Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. 15 Lesendur „Kaldir kjúklingabHar“ 2018-5570 skrifar: Það er sjoppa og grillstaður sem heitir Candís uppi í Breiðholti sem ég hef verslað mikið við undanfarin ár því ég er ein af þeim sem er alveg vitlaus í kjúklingabita. Ég tek það fram að ég er ekki matvönd. Ég hef á undanfömum vikum orð- ið fyrir óskemmtilegri reynslu. Fjórum sinnum hef ég sent dóttur mína til þess að kaupa fyrir mig kjúklingabita að kvöldi til. I öll þessi skipti fékk ég kalda og þurra bita sem höfriuðu í ruslinu. Svo fór ég sjálf í Candís þann 7. ágúst klukkan tvö eftir hádegi, því ég fæ ekki mat- artíma fyrr, og aftur fékk ég ískalda og þurra bita. Ég fór og skilaði bit- imum og bað um heita bita sem þótti alveg sjálfsagt. í þetta sinn hafði ég varann á og athugaði hvort þetta væm almennilegir bitar. Og hvað haldið þið, þeir vom jafiikaldir og bitamir sem ég var að skila. Ég bað um heita bita aftur, en stúlkan sem afgreiddi mig sagði að þetta væm nýsteiktir bitar, sem ég segi að sé ósatt, því nýsteiktir bitar hjá Candís em góðir en ekki óætir. Svo virðist sem eingöngu í hádeg- inu og í kvöldmatrium sé hægt að fá góða bita. Stúlkan bauðst ekki einu sinni til þess að steikja nýja bita, en endurgreiddi mér þó bitana. Mig langar til þess að spyrja: Má ekki steikja nýja bita fyrr en kaldi óþverrinn er seldur? Þessir köldu kjúklingabitar em orðnir umræðu- efhi fólks á milli. Ég vona bara að þjónustan batni fyrir þá sem ekki borða nákvæmlega á matmálstím- um. DV hafði samband við grillstaðinn Candís í Breiðholti og var tjáð að þeim þætti furðulegt að konan hefði fengið kalda bita aftur og aftur, þvi kjúklingabitamir væm geymdir í 95' stiga heitum skáp og þar að auki gengju þeir ört út, þannig að nýir bitar væm steiktir með stuttu milli- bili. Einnig kom fram í samtalinu, að fyrir stuttu keyptu nokkrir strák- ar kjúklingabita og vom þeir að tala um að kjúklingabitamir væm alltof heitir. „Við þurfum ekki að skammast okkar fyrir Reykjavík" „Reykjavík er hrein og falleg borg“ Ágústa hringdi: Ég er nýkomin að utan þar sem ég hef dvalist i rúmt ár. Fannst mér heimkoman vera mjög ánægjuleg þvi Reykjavík er orðin svo hrein og snyrtileg borg. Það er sama hvert litið er, allt virð- ist vera í sómanum og fólk keppist við að halda görðum sínum og um- hverfi hreinu. Svo em líka allar þessar nýbyggingar sem setja auð- vitað sinn skemmtilega svip á. Reykjavík er á uppleið en ekki nið- urleið. Hér áður fyrr fannst mér alltaf allir fleygja msli út um allt. Þetta sé ég varla núna, svo virðist sem fólk nenni að taka á sig stóran sveig til þess að komast í rusladall. Nei, við þurfum sko ekki að skammast okkar fyrir Reykjavík og hún þarf ekki að skammast sín fyrir okkur. Höldum áfram uppbygging- unni og snyrtimennskunni því að við munum ekki sjá eftir því. SMÁ-AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN Smáauglýsingadeild EUflOCARD — sími 27022. LOKAÐ Vegna jarðarfarar Rannveigar Ingimundardóttur verða allar deildir fyrirtækisins lokaðar frá kl. 13-16 í dag. Hekla hf. PRENTSMIÐJA Rótgróin prentsmiðja í Reykjavík til sölu. Næg verk- efni framundan. Hagstæð velta, góð tæki. Hentar vel fyrir 2-4 menn. Góð kjör fyrir örugga menn. Hafið samband við auglýsingaþjónustu DV í síma 27022. H-4540. Hrygningarlax Höfum til sölu allmikið af kynþroska eldislaxi af Kollafjarðarstofni, 4-8 punda. Uppl. á kvöldin í símum 94-2523 og 94-2515. Þórslax hf., Tálknafirði. SEXTÍUOGSEX NORÐUR 1. Duglegar stúlkur óskast til starfa strax í verk- smiðju okkar að Súðarvogi 44-48. 1/2 dags störf koma einnig til greina. Góð laun fyrir gott fólk. 2. Einnig óskum við eftir frískum eldri manni til starfa 1/2 daginn. Upplýsingar í síma 12200 í dag og næstu daga. SJÓKLÆÐAGERÐIN HF. Skúlagötu 51. Sími 12200, Rvík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 24., 30. og 33., tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign- inni Lækjarási 4, Garðakaupstað, þingl. eign Einingahúsa Sigurlinna, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað á eigninni sjálfri föstudaginn 15. ágúst 1986 kl. 16.30. ______________________Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 123., 128. og 133. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Nesbala 60, Seltjamamesi, þingl. eign Bjarna Egilssonar, fer fram eftir kröfu Valgarðs Sigurðssoanr hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 15. ágúst 1986 kl. 17.30. Bæjarfógetinn á Seltjamamesi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 11., 17. og 24., tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign- inni Ægisgrund 20, Garðakaupstað, tal. eign Amórs Guðbjartssonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands, Veðdeildar Landsbanka islands, Agnars Gúst- afssonar hrl. og Ara isberg hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 15. ágúst 1986 kl. 14.00. ________________________Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Krókamýri 6, Garðakaupstað, þingl. eign Vilhjálms Bjamasonar, fer fram eftir kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 15. ágúst 1986 kl. 15.45. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.