Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 12. AGUST 1986. 17 Iþróttir AKreð, Bjami, Krístján, Páll og Sigurður klárir í slaginn - í tvo landsleiki gegn V-Þjóðverjum í V-Þyskalandi AUir íslensku handknattleiksmenn- imir sem leika í V-Þýskalandi eru klárir í landsleiki íslendinga gegn V- Þjóðverjum, sem fara fram í V-Þýska- landi 15. og 16. september. Það er þó enn óvíst hvort Atli Hilmarsson, Bay- er Leverkusen, geti leikið. Hann hefur átt við meiðsli að stríða og verður aðeins búinn að leika einn leik i „Bun- desligunni" fyrir landsleikina. Alfreð Gíslason, Essen, Páll Ólafc- son, Dússeldorf, Bjami Guðmundsson, Wanne Eicken, Sigurður Sveinsson, Lemgo og Kristján Arason, Gummers- bach, em tilbúnir að leika leikina. Handknattleikssamband fslands hefur sent þeim handknattleiksmönnum sem leika erlendis bréf, þar sem þeim er sagt frá drögum að undirbúningi landsliðsins fyrir ólympíuleikana í Seoul 1988. Landsliðsmennimir eiga að vera búnir að gefa HSÍ svar síðar i þessum mánuði um hvort að þeir séu tilbúnir eða eigi möguleika á að taka þátt í þeim undirbúningi. Leikmennimir eiga eftir að bera þessi drög undir forráðamenn þeirra félaga sem þeir leika með og einnig vinnuveitendur í V-Þýskalandi. Ef leikmennimir fá jákvæð viðbrögð em þeir allir tilbúnir í slaginn. Kristján Arason hefur enn ekki fengið endalega gengið frá félaga- skiptum frá Hamlen til Gummersbach, þar sem forráðamenn Hamlen vilja fá yfir 100 þúsund mörk fyrir Kristján. Málið er nú í biðstöðu, þar sem mikið ber á milli hjá félögunum. Gummers- bach er ekki tilbúið að greiða eins háa upphæð fyrir Kristján og Hamlen fer fram á. -SOS „Alvarlegt áfall ensku liðin“ „Þessi ofbeldisverk áhangenda ensku knattspymufélaganna verða efiaust til þess að seinka mjög að ensk félög fái að taka þátt í Ev- rópukeppni á ný,“ sagði Harry Cavan, einn af varaforsetum PIFA, í Lundúnum í gær og bætti við. „Þetta er alvarlegt áfall fyrir enska knattspymusambandið og félög inn- an þess.“ í fyrrinótt kom til átaka milli lögreglu í Amsterdam og en- skra óaldarseggja eftir leik Ajax og Man. Utd þar í borg um kvöldið. 19 ára piltur var handtekinn, þegar hann braut rúðu á kínverskum mat- sölustað þegar 80-100 áhangendur United fóru um miðborgina. Réðust þeir að fólki og bílum. Lögreglan notaði kylfúr og hunda til áð dreifa hópnum. Enginn slasaðist alvarlega og í gærmorgun hélt lýðurinn til síns heima frá Amsterdam. Á fimmtudag kom til átaka á ferju sem var að flytja enska yfir Ermar- sundið á knattspymuleiki í Holl- andi. Skipstjóri feijunnar sneri þá aftur til Englands og ofbeldisseg- gimir voru settir í land. Stjóm UEFA, knattspjTnusam- bands Evrópu, mun koma saman til fúndar í Prag í Tékkóslóvakíu 11. september nk. og verður þar fjallað um þessi mál. -hsím Ivan Lendl vann Boris Becker Tékkinn Ivan Lendl, sem er talinn besti tennisleikari í heiminum núna, náði fram hefndum á Boris Becker fyrir ósigurinn á Wimbledon á tenn- ismóti í Bandaríkjunum um helgina. Lendl vann Becker 6-4 og 7-6 og stóð viðureign þeirra félaga í tvær klukkustundir. Fyrir sigurinn fékk Lendl 1,6 milljónir kr. og bíl að auki. Becker fékk helmingi minni upphæð í sinn hlut en engan bíl. -SMJ Símsendir leikir til Húsavíkur og Akureyrar Húsvíkingar fóru að hætti KA- manna og símsendu leik sinn við UMFN sunnan úr Njarðvíkunum á laugardaginn norður í félagsheimilið á Húsavík þar sem 150 manns hlust- uðu á lýsingu Freys Bjarnasonar af leiknum. „Þetta tókst vel,“ sagði Freyr þegar DV innti hann eftir ár- angrinum, „um 150 manns voru í félagsheimilinu og stemmningin var gífurlega góð. Veðbanki var í gangi en enginn gat upp á 3-4 úrslitum svo við fengum allan pottinn sem var góð summa. Einnig gekk Ævar Árnason, formaður knattspymudeildar, um