Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Blaðsíða 18
18
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1986.
Iþróttir
Guðjón og Kjartan
þjálfa hjá Reyni
- hafa ráðið Guðjón Ólafsson og Kjartan Másson sem þjáifára
„Við ætlum okkur að gera virkilega
stóra hluti næsta sumar og rífa þetta
upp hjá okkur. Við höfum haft sam-
band við leikmenn sem léku áður með
Reyni en leika með öðrum félögum og
erum bjartsýnir á að endurheimta
marga þeirra,“ sagði Sigurður Jó-
hannsson, formaður knattspymu-
deildar Reynis frá Sandgerði, í samtali
við DV í gær.
Forráðamenn 3. deildar liðs Reynis
hafa ráðið sér þjálfara fyrir næsta
keppnistímabil og er Reynir eina fé-
lagið sem það hefur gert á Suðumesj-
um. Þeir Guðjón Ólafsson og Kjartan
Másson hafa verið ráðnir þjálfarar og
verður Guðjón aðalþjálfari en hann
þjálfaði Val frá Reyðarfirði í sumar.
Paul Walsh brákaður
Rafo Raínssan, DV. Engiandr
Paul Walsh hjá Liverpool, sem
hefur ekki leikið nema tvo deildar-
leiki í átta mánuði, verður frá
vegna meiðsla á rist í fjórar vikur.
Hann meiddist í leik gegn Everton
í vikunni og er haldið að hann
hafi tognað illa. Við röntgen-
myndatöku kom í ljós að hann er
brákaður á rist. I
• Craig Johnston, miðvallarspil- J
ari Liverpool, verður einnig frá í ■
nokkrar vikur vegna meiðsla. |
•Adrian Heath hjá Everton I
mun ekki leika með félaginu gegn I
Arsenal á laugardaginn. Hann er I
meiddur á ökkla og þau meiðsli ■
versnuðu í gær. I
-SOS 1
Einarog
Gunnar
ráðnir
til 3 ára
Á blaðamannafundi sem Körfu-
knattleikssambandið boðaði til í gær
var endanlega gengið frá þriggja ára
ráðningu þeirra Einars Bollasonar og
Gunnars Þorvarðarsonar og munu
þeir þjálfa íslenska landsliðið fram
yfir Norðurlandamótið sem fram fer
hér á landi árið 1989.
Mikið er framundan hjá lEmdsliðinu
og langstærsta verkefinið er riðla-
keppni Evrópukeppninnar sem fram
fer í september á næsta ári. I riðli með
íslandi verða 4 eða 5 þjóðir og tvö efstu
sætin veita þátttökurétt áfram í
keppninni en þá verður leikið heima
og heiman. Verður allt lagt í sölumar
• Einar Bollason þjálfar landsliðið
næstu þrjú árin.
til að takast megi að komast áfram í
keppninni.
Á fundinum í gær var lögð fram
áætlun landsliðsins fram yfír 1989 og
er reiknað með rúmlega 100 lands-
leikjum ef allt gengur upp. Greinilegt
að hugur er í mönnum og vonandi að
vel takist. _sk
Kjartan Másson verður aðstoðarþjálf-
ari liðsins en hann þjálfaði sem
kunnugt er 1. deildar lið Víðis frá
Gaði í sumar. Kjartan hafði ætlað að
taka sér hvíld frá þjálfun en lét undan
miklum þrýstingi Reynismanna. Báðir
hafa þeir Guðjón og Kjartan þjálfað
Reyni áður. Þeir munu þjálfa meist-
araflokk og 2. flokk félagsins næsta
„Mikill hugur í okkur“
„Það er mikill hugur í okkur Reynis-
mönnum og okkur þykir vel hafa
tekist til við þjálfararáðninguna. Við
stefhum á góða hluti í 3. deildinni
næsta sumar og erum hungraðir í sigra
á knattspymuvellinum eftir fremur
dapurt sumar í sumar,“ sagði Sigurður
Jóhannsson, formaður knattspymu-
deildar Reynis. Æfingar undir stjóm
þeirra Guðjóns og Kjartans munu
hefjast fljótlega, bæði úti og inni.
-SK
• Arnór Guðjohnsen hefur svo sannarlega staðið sig i stykkinu undanfarið
með Anderlecht og er vonandi að framhald verði á því.
„Amór er orðinn
eitt stærsta nafnið
hérhjá Anderiecht“
- segir Ari Haan, þjáffari belgíska meistaraliðsins
Kristján Bembuig, DV, Belgíu;
Amór Guðjohnsen fær lofsamlega
dóma hér í belgísku blöðunum eftir
Evrópuleik Anderlecht í Póllandi og
útnefinr stórblaðið „Hed Newsblad"
hann sem mann Evrópukeppninnar í
Belgíu. Blaðið sagði að Ari Haan,
þjálfari Anderlecht, hefði gert rétt
þegar hann tók sóknarleikmennina
Kabongo og Kmcevic út og setti Am-
ór sem fremsta leikmann. Amór stóð
mjög vel í leiknum og skoraði gott
mark með viðstöðulausu skoti í blá-
homið.
