „Það er fjarri lagi að verið sé aö gera grin að fólki sem ferðast með strætisvögnum" „Strætisvagninn varð einfaldlega fyrir valinu“ Bjöm M. Björgvinsson skrifar: Varðandi grein í lesendadálki DV þann 5. ágúst síðastliðinn sem ber undirskriftina „Auglýsing Umferðar- ráðs“, vill starfsfólk Umferðarráðs komá eftirfarandi á framfæri. Vegna þess umferðarátaks sem nú stendur yfir þá var ákveðið að gera leiknar sjónvarpsmyndir. Önnur myndin, sem athugasemd var gerð við, fjallar um ólánssaman imgan mann sem ekur ölvaður. Það verður hans hlutskipti, eftir að ökuleyfissvipting tekur gildi, að breyta venjum sínum, til dæmis á þann hátt sem sýndur er í myndinni. Það atriði sem sýnt er í myndinni, þegar viðkomandi bíður eft- ir strætisvagni, er eingöngu táknrænt fyrir breyttan ferðamáta. Það er því fjarri lagi að verið sé að gera grín að fólki sem ferðast með strætisvögnum. Það er aðeins verið að árétta að mað- urinn þarf að breyta venjum sínum. Auðvitað hefði verið hægt að sýna mann sem gengur í vinnuna eða hjól- ar. Strætisvagninn varð einfaldlega fyrir valinu. Starfefólk Umferðarráðs hvetur að lokum alla til að ferðast með strætis- vögnum í von um fækkun umferðar- slysa. Þórunn Baldursdóttir ur: Já, það vildi ég hvalkjöt er ódýrasta kjötið. talsímavörð- gjarnan því öm Lárusson málarameistari: Hvers vegna ekki því mér finnst hvalkjöt gott? „Hvemig f ósköpunum er hægt að losna við kattarhlandslykt?" Óskar Hansson rafvirki: Nei, það hef ég alls ekki. Áslaug Valsdóttir hjúkrunarfræðing- ur: Já, já, það ætla ég að gera því hvalkjöt er uppáhaldsmaturinn Hörður Ólafsson, lögfræðingur fyrir Greenpeace: Nei.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.