Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. > Suðuriand: Athyglisverðir staðir í Suðurlandskjördæmi stendur ferðaþjónusta á gömlum merg og er stöðugt verið að laga hana með betri samgöngum, með byggingu glæsi- legra gisti- og veitingastaða og fleiri þjónustustaða sem kemur ferðafólki til góða. Á Suðurlandi finnast flestir þeir staðir sem erlendir ferðamenn koma um langan veg til að skoða og njóta og íslendingar heimsækja oft um ævina. Má þar nefria Þingvelli, Geysi, Gullfoss, Heklu og Vest- mannaeyjar. í Fljótshlíð erum við á slóðum Njálssögu og minna ömefni mjög á foma viðburði og fræga menn. Á Sámsstöðum er tilraunastöð í jarð- rækt og sérstaklega komyrkju frá 1927. Nokkru innar er skógræktar- stöð, rekin frá 1946, á Tumastöðum. Hlíðarendi, kirkjustaður og bær Gunnars Hámundarsonar, rís hátt í hlíð til vinstri. Merkjárfoss eða Gluggafoss er nokkru innar. Þar íyr- ir innan er Múlakot með frægum trjágörðum. Guðbjörg Þorleifsdóttir hóf þar trjárækt 1897 og var braut- ryðjandi í því efhi. Selvogur er fámennt og sérkenni- legt byggðarlag þar sem er að finna einhverja merkilegustu kirkju landsins og er mjög gott að heita á hana. Veiðimenn vom einhverju sinni við véiðar í Hlíðarvatni og gekk treglega hjá einum þeirra. Lét hann þá þau orð falla að hann héti 50 krónum á hvem veiddan silung og það ótrúlega gerðist, veiðimaður- inn byrjaði að fá silunga og það marga, varð aflahæstur í hópnum og borgaði áheit sín. Úr Selvogi má aka áfram um Krísuvík og hjá Klei- farvatni til Reykjavíkur eða halda áfram með ströndinni til Grindavík- ur. Á Eyrarbakka er Húsið frá 1765, danskt kaupmannshús, og á Stokks- eyri er Þuríðarbúð, fom verbúð sem er varðveitt sem safn. Skammt aust- an Stokkseyrar er Baugsstað- arjómabúið sem varðveitt er með fomum ummerkjum. Hekla hefur gosið nær tuttugu sinnum á sögulegum tíma og er tví- mælalaust frægasta eldfjall landsins. Hæð hennar er 1491 m og umhverfis hana hraun og sandar. Þingvellir em sögufrægasti og einn fegursti staður landsins. Þar stóð Alþingi frá 930-1798. Meðal kennileita em Almannagjá, Lög- berg, Öxarárfoss, Þingvallabær og kirkja. I baksýn em Botnssúlur, Armannsfell, Skjaldbreiður (1060 m) og Hrafhabjörg. Þingvallavatn er stærsta stöðuvatn landsins, tæpir 84 ferkílómetrar og meira en 100 m Útivist Gunnar Bender djúpt. Það er margt sem hægt er að skoða á Þingvöllum og stund þar ætti að vera vel notuð, hvort sem menn fræðast, skoða eða veiða. Laugarvatn er stærsti skólastaður í sveit hér á landi. Skólahús em nýtt sem sumarhótel og á Laugar- vatni er ýmislegt fyrir ferðamenn. I Skálholti var biskupsstóll frá 1056 til 1784 og löngum skólasetur. Endurreisn mikil hefur orðið í Skál- holti á síðari hluta þessarar aldar. Þar er nú ný og fögur kirkja og lýð- háskóli. Meðal minja frá fyrri tíð í Skál- holti er steinkista Páls Jónssonar biskups, d. 1211. Gullfoss og Geysir em einhveijir frægustu ferðamannastaðir landsins. Norðan Geysis er Haukadalur, fomt skólasetur. Frá Gullfossi liggur fjall- vegur norður hálendið, fram hjá Hvítárvatni og Hvítámesi á vinstri hönd og Kerlingarfjöllum á hægri hönd. í Þjórsárdal em fom eyðibýli sem huldust í ösku og vikri í Heklugos- inu mikla 1104. Einn þessara eyði- bæja hefur verið grafinn upp. Það er Stöng. Nokkm neðar í dalnum var reistur sögualdarbær 1974, þar sem heitir Skeljastaðir. Margir fagr- ir fossar em í dalnum. Veiðivötn em staður sem veiði- menn leggja leið sína til á hveiju sumri og veiða. Frá Veiðivötnum liggur fjallvegur í Jökulheima, sælu- hús í Tungnaárbotnum við vestur- jaðar