„Það er gaman að skora tvö þýðing-
armikil mörk á einni viku. Fyrst með
íslenska landsliðinu gegn Rússum og
síðan hér gegn Gomik Zabrze. Ég,
Lozaon og Vercauteren vorum búnir
að æfa ýmsa hluti i sambandi við sókn-
arleikinn áður en við héldum til
Póllands. Dæmið gekk upp hjá okkur
og ég átti ekki í vandræðum með að
skora,“ sagði Amór í viðtali við „Hed
Newsblad" og bætti við: „Markið kom
á réttu augnabliki.“ Amór skoraði
einnig í fyrri leik liðanna.
Ari Haan, þjálfari Anderlecht, og
Martin Libbans, aðstoðarmaður hans,
sögðu að þeir væm gífúrlega ánægðir
með Amór. „Amór er nú orðinn einn
af stóm nöfhunum hjá okkur. Er bú-
inn að tryggja sér fast sæti í And-
erlecht-liðinu. Gleymið því ekki að
Amór getur leikið allar stöður á vell-
inum og þar fyrir utan skorar hann
orðið reglulega mörk og á auðvelt með
það,“ sagðu þeir Haan og Libbans.
-sos
•Jesper Olsen, ekki ánægður hjá Man. Utd.
„Fer frekar frá Man. Utd
en að vera í varaliðinu"
- sagði danski landsliðsmaðurinn Jesper Olsen í gær
„Ég fer frekar frá félaginu en að vera í
varaliðinu,“ sagði danski landsliðsmaður-
inn Jesper Olsen í Manchester í gær. í
tveimur síðustu leikjum Man. Utd hefur
Olsen verið varamaður eða eftir að Remi
Moses náði stöðu sinni á ný eftir langvar-
andi meiðsli. Olsen kom þó inn á í báðum
leikjunum, fyrst sem varamaður Norman
Whiteside gegn Everton og síðan fyrir
Moses gegn Chelsea á sunnudag. Tók þá
strax vítaspymu, sem Godden, markvörð-
ur Chelsea, varði. Eftir frammistöðu hans
þar virðist sem Ron Atkinson, stjóri Un-
ited, ætli Olsen sæti í varaliðinu á
laugardag og Daninn var fljótur að svara
því.
Á laugardag leikur Man. Utd á City
Ground í Nottingham við efsta lið 1. deild-
ar, Nottingham Forest. Röbert Woodward,
fréttamaður Reuters, taldi í gær að auð-
velt yrði þar fyrir leikmenn Forest að
verja tveggja stiga forskot sitt. United
muni tapa þar sínum sjöunda leik í haust.
Vissulega dapurt gengi nú hjÁ United og
mikill munur frá því á síðasta leiktíma-
bili þegar liðið sigraði í.tíu fyrstu leikjum
sínum.
Lundúnaliðið litla, Wimbledon, sem
leikur í fyrsta skipti í 1. deild, hefur átt í
talsverðum erfiðleikum í síðustu leikjmn
eftir frábæra byrjun. Á laugaidag fær lið-
ið meistara Liverpool í heimsókn. Þá
verður mikið um að vera í suðurbæ heims-
borgarinnar. Fyrir níu árum lék Wimble-
don í 4. deild - í fyrsta skipti í sögu
félagsins í deildakeppninni. Varð þar í 13.
sæti og hélt því sæti sínu í í deildakeppn-
inni með sóma. Síðan hefur sigurganga
félagsins verið mikil og nú er það komið
í 1. deild. Enginn þeirra, sem lék með
Wimbledon fyrir níu árum, er í liðinu nú.
Þekktastur nú er John Fashanu, yngri
bróðir Justin, sem Brian Clough keypti
til Nottingham Forest frá Norwich fyrir
eina milljón stérlingspunda. Seldi hann
síðan til Notts County fyrir smápening.
Justin leikur nú með Brighton í 2. deild.
Nær allir leikmenn Wimbledon nú eru
„aldir upp“ hjá félaginu og samtals eiga
þeir þrjá landsleiki. Reiknað er með að
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, sem
leikið hefúr 101 landsleik fyrir Skotland,
muni eitthvað breyta liði sínu á laugar-
dag. Tveir síðustu leikimir hafa aðeins
gefið eitt stig, tap í Southampton og jafn-
tefli við Aston Villa á Anfield. Af öðrum
leikjum á laugardag má nefiia að Everton
leikur við Arsenal í Liverpool, Sheff.
Wed. leikur við Oxford, Tottenham við
Luton og Watford við West Ham. -hsím
I
I
I
I
I
i
I
l
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
L.