Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 3. OKTÖBER 1986. Fréttir „Eins og öll Reykjavík ætli að ganga úr mmi“ - sagði Hrafnhildur Pálsdóttir hjá Ferðaskrífstofu ríkisins „Það hefur verið gífurlega mikið að gera hér, bæði hvað varðar pant> anir og framboð á húsnæði. Við erum hætt að taka niður tilboð um húsnæði og erum núna að skoða það sem við höfum fengið. Húsnæðið er út um allt og af öllum stærðum og gerðum. Meira að segja höfum við fengið tilboð um húsnæði austur í Hreppum. Annars er mest héðan úr bænum en það er eins og öll Reykja- vík ætli að ganga úr rúmi þennan tíma,“ sagði Hrafnhildur Pálsdóttir hjá Ferðaskrifstofu ríkisins þegar DV leitaði upplýsinga í gær um hvað liði framboði á gistirými vegna leið- togafundarins í næstu viku. Það kom einnig fram að töluvert væri um það að fólk byði fram einbýlishús en þau mættu afgangi því eftirspum- in væri mest eftir herbergjum með morgunverði. Það verður því að koma í ljós hvort einbýlishúsin ganga út. Einnig er töluvert spurt eftir bílum en því er yfirleitt vísað á bílaleigumar. „Annars virðast út- lendingamir leggja aðaláherslu á það að fá einhvem stað til að sofa á,“ sagði Hrafiihildur. Kröfumar, sem gerðar em til þess húsnæðis sem Ferðaskrifstofa ríkis- ins leigir út á sínum vegum, em einfaldar: Hreint og þokkalegt her- bergi, helst með morgunverði. Fyrir slíkt herbergi em greiddar 1.600 krónur en 2.400 fyrir tyeggja manna herbergi. SJ Allur farangur erlendra ferðamanna sem koma til landsins er nú grandskoðaður vegna hertrar öryggisgæslu í tengls- um við leiðtogafundinn i næstu viku. Hert ötyggisgæsla á Keflavíkurflugvelli Útlendingar í gegnum sérhlið í tollinum Útlendingar sem koma hingað til lands þurfa nú að fara í gegnum mun nákvæmari tollskoðun en tíðkast hef- ur. Em þessar ráðstafanir gerðar Svissneskir ferðalangar að fylla út eyðublöð útlendingaeftirlitsins á Keflavíkurflugvelli í gær. DV-myndir KAE vegna leiðtogafundarins hér í næstu viku. f vegabréfaskoðuninni þarf hver ein- asti útlendingur að fylla út eyðublað þar sem kemur ffarn hvert erindi hans hingað er, hversu lengi hann muni dvelja hér og hvar. Þetta mun ekki vera alveg nýtt af nálinni hér á landi en að sögn Þorgeirs Þorsteinssonar, lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli, er langt síðan þetta var gert síðast. Þegar kemur að tollskoðuninni fara útlendingar í gegnum sérhlið þar sem hver einasta taska er opnuð og fram fer nákvæm vopnaleit í farangri og á fólki. Enn sem komið er em það einungis útlendingar sem ganga í gegnum þetta herta eftirlit, en Þorgeir sagði að ís- lendingar gætu búist við þessu líka ef svo ber undir og að sjálfsögðu er tollskoðað hjá þeim eins og öðrum, en þeir fara í gegnum sérstakt hlið. „Þetta aukna eftirlit kallar að sjálf- sögðu á aukinn mannskap og nú erum við með tvo á hverju hliði þar sem útlendingamir fara í gegn. En það fer náttúrlega eftir álagi hversu marga við erum með á vakt hverju sinni,“ sagði Þorgeir aðspurður um hvemig tollgæslan væri í stakk búin til að mæta hertu eftirliti. Ekki orðið varir við kvartanir Það kom fram hjá tollvörðunum á Keflavíkurflugvelli að þeir hefðu ekki orðið varir við kvartanir hjá útlend- ingunum sem væm að koma til landsins þó eftirlit hefði verið hert. Það var samdóma álit þeirra sem vom í afgreiðslunni að ferðamennimir skildu þetta og vissu yfirleitt flestir hvers vegna eftirlitið hefði verið hert. Þegar DV var í Keflavík í gær vom um það bil 70 erlendir ferðamenn að fara í gegnum tollinn og tók sú af- greiðsla um 45 mínútur samkvæmt nákvæmum mælingum tollgæslunnar. SJ íslendingar fara nú i gegnum sérstakt hliö tollgæsiunnar á Keflavikurflug- velli þegar þeir koma til landsins. Bandaríska sendiráðið hefur pantað 200 bfla hjá Hreyfli „Nokkrum mínútum eftir að búið var að ákveða að fundurinn yrði í Reykjavík byrjaði síminn að hringja hér og hefur varla stoppað síðan. Við erum þegar byrjaðir að flyta menn frá Keflavík vegna fundarins og bandaríska sendiráðið hefur pantað 200 bíla hjá okkur frá 5.