Vatnajökuls. I Landmannalaugum er sæluhús Ferðafélags íslands og heitur lækur og leirhver, kjömir baðstaðir ferða- manna. Náttúrufegurð er við bmgðið í Laugum og litadýrðin get- ur verið stórkostleg. Skógafoss fellur austan Skóganúps og er yfir 60 m hár. Oddi á Rangárvöllum er eitt víð- frægasta höfúðból í sögu landsins. Þar stofnaði Sæmundur fróði skóla og sonarsonur hans, Jón Loftsson. Skaftáreldahraun er austan Eld- hrauns eða Nýjahraun frá 1783. Þar er mesta hraun úr einu gosi á sögu- legum tíma og 565 ferkílómetrar að flatarmáli. I Þórsmörk finnum við Langadal, Húsadal, Valahnjúk, Slyppugil, Hamraskóga og margt fleira. Þús- undir ferðamanna heimsækja Þórsmörk á hveiju ári og eyða löng- um tíma þar, enda margt að sjá. Við höfum aðeins stiklað á stóm um Suðurland og það er greinilega af ýmsu að taka og skoða. Gefi mað- ur sér tíma verður maður margs vísari um Suðurland. Heimild: Ferðavísir um Suðurland. G. Bender. Það er ýmislegt hægt að skoða í Þórsmörk og svo eru kvöldvökumar skemmtilegar. Esso-skálinn opnaður á EskHirði Emil Thoraiensen, DV, Eskifiiði: Um verslunarmannahelgina var opnaður nýr og snyrtilegur söluskáli Olíufélagsins á Eskifirði og ber nafnið „Esso-skálinn“. Húsnæðið, sem er um 500 fermetrar, var reist á síðastliðnum tveimur mánuðum en grunnurinn var »»tekinn i fyrra. Esso-skálinn er vel stað- settur því hann er í botni fjarðarins á hægri hönd þegar keyrt er niður hlíð- ina. Tjaldstæði em á túninu handan við skálann. Elínborg Þorsteinsdóttir, * rekstrarstjóri skálans, sagði að boðið yrði upp á alla venjulega þjónustu. Grill er í öðrum endanum og sæti fyr- ir 32, alls konar sælgæti, ís og kaffi. í hinum endanum em olíuvörumar og sér Ólafúr G. Gunnarsson um þær ásamt bensínafgreiðslunni. Elínborg sagði fréttaritara að fyrstu 2 dagana sem skálinn væri búinn að ^ vera opinn hefði fólk fjöLmennt og lof- aði það góðu um reksturinn í framtíð- inni. Þessi nýja þjónustugrein mun skapa 6 manns atvinnu hér á staðnum. Formlega var Esso-skálinn opnaður á fostudagskvöldið með veglegu opnun- arhófi að viðstöddum mörgum gestum. Athygli vakti þó að enginn hinna háu herra frá Olíufélaginu hf. í Reykjavík lét sjá sig. Umboðsmaður Olíufélagsins á Eski- firði er Aðalsteinn Valdimarsson, tók hann við því starfi af Amþóri Jensen. Og rétt er að geta þess að síðustu ár hefur engin bensínafgreiðsla frá Esso verið á Eskifirði. Segja má að þjónusta hér á Eskifirði hafi tekið stakkaskiptum í ár því fyrr í sumar vom gagngerar breytingar gerðar á Shell-skálanum og þar komið upp grilli. I báðum þessum söluskálum er þjónustan góð og rekstraraðilum þeirra til sóma. Ekki þarf að fara mörg ár aftur í tímann til að minnast þess að ekki var hægt að fá keypta pylsu, hvað þá grillrétti. Svo skemmti- lega vill til varðandi þessa samkeppni skálanna að það em bæjarstjómar- menn sem veita þeim forstöðu. Þannig er Aðalsteinn Valdimarsson fyrrverandi bæjarstjómarmaður fyrir Framsóknarflokkinn og forseti bæjar- stjómar en Guðmundur Á. Auðbjöms- son hefúr setið í stjóm bæjarins fyrir Sjálfstseðisflokkinn í yfir 30 ár. Hann veitir Shell-skálanum forstöðu. Hvor- ugur þessara bæjarstjómarmanna gaf kost á sér til setu í bæjarstjóm síðasfr hðið vor og hafa ákveðið að einbeita sér að rekstri þessara söluskála olíufé- laganna. Nú er bara að sjá hvemig þeim tekst til við að lokka viðskipta- vinina til sín. Hér sést Esso-skalinn á Eskifirði þegar þreyttir ferðalangar koma að honum. Inni er hægt að kaupa olíuvörur, is, kaffi, sælgæti og fleira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.