með hatt á meðal hlustenda og varð vel ágengt." Okkur sýnist að þarna sé á ferðinni ágæt lausn á því að missa ekki „áhorfendur“ að útileikj- unum. Með aðstoð símatækninnar er hægt að lýsa leiknum beint til fylgjenda viðkomandi félags sem sitja og drekka kaffi ásamt því að leggja eitthvað í sjóð félagsins sem „hlustendur" í þægilegum húsa- kynnum, óháðir veðri og vindum. Þama gætu aðrir hæglega farið að dæmi norðanmanna og haft gott upp úr því. emm > Þormóður Einarsson sést hér lýsa leik KA gegn Þór beint i sima frá augardalsvelli. Slavi til Hamborgar Hamburger SV hefur keypt júgóslavneska leikmanninn Sascha Jusufi frá Saarbrúcken fyrir átta milljónir króna. Þó em þau ákvæði í samn- ingnum, en hann gildir í tvö ár, að Slavinn verði ekki leikmaður hjá Hamborg nema hann fái vestur-þýskan ríkisborgararétt. Á því em mikl- ar líkur. Jusufi er 23 ára. Tveir erlendir leikmenn em fyrir hjá Hamborg. Gerard Plessers, Belgíu, og Miroslav Okonski, Póllandi. hsím Lineker meiddist Hinn nýi miðheiji Barcelona, Gary Lineker, hefur nú fengið að kynnast hörkunni í spænsku knattspyrnunni. Hann rifbeinsbrotnaði í æfingarleik þegar hann lenti í samstuði við markvörð Real Mallorca, Marok- kómanninn Badou Ezaki. Ezaki vakti mikla athygli í Mexíkó. Barcelóna vann leikinn, 2-1, og var það Mark Hughes sem skoraði sigur- markið. Hughes hefur staðið sig mjög vel í æfingarleikjum að undan- fömu og er hann með eitt mark að meðaltali í leik. Þá hefur samvinna hans og Lineker verið góð. Líklegast er talið að þeir Hughes og Lineker verði í liðinu í vetur og v-þýska vand- ræðabamið Bemd Schúster settur út í kuldann. Schúster, sem er ekki í náðinni hjá Terry Venables, þjálf- ara Barcelona, hefur ekkert tekið þátt í æfingarleikjum að undanfömu. Robertson til Tottenham? Svo gæti farið að einn efiiilegasti framheiji Skota, John Robertson hjá Hearts, gengi til liðs við Tottenham. Hinn nýi framkvæmdastjóri Totten- ham, David Pleat, hafði mikinn áhuga á Robertson þegar hann var stjóri hjá Luton. Nú þegar ljóst er að Luton ætlar ekki að selja Mick Harford er líklegast að Pleat kaupi Robertson. -SMJ • Hugrún Ólafsdóttir, Þór. 14 ára og íslandsmet Hugrún Ólafedóttir, sundkonan komunga frá Þorlákshöfn, 14 ára, setti íslandsmet í 400 m skriðsundi í Laugardalslaug um helg- ina. Synti á ágætum tíma, 4:28,69 mín., og bætti eigið met á vegalengdinni. Það var á aldursflokka-meistaramótinu, keppendur 550 á aldrinum 8-18 ára. Lið Ægis sigraði. Hlaut 328 stig. Vestri, ísafirði, í öðm sæti með 301 stig og Bolungarvík í þriðja með 250. Öll félög í keppninni hlutu stig. Auk Islandsmets Hugrúnar vom mörg íslandsmet sett í aldursflokkum. Ingibjörg Amardóttir, Ægi, setti telpnamet í 200 m fjórsundi, 2:33,86 mín. Ama Sveinbjöms- dóttir, Ægi, setti meyjamet í 100 m skrið- sundi, 1:05,30 mín., og 50 m flugsundi, 34,52 sek. í 50 m skriðsundi hnáta, 10 ára, setti Ema Jónsdóttir, Bolungarvík, met, 34,00 sek. í 4x100 m fjórsundi stúlkna setti sveit HSK met, 4:44,75 mín., og í 4x100 m skrið- sundi drengja setti sveit Bolungarvíkur, met 4:24,80 mín. -hsím Stómiót á Spáni Real Madrid sigraði brasilíska liðið Flum- inense, 2-0, í keppni fjögurra stórliða í La Linea á Spáni, rétt hjá Gíbraltar. Þeir Hugo Sanchez, Mexíkó, og spánski landsliðsmað- urinn Michel skoruðu mörk Real eftir að venjulegum leiktíma var lokið. Dómarinn bætti við nokkrum mínútum vegna meiðsla leikmanna og tafa. Man. Utd sigraði Fluminense nýlega á heimavelli, 4-3, eftir vítaspymukeppni. Jafiit, 0-0, eftir 90. mín. Áhorfendur 32.275. hsim Mezeytil Kuwatt György Mezey, fyrrum landsliðsþjálfari Ungveijalands, sem sagði starfi sínu lausu á HM í Mexíkó, hefur verið ráðinn lands- liðsþjálfari Kuwait.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.