Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. Iþróttir „Veit ekki hvort þ eru lokin á kna spymuferli mínu m - segir Janus Guðlaugsson sem leikur ekki meira í sumar • Þorgrímur Þráinsson (2) vamarmaður, Val „Ég fór í langstökkið í bikarkeppn- inni í samráði við Ásgeir Eliasson, þjálfara Fram. Ætlaði að láta á það reyna hvort fætumir þyldu álagið. Það gekk ekki upp - fór strax í uppstökk- inu. Ég er eiginlega ánægður að þetta kom í ljós. Félagar mínir í Fram eiga ekki skilið að ég sé að leika með liðinu á hálfri ferð. Langstökkið var próf hjá mér fyrir Valsleikinn og fætumir stóð- ust það ekki. Ég er hættur knatt- spymu í sumar en í dag veit ég ekki hvort þetta verða lokin á knattspymu- ferli mínum,“ sagði landsliðsmaðurinn kunni í knattspymunni, Janus Guð- laugsson, þegar DV ræddi við hann í gær. Janus var hjá Sigurjóni Sigurðssyni íþróttalækni í gær. I ljós kom rifa í lærvöðva hans. Hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða nokkuð lengi og lék með Fram í íslandsmótinu nokkra leiki þó hann gæti engan veg- inn beitt sér sem skildi. Það gengur ekki lengur og Janus mun því ekki leika meira í sumar hvað sem svo framtíðin ber í skauti sér. Janus Guðlaugsson hefur um langt árabil verið einn albesti leikmaður íslands, - ávallt staðið sig manna best í landsleikjum okkar. Hann er þrítug- ur að aldri og það er ekki aðeins áfall fyrir Fram að hann hættir nú heldur einnig og ekki síður fyrir íslenska landsliðið í þeim krefjandi leikjum sem framundan em. Þrír leikir í Evrópu- keppninni, Frakkland og Sovétríkin hér heima, Austur-Þýskaland ytra. Sömu meiðslin „Þessi meiðsli í lærvöðvunum eru þau sömu og ég átti við að stríða fyrsta árið sem ég lék sem atvinnumaður í Vestur-Þýskalandi. Ég lék þar þrátt fyrir meiðslin - ekki um annað að ræða. En það gengur ekki lengur og ég mun ekki byija að leika knatt- spymu á ný fyrr en ég hef gaman af DV-lið 14. um- ferðar því. Það borgar sig ekki að vera að svekkja sig á þessu. Ég er alkominn heim til íslands - fer ekki utan aflur í knattspymu. Ef við notum lfkingamál er hægt að segja að ég hafi farið með heila vörðu út. Hún var brotin niður og byggð upp á ný í Þýskalandi. Nú er hún aftur í molum. Það þarf að raða steinunum upp á nýtt, - og ég er kominn heim til að byggja mig upp á ný,“ sagði Janus. Janus hefur hug á því að byrja aftur í kennslu. Hann er lærður íþrótta- kennari „og svo verð ég eitthvað í málverkinu" en Janus hefur getið sér góðan orðstír sem listmálari. Sýndi meðal annars í Þýskalandi. „Ég hef ekki hugsað svo langt hvað beinlínis tekur við hjá mér - ef til vill líka þjálfun í knattspymu. En ég leik ekki fyrr en ég er orðinn sæmilegur í fótunum og hef gaman af því að sparka bolta.“ hsim • Guðmundur Hreiðars- son (2) markvörður, Val. • Guðni Bergsson (7) • Valþór Sigþórsson (2) • Ársæll Kristjánsson (4) vamarmaður, Val vamarmaður, Keflavík vamarmaður, Val « •-5 • Freyr Sverrisson niðvallarleikmaður, Keflavflc (2) • Guðjón Guðmundsson (2) miðvallarleikmaður, Víði • Jónas Róbertsson (3) miðvallarleikmaður, Þór • Valgeir Barðason (2) ; sóknarmaður, Akranesi * • Öm Eiðsson. heiðursorðu Alþjóðafijálsíþróttasamband- ið, LAAF, hefur samþykkt að veita Emi Eiðssyni, fyrrverandi formanni og núverandi heiðurs- formanni FRÍ, æðsta heiðurs- merki LAAF og verður þessi viðurkenning veitt við setningu IAA-þingsins í Stuttgart 22. ágúst. öm er fyrsti íslendingur- inn, sem hlýtur þessa orðu, og mjög fáir Norðurlandabúar hafa hlotið þennan heiður allt frá því að fyrst var farið að veita viður- kenningu þessa árið 1928. -hsím Hjónakeppni - í gotfi í Vestmannaeyjum Janus Guðlaugsson i leik gegn KR í sumar. íslandsmet Ragn heiðar í Kanada Sundkonan snjalla frá Akranesi, Ragnheiður Runólisdóttir, setti þrjú íslandsmet á sundmóti í Édmonton í Kanada síðustu daga. Hún tvíbætti íslandsmet Guðrúnar Femu Ágústs- dóttur í 100 m bringusundi. Synti á 1:15,22 mín. í undanrás en á 1:15,13 mín. í úrslitum og varð í fimmta sæti. Met Guðrúnar Femu var 1:16,24 mín. I 100 m baksundi bætti Ragnheiður íslandsmet sitt um rúma sekúndu. Synti á 1:09,04 mín. og komst í úrslit. • Ragnheiður Runólfsdóttir. Ragnheiður varð í níunda sæti í úr- slitum 200 m bringsundsins. Synti á 2:45,00 mín. í undanrás en 2:44,10 mín. í úrslitum. I 200 m fjórsundi synti hún á 2:29,10 mín. Aðeins frá íslandsmetum sínum í þessum greinum enda mikið álag á henni í keppninni. -hsim Einar og Sigurður til Kaupmannahafnar Golfklúbbur Vestmannaeyja gengst fyrir opinni hjóna- og parakeppni í golfi laugardaginn 16. ágúst. Upplýs- ingar um keppnina og skráning er í síma 98-2363. Spjótkastaramir Einar Vilhjálmsson og Sigurður Einarsson fara til Kaupmannahafiiar til að taka þar þátt í sterku alþjóðlegu frjálsíþrótta- móti á fimmtudaginn. Þar verða saman komnir margir af snjöllustu ftjálsíþróttamönnum Evrópu, enda mótið tilvalið undirbúningsmót fyrir Evrópumeistarakeppnina í Stuttgart sem hefst 22. ágúst. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.