Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1986.
13
Neytendur
Hvalkjöt á ýmsa vegu
Lesendur hringja inn til okkar
hvalkj ötsuppskriftir.
Kindaslög og hvalkjöt
Fyrir mörgum árum lærði ég að
hakka saman kindaslög og hvalkjöt.
Búið til kjötdeig eins og úr venjulegu
hakki, bætið svolitlu raspi saman
við og eggi, svona rétt til að binda
deigið saman. Búa svo til bufEkökur
sem steiktar eru á pönnu og hafa
með mikið af brúnuðum lauk. Má
líka hafa með spældum eggjum ef
vill.
Þetta er herramannsmatur og
mjög ódýr.
Hvalkjöti velt upp úr uxahala-
súpudufti
Frábær réttur úr hvalkjöti. Þessa
uppskrift gaf mér fisksali í Amar-
bakka og að hans sögn er hún komin
frá Guðjóni fiskmatsmanni á Höfh,
Homafirði.
Gott barið hvalkjöt er þerrað mjög
vel, velt upp úr uxahalasúpudufti
eins og um rasp væri að ræða. Þetta
er látið bíða í kæliskáp yfir nótt. Þá
em stykkin snöggsteikt úr vel heitri
feiti (smjörlíki/olíu). Gott að hafa
steiktan lauk með.
Óþarfi er að leggja hvalkjöt í bleyti
í mjólk og ekki þarf að krydda það
meira en að láta það liggja í súpu-
duftinu.
Lesandi.
Hvalkjötspottréttur
400 g hvalkjöt
4 stk. gulrætur
ca 50 g sellerí
1 'A msk. hveiti
salt pipar
Gómsætur réttur úr hvalkjöti, búinn til á veitingastaðnum ÚHar og Ijón á Grensásveginum.
2-3 msk. smjörl.
vatn
2-3 msk. tómatkraftur
'/< tsk. sykur
e.t.v. smávegis soja
Skerið kjötið í litla bita og veltið
þeim upp úr hveitinu, krydduðu með
salti og pipar.
Brúnið kjötið við góðan hita á
pönnu. Gætið þess að láta ekki of
mikið kjöt á pönnuna í einu.
Látið steikt kjötið í pott og sjóðið
upp á pönnunni eftir hverja steik-
ingu og hellið yfir kjötið í pottinum.
Látið svo grænmetið út í pottinn og
hellið vatni út í, ekki meiru en svo
að það rétt fljóti yfir innihaldið.
Látið tómatkraftinn út í. Látið þetta
sjóða við vægan hita þar til græn-
metið er tilbúið. Bragðbætið með
salti og pipar eftir þörfum. Sykurögn
getur e.t.v. gert sitt til að bæta
bragðið. Þá skemmir svolítið af soja-
sósu aldrei fyrir hvorki hvað varðar
lit né bragð.
Berið fram með soðnum eða
hrærðum kartöflum. -A.BJ.
Smart í tauinu þiátt
fyrir þröngan ffáriiag
Hver segir að þaö sé ekki hægt að
vera „fihn í tauinu“ þótt peningavesk-
ið sé frekar þunnt? Hér koma nokkur
góð ráð:
* Gerðu þér grein fyrir hvemig föt
þig langar í, leggðu þér einhvers kon-
ar heildarlínu og haltu þig við hana
Láttu ekki freistast til þess að kaupa
eitthvað einungis vegna þess að það
er á útsölu
* Ef þú rekst á „peysuna sem þig
hefúr alltaf langað í“ skaltu kaupa
pils eða buxur sem passa við hana
strax. Annars er líklegt að þú gerir
það ekki og peysan hggi ónotuð inni
í skáp.
* Þegar þú ætlar að kaupa þér skó
eða annan skófatnað skaltu gera það
óþreyttur. Fætumir eiga það til að
bólgna og þá passarðu ekki í rétt skó-
númer.
* Þegar þú kaupir þér skó skaltu fýrir
alla muni vera í pHsi og sokkabuxum
en ekki síðbuxum. Þannig séiðu betur
hvað fer þér vel.
* Dökkleitar sokkabuxur klæða af
breiðan fótlegg. Ef þú ert hins vegar
með mjög mjóa ökla og kálfa skaltu
halda þig við húðlitaðar sokkabuxur.
* Líttu ekki á það sem tóma eyðslu
að kaupa þér alls kyns tískufylgihluti.
Þú getur hæglega lífgað upp á föt frá
því í fyrra með nýrri slæðu, belti eða
hálsfesti.
* Þvoðu silkiblússur í höndunum
Bættu örlitlu af giófu matarsalti út í
Raddir neytenda
Vfnanda í
stað olíu í
kökudropa
Ragna Sigurðardóttir hringdi:
Hún sagðist ekki ánasgð með sítr-
ónukökudropa sem em með olíu en
ekki vínanda. Þar af leiðandi geymast
brauð og kökur ekkert sem slíkir drop-
ar em notaðir í.
Þetta mun vera gert svo böm og
unglingar komist ekki yfir ódýran og
auðsóttan vímugjafa. Hún sagði að sér
sýndist að allir gætu orðið sér úti um
vín þótt þeir væm ungir að árum
vatnið svo litimir renni ekki til. Silkið
í blússunni þolir illa að vera lengi í
vatninu í einu. Strauið með hálfköldu
straujámi.
* Áður en þú kaupir föt skaltu ganga
úr skugga um að þau megi þvo en
þurfi ekki að senda í hreinsun. Það
er mikill spamaður að því að geta
þvegið fötin sín sjálfur.
-A.BJ.
iUpplýsingaseðill
í til samanburðar á heimiliskostnaði
! Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð )>ér orðinn virkur þátttak-
j andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
I fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
I
! Nafn áskrifanda
i
! Heimili
i
Sími
Fjöldi heimilisfólks
i Kostnaður í september 1986.
j Matur og hreinlætisvörur kr.
I Annað kr.
I
Alls kr.
Slökunarog hvíldarpúöinn
YRKIR SF.
Póstkrofuþjónusta fyrir iandsbyggð-
ina miili 10 og 12. Simi 10643.
BESTl OLUJM '
APÖTEKUM
Slökun oq hvíld
i flugferðina, við sjónvarpið, við lest-
ur og prjón, fyrir barnið i bilstúinum-
og kerrunni. Alls staðar þar sem þú
vilt hafa það þægilegt er SleepOver
slökunarpúðinn ómissandi.
þADERj^IKU*
3NNM&
h^deca^l
(olsýrusuðuvélinni,
nú einnig með kælingu.
kdeccnj
hentar vel fyrir alla sem
þurfa að gera við heima
svo sem bændur, bíleig-
endur, stærri ogminni
verkstæði.
lydeccHg,
sýður saman járn, ál, ryð-
fríttstál o.fl.
íydeccM.
er 100 amp. vél sem
gengur fyrir 10 amp.
Ijósaöryggi.
IdKÍeCCNþl
hefursjálfmatandi þráð,
0,6-0,8 mm.
IrdecCHþl,
ER SELD Á EFTIRFARANDI
STÖÐUM:
G. Þorsteinsson
& Johnson
ísbroti
Stapafelli, Keflavík
KÁ, Selfossi
Hjólbarðaverkstæði
Björns Jóhannssonar,
Hellu
0g verðið aðeins
14.363.-
^jrsteinsson
Xlonnson
ÁRMÚLA 1 - SÍMI68-55-33