Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1986.
Fréttir
I þetta rúm mun Gorbatsjov halla sér ef hann ætlar að búa á Sögu.
Gorbatsjov
í svítunni á
Hótel Sögu
Gorbatsjov verður að öllum líkind-
um í svítunni á Hótel Sögu á meðan
á dvöl hans stendur. Ekki er enn ljóst
hvar Reagan verður en þrír staðir
koma til greina sendiherrabústaður
BandanTíjamanna við Laufásveg,
Ráðherrabústaðurinn við Tjamargötu
eða hús forseta íslands við Laufásveg
72.
I gær og í morgun hafa öryggisverð-
ir úr Hvíta húsinu úr innsta hring
forsetans kannað aðstæður á þessum
stöðum og eins hafa aðstæður verið
kannaðar á Hótel Sögu.
Ekki hefur enn verið að fullu frá-
gengið hvort Hótel Saga verður
fundarstaðurinn en Steingrímur Her-
mannsson sagði í gær að gengið væri
út frá því sem vísu þar sem vart kæmi
annar staður til greina.
Aðspurður hvort fundarstaðimir
yrðu tveir eins og gjaman hefur verið
á fyrri fundum leiðtoganna, sagðist
hann ekki vita það. Það vantaði ýms-
ar upplýsingar frá Bandaríkjunum og
Sovétríkjunum. Ef svo yrði hins vegar
kæmi Höfði til greina.
-KÞ
Þetta er baðherbergið.
DV-myndir KAE
Verða vél-
byssumenn
á húsþökum?
Framvarðasveit öryggisliðs leiðtog- menn. „Þessir menn eru svo pottþéttir
anna, sem til Reykjavíkur kemur,
verður öll vopnuð, en stóm svæði mun
verða lokað og girt af, bæði í námunda
við fundarstaðinn og þar sem leið-
togamir búa.
Steingrímur Hermannsson sagði
ekki ástæðu til að óttast vopnaburð-
inn þar sem þeir sem vopnin bæm
væm sérþjálfaðir til þess og úrvals-
að þeir geta skotið menn milli augn-
anna úr hvaða stöðu sem er,“ sagði
forsætisráðherra
Er hann var spurður hvort menn,
vopnaðir vélbyssum, yrðu á húsþökum
í Reykjavík, eins og var í Genf á leið-
togafundinum þar, sagðist hann ekki
eiga von á því. -KÞ
Óvíst um fljót-
andi hétel
Ekki er enn ljóst hvort skemmtiferða- ekki hafa fengið neinar upplýsingar
skip kemur til með að leysa hótelvand- um það hvort af þessu yrði. Hins veg-
ann þótt þegar hafi mörg skandinavísk ar sagði hann að ef skemmtiferðaskip
fyrirtæki boðið skip í þessum tilgangi, yrði sent hingað í þessum tilgangi
þar á meðal Smyrill. myndi það leysa margan vandann.
Steingrímur Hermannsson sagðist -KÞ
Ríkisstjómin set-
ur bráðabirgðalög
Ríkisstjómin hefur sett bráða-
birgðalög og tekið fjögur hótel í
Reykjavík leigunámi. Er þetta gert að
ósk hótelanna til að koma í veg fyrir
bótakröfur sem viðskiptavinir gætu
gert er höfðu pantað herbergi en ekki
er hægt að standa við vegna leið-
togafúndarins.
Þessi hótel eru Hótel Saga, Hótel
Loftleiðir, Hótel Esja og Hótel Holt.
Að sögn Steingríms Hermannssonar
forsætisráðherra verða hótelin notuð
undir sendinefridir leiðtoganna.
-KÞ
Svítan á Sögu er stórglæsileg. Þetta er setustofan.
Kostnaður íslendinga gæti skipt tugum milljóna
„Það er ómögulegt að segja hvem
kostnað við íslendingar berum af
þessum fúndi en það gætu orðið
milljónir, jafnvel tugir milljóna. Ég
bara veit það ekki,“ sagði Steingrím-
ur Hermannsscm.
Eins og fram hefúr komið bera
stórveldin tvö nánast allan kostnað
en eitthvað kemur þó óhjákvæmi-
lega í hfut íslendinga sjálfra. Til
dæmis hefúr þurft að ráða allmarga
í forsætisráðuneytið til að starfa þar
til fúndinum lýkur.
„Við fáum náttúrlega ómældar
tekjur inn í landið vegna þessa,“
sagði Steingrímur, „og þegar til
framtíðarinnar er litið verður það
auðvitað enn meira.“ -KÞ
Abyigðinni
skipt
Ábyrgðinni á umsjón með hinum ýmsu
hliðum leiðtogafundarins hefur verið
skipt í fimm hluta.
Með öryggismálin fara Þorsteinn
Geirsson, ráðuneytisstjóri í dóms-
málaráðuneyti, Böðvar Bragason,
lögreglustjóri í Reykjavík, Þorgeir
Þorsteinsson, lögreglustjóri á Kefla-
víkurflugvelli, og Ámi Sigurjónsson,
deildarstjóri í útlendingaeftirlitinu.
Með hótelmálin fara Birgir Þorgils-
son og Ferðaskrifstofa ríkisins.
Um fjarskiptamálin sér Póstur og
sími og fer þar fremstur Ólafúr Tómas-
son, póst- og símamálastjóri.
Með fjölmiðlamálin fara Magnús
Torfi Ólafsson, blaðafulltrúi ríkis-
stjómarinnar, Helgi Ágústsson og
Sigríður Snævarr úr utanríkisráðu-
neytinu, sem bæði hafa verið kölluð
frá útlöndum vegna þessa, Helgi frá
Washington og Sigríður frá Moskvu,
og Bjöm Friðfinnsson fyrir hönd
Reykj avíkurborgar.
Þá hefúr ráðuneytisstjórinn í heil-
brigðisráðuneytinu verið skipaður til
þess að sjá um alla þá sjúkrahús-og
læknaþjónustu sem leiðtogamar
kunna að þurfa á að halda á meðan á
dvöl þeirra stendur.
Einnig hefúr verið farið fram á það
að með hvexjum hópi fyrir sig starfi
einn bandarískur og annar rússneskur
fúlltrúi úr öiyggisvarðliði leiðtog-
anna. -KÞ
Blaðamannamíðstöð
opnuð um helgina
Blaðamannamiðstöðvar verða að
öllum líkindum tvær, í Hagaskóla og
Melaskóla. Verður sú fyrmefnda opn-
uð strax um næstu helgi, hin strax
eftir helgina. Þetta þýðir að skóla-
krakkamir fá frí á meðan á þessu
stendur
Ekki er enn að fúllu ljóst hversu
margir blaðamenn koma en þeir munu
að öllum líkindum fara vel yfir 1000
að minnsta kosti. Aðspurður sagði
Steingrímur að ekki væri hægt að
setja neinn kvóta á blaða- og frétta-
menn. Það yrði bara að vona að hægt
yrði að taka við öllum þeim sem vilja
koma. -KÞ