Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1986. 39 Menning Platón. Samræða Platóns um dygðina Platón: Menón Hiö islenska bókmenntafélag, Reykjavik 1985. Fræg eru þau ummæli Whitehe- ads, að vestræn heimspeki sé ekkert annað en neðanmálsgreinar við rit Platóns. Þetta kann að vera ofsagt, en Platón er þó einn áhrifamesti heimspekingur allra tíma og hefur heillað margan manninn með orð- snilld sinni og andríki. Fjögur rit hafa komið út eftir hann á íslensku, svó að ég viti. í Samdrykkjunni seg- ir hann firá samræðu Sókratesar við lærisveina sína um ástina, en henni lýsir Platón sem guðdómlegri vit- firringu, og eru margar skilgreining- ar óskynsamlegri. í Síðustu dögum Sókratesar, sem Hið íslenska bók- menntafélag gaf út árið 1973, getur að líta þrjú rit hans, Vamarræðu Sókratesar, Kríton og Faídon. Bók- menntafélagið hefur síðan gefið út tvö önnur rit hans, Gorgías árið 1977 og Menón á siðasta ári, en um það ætla ég að fara örfáum orðum. Hvað erdygð? Þeir Eyjólfur Kjalar Emilsson og Gunnar Harðarson, sem sáu um út- gáfu Menóns og sömdu formála, nota skólaþýðingu, sem Sveinbjöm Egils- son las fyrir nemendum í Bessa- staðaskóla á þriðja áratug nítjándu aldar. Bókin er eins og flest önnur verk Platóns samræða Sókratesar við landa sína um eitthvert frum- hugtak heimspekinnar. Að þessu sinni ræðir hann við þá Menón og Anýtos um dygðina. Hvað er hún? Menón heldur, að hann geti svarað þessari spumingu með því að telja upp margvíslegar dