Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Side 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986.
* Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Stefanía
af Mónakó
hefur misst sinn einka-Tars-
an og er því fremur döpur
þessa dagana. Christophe
Lambert var hundleiður á því
að standa í skugga sinnar
heittelskuðu hvert sem þau
fóru og sigldi því sína leið -
hreinræktaður Fúll á móti.
Allir skrifuðu og töluðu um
fatahönnun prinsessunnar,
plötuna hennar og annað í
þeim dúr og það var sama
hvernig filmu-Tarsan reyndi
að belgja út brjóstkassann
og sýnast sætur, ekki nægur
fjöldi augna fylgdi tilburð-
unum. Enda reyndi hann víst
ekki að nota öskrið fræga í
fjölmenni ...
er þekkt fyrir sitt fagra hár
sem er í líflegra lagi og virð-
ist ekki hárahörgull á því
höfðinu. En nú segja illar
tungur að svo sé einmitt
raunin - hárin þurfi flest að
festa á sinn stað og sjái hár-
greiðslumaðurinn um þá
hlið málanna tvisvar í viku.
Það er engu að treysta á
þessum síðustu og verstu
gervitímum.
er gjörbreytt manneskja að
dómi fróðra í Hollívúdd. Ekki
vegna þess að hún hafi
ákveðið að lifa samkvæmt
indverskri meimspeki eða
annað álíka - breytingin er
mun rótttækari. Sú fagra
frauka ákvað að láta lappa
aðeins upp á annars ágætt
sköpunarverk náttúrunnar
og gekkst því undir feg-
runaraðgerð. Einhverjir
sakna sárt gamalla og góðra
andlitsdrátta gyðjunnar en
hún haggast ekki við rauna-
tölur og segist hæstánægð
með árangurinn.
Fjalla-
hiingui,
mið-
nætui-
sól og
vídeó
Sýning Sigrúnar Harðardóttur á
vídeóverkinu Dögun, sem fram fór
á miðnætti í Öskjuhlíðinni í síð-
ustu viku, vakti heilmikla athygli
og á staðinn mættu um þrjú hundr-
uð manns. Sigrún er búsett í
Amsterdam og hefur verið þar við
nám og störf undanfarin fimm ár.
Veður var hið besta og undu gest-
ir sé drykklanga stund við vídeó-
skoðun og sælgætisát því borin
voru fram alls kyns sætindi í hinum
einu réttu vídeólitum til þess að
undirstrika áhrifin. Verkinu var
rennt í gegn um þrjá skerma aftur
og aftur og hverju sinni sást eitt-
hvað nýtt sem ekki hafði náð
athyglinni í fyrri umferðum. Að-
spurð sagðist Sigrún hafa unnið
Dögun í júnímánuði á þessu ári og
þá í Amsterdam.
„Ég vinn þetta sem editeringu og
fítbakk - tek svo raunveruleikann
og steypi yfir í abstraktsjón," út-
skýrði listamaðurinn á meðan
verkið rann örugglega á skermun-
um.
„Þetta var unnið á þrjá skerma,
tekið með einni vél og síðar er
notast við þrjá myndskjái og þrjú
myndbönd. Klipping er notuð til
þess að ná fram hreyfingu frá ein-
um myndskjá til annars. I haust
tekur hins vegar við verkefni sem
er unnuið á súperátta kvikmynd
sem ég færi yfir á myndband. Með
því fæ ég grófkornóttan myndflöt
sem ég tel hæfa því myndefni sem
ég er að vinna að núna.“
Og varla getur hún kvartað yfir
áhugaleysi landans því sem áður
sagði mættu fjölmargir til þess að
fylgjast með þessari fyrstu vídeó-
myndlistarsýningu undir berum
himni.
Vídeóverkið Dögun naut sín vel í Öskjuhlíðinni með Esjuna, Skarðsheiði, Akrafjall og miðnætursól sem leiktj-
öld að baki.
Meðai áhorfenda voru þessir þrælhressu fjórmenningar - Magni Kristjánsson, útgerðarmaður frá Neskaup-
stað, Magnús Þór Jónsson - Megas - , Loftur Ólafsson tannlæknir og Ágúst Rúnarsson, framkvæmdastjóri
Ævintýraferða á íslandi.
Gestir syndu verkinu mikinn áhuga og á staðinn mættu þrjú hundruð manns.
DV-myndir KAE
Stj örnumömmur
Myndarkvensurnar, sem hér sjást,
eiga það sameiginlegt að börnin
þeirra eru heimsfræg og dáð af fjöld-
anum. í tilefni af mæðradeginum á
næsta ári hefur Dick Clark unnið
að sjónvarpsþætti sem sendur verður
út í fyllingu tímans og fyrir þáttinn
var þeim kerlum safnað saman á einn
og sama staðinn. Þetta eru þær 1.
Jean Howard (Ron Howard), 2. Mari-
on Dugan (Dennis Dugan), 3. Diana
Kind (Barbra Streisand), 4. Selma
Bullock (Tina Tumer), 5. Martha
Selleck (Tom Selleck), 6. Maria
Gurdin (Nathalie Wood), 7. Dorthy
Ritter (John Ritter), 8. Loretta Will-
iams (Billy Dee Williams), 9 Mable
Johnson (Diahann Carroll), 10. Ge-
orgia Holt (Cher), 11. Bernice
Janssen (David Janssen), 12. Virgin-
ia Funicello (Annette Funicello).