Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. 31 w Útvaip - Sjónvarp Vedrið Sjónvaip, kl. 20.35: Afkomendur Inka í Perú Inkakóla nefnist þriðji þáttur ást- ralska heimildamyndaflokksins um Suður-Ameríku, sem verður sýndur í kvöld. Þar verður fjallað um afkom- endur inkanna í Perú. Pizzey sögu- maður ferðast um söguslóðir inkaveldisins og segir frá því hvemig nokkrir óvenjulegir Spánverjar eyði- lögðu samfélag inkanna. Hann finnur índíána hátt uppi í Andesfjöllum, sem lifa á sama hátt og forfeðumir gerðu, yrkja jörðina og halda þjóðareinkennum sínum. Marg- ir hafa þó flutt til borganna þar sem þeir lifa við kröpp kjör í fátækrahverf- unum og drekka nýjasta svaladrykk- inn, Inkakóla. Pizzey ræðir einnig við forseta Perú sem tjáir honum að framtíð þessa fólks sé þvi miður ekki björt. Helena er dulafull kona i vafasomum félagsskap. Sjónvarp kl. 21.40: Málin flækjast á Kýpur Þátturinn Arfur Afródítu endaði allóþægilega á síðasta þriðjudag og hafa eflaust margir átt erfitt með að bíða í heila viku eftir framhaldinu. David Collier hafði mælt sér mót við Eric Morrison, vinnufélaga og besta vin bróður síns, en fundur þeirra en- daði snögglega þegar á þá var hafin skothríð. Helena og dularfulli vinur hennar höfðu elt David á fundarstað- inn og fylgst vel með öllu. Morrison flúði á hlaupum, en David særðist á fæti. Hann leitaði skjóls við lítinn klett og svaf þar um nóttina. Þegar sólin kom upp og hann opnaði augun, sá hann hvar vopnaður maður stóð uppi á hæð og horfði niður til hans. Þar með lauk síðasta þætti og þá er bara að vita hvemig þetta fer í kvöld. Þátturinn í kvöld er sá fjórði af átta. David er leikinn af Peter McEnery en Alexandra Bastedo fer með hlutverk Helenu. Nýjustu raddirnar á rás 2 Við og við heyrast nýjar raddir á rás tvö og velta eflaust margir fyrir sér hvaða andlit séu á bak við þessar radd- ir. Til að hlustendur þurfi ekki að gera sér rangar hugmyndir um útlit þessa úrvalsfólks birtum við hér mynd af nýliðunum. Þau eru, talið frá vinstri, Ásgerður Flosadóttir, Guðríð- ur Haraldsdóttir, Bjami Dagur Jóns- son og Andrea Guðmundsdóttir. Ásgerður sér um þáttinn Frítímann klukkan fjögur á föstudögum en það er tónlistarþáttur með ferðamálaívafi. Guðríður sér um Bamadagbókina í morgunútvarpinu alla virka daga nema föstudaga. Þáttur Bjama Dags nefhist Á sveitaveginum og er á dag- skrá annan hvem mánudag frá þrjú Nýliðarnir á rás tvö, Ásgerður, Guðríður, Bjarni Dagur og Andrea. til fjögur en í honum er leikin kántrí- Hitt og þetta á fimmtudögum þar sem tónlist. Andrea sér síðan um þáttinn hún leikur tónlist af rólegra taginu. Vernharður Linnet er umsjónarmaður Barnaútvarps á rás eitt en í þvi er nú verið að framha!ð<?söaiina um múmíuna eem hvarf Útvarp, rás 1, kl. 17.03: Múm- ían sem hvarf I gær, mánudag, byijaði ný fram- haldssaga í Bamaútvarpinu sem heitir Múmían sem hvarf og er eftir einn vinsælasta bamabókahöfúnd Dana um þessar mundir. Sagan íjallar um þá félaga úr hryllingssafhinu, Dracula, sem raunar er kallaður Gúlli, Edda varúlf og Mumma múmíu. Þeir fara saman til borgarinnar og lenda í hin- um ótrúlegustu ævintýrum. Mummi múmía týnist og þeir kumpánar gera sér lítið fyrir og ræna stráknum Fredda til að aðstoða sig við leitina. Margt freistar þeirra þó í nútímasam- félagi og er Eddi vaiúlfúr til dæmis orðinn sjúkur í hamborgara. Gúlh' heldur sig þó við sömu fæðutegundina en á í mestu erfiðleikum með að finna ómengað blóð í dag verður austan gola eða kaldi á landinu. Á Suður- og Austurlandi verða skúrir en að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 9-14 stig. Veðrið Akureyri Egilsstaðir Galtarviti Hjarðarnes Kefla víkurflugvöllur Kirkjubæjarklaustur Raufarhöfn Reykjavík Sauðárkrókur Vestmannaeyjar léttskýjað léttskýjað þoka skýjað úrk. i gr. skúr þoka léttskýjað þoka í gr. úrk. i gr. Útlönd kl. 6 í morgun: Bergen Helsinki þokaigr. 12 rigning á 13 síðustu klst. Kaupmannahöfn skýjað 14 Osló léttskýjað 11 Stokkhólmur skýjað 13 Þórshöfn rigning 11 Útlönd kl. 18 í gær: Algarve Amsterdam Barcelona (Costa Brava) Berlín Chicago Feneyjar (Rimini ogLignano) Frankfurt Glasgow LasPalmas (Kanaríeyjar) London Madrid Malaga (Costa DelSoI) Mallorca (Ibiza) Montreal New York Nuuk París Róm Vín Winnipeg Valencía skýjað 24 skýjað 18 skýjað 25 skýjað 24 léttskýjað 22 heiðskírt 28 skýjað 27 léttskýjað 18 léttskýjað 24 skúr á síð- 19 ustu klst. léttskýjað 29 hálfskýjað 35 léttskýjað 28 skýjað 22 skýjað 28 súíd 8 skýjað 22 heiðskírt 27 léttskýjað 27 hálfskýjað 21 léttskýjað 29 Gengið Gengisskráning nr. 149-12. ágúst 1986 kl. 09.15 Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi Dollar 40,640 40,760 41,220 Pund 60.350 60,529 60,676 Kan. dollar 29,270 29,356 29,719 Dönsk kr. 5,2461 5,2616 5,1347 Norsk kr. 5,5154 5,5317 5,4978 Sœnsk kr. 5,8597 5,8770 5,8356 Fi. mark 8,2694 8,2938 8,1254 Fra. franki 6,0481 6,0659 5,9709 Belg. franki 0,9491 0,9519 0,9351 Sviss. franki 24,3791 24,4511 23,9373 Holl. gyllini 17,4316 17,4831 17,1265 Vþ. mark 19,6423 19,7003 19,3023 ít. líra 0,02856 0,02864 0,02812 Austurr. sch. 2,7911 2,7994 2,7434 Port. escudo 0,2774 0,2782 0,2776 Spá. peseti 0,3026 0,3035 0,3008 Japansktyen 0,26342 0,26420 0,26280 írskt pund 54,559 54,720 57,337 SDR 49,1371 49,2823 48,9973 ECU 41,4386 41,5609 40,9005 Símsvari vegna gengisskráningar 22190. *>> MINNISBLAÐ Muna eftir að fá mér eintak af

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.