-15. október," sagði Einar G. Þorsteins- son, framkvæmdastjóri Hreyfils í samtali við DV í gær. Hann sagði að CBS hefði líka gert pöntun hjá þeim um 20 bíla. „Við reynum að leysa þetta með sam- vinnu milli stöðvanna, og Bifreiða- stjórafélagið Frami hefur heimilað að bílamir verði tvísetnir, þannig að bílstjóramir finni sér menn með meirapróf til að leysa sig af þannig að leigubílamir geti gengið allan sólarhringinn,“ sagði Einar, að- spurður um hvemig stöðin væri í stakk búin til að standa undir þessu álagi. Hann sagðist ekki eiga von á að leitað yrði til fólks með einkabíla, enda væri það ekki heimilt sam- kvæmt lögum. Á Stór-Reykjavíkur- svæðinu eru milli 620 og 650 leigubílar og sagði Einar að ljóst væri að erfitt yrði að fá leigubíla helgina 11.-12. október. SJ B'rfreiðastöð Steindórs: Bauð Ferðamálaráði þjónustu sína Engar pantanir hafa borist til Bif- reiðastöðvar Steindórs um bíla á meðan á leiðtogafundinum stendur í Reykjavík. „Við buðum Ferðamálaráði þjón- ustu okkar á meðan fundurinn stendur yfir. Við erum með rúmlega 50 smásendibíla, sem em t.d. hentug- ir fyrir kvikmyndatökumenn. Það var vel tekið í tilboð okkar en engin svör ern komin enn,“ sagði Emil Þór Emilsson, stöðvarstjóri hjá Steind- óri, í samtali við DV i gær. Nú þegar hafa breskir sjónvarps- menn leigt bíl hjá Steindóri og verður hann bundinn fram yfir næstu helgi. -SJ „Ekki okkar að fjölga bflum - segir Hallkell Þorkelsson, Bæjarieiðum „Það er ekki okkar að íjölga bílum hjá stöðinni, um það gilda ákveðin lög. Við munum hins vegar reyna að tvísetja bílana, en við þurfum flo- tann til að þjóna viðskiptavinum okkar,“ sagði Hallkell Þorkelsson, framkvæmdastjóri Bæjarleiða, að- spurður um viðbúnað hjá þeim vegna leiðtogafundarins. Hann sagði að þeir hefðu fengið upphringingar frá Bandaríkjunum um leigu á bílum á meðan á fundin- um stæði en þeir gætu ekki látið nema ákveðinn fjölda í þetta. Nú þegar er ljóst að líklega verða milli 50 og 70 bílar frá Bæjarleiðum bundnir vegna pöntunar bandaríska sendiráðsins. Alls eru Bæjarleiðir með 155 bíla. Haft var samband við Borgarbíla- stöðina og BSR í gær og kom fram hjá þeim að ekki væri búið að ákveða neinn sérstakan viðbúnað vegna leiðtogafundarins og væntan- legs álags á leigubílamarkaðnum vegna hans. Eggert Thorarensen, forstjóri BSR, sagði að haft hefði verið samband við þá af aðilum sem sjá um bílamál- in fyrir erlenda fréttamenn t.d. og einnig hefðu ferðaskrifetofur haft samband við stöðina. „Það hefur enginn bíll verið ráðinn ennþá, þannig að þetta er óljóst," sagði Eggert. SJ Bílaleigan Geysir: Allir bflar upppantaðir Haraldur Gunnarsson, eigandi Bílaleigunnar Geysis, sagði í samtali við DV í gær að þeir væru þegar búnir að leigja alla þá bíla sem þeir hefðu en það munu vera milli 40 og 50 bílar. Sömu sögu var að segja á Bílaleigunni Ás en þar er búið að leigja alla bíla stöðvarinnar í tengsl- um við fund þeirra Reagans og Gorbatsjovs. „Það er enginn vafi á því að þessi eftirspum er vegna leiðtogafundar- ins enda eru þetta mestmegnis blaðamenn sem hafa tekið bíla á leigu hjá okkur,“ sagði Haraldur. Aðspurður um viðbrögð við þessari eftirspum sagðist hann hafa fengið upphringingar frá fólki sem vildi leigja bílana sína og sagðist hann ætla að þiggja þau boð, þó svo hann teldi bílaleigumar anna eftirspum- inni að mestu. „Það þarf að tryggja bílana en annars er þetta ekki svo mikið mál, ég mun taka ákveðna prósentu af leigunni eins og vaninn er hjá ferðaskrifetofum þegar ein- staklingar leigja eitthvað í gegnum þær,“ sagði Haraldur. Verð á bílum hjá Geysi er firá 29 dollurum eða 1.160 krónum upp í 35 dollara eða 1.400 krónur á dag og síðan kemur kílómetragjald þar ofan á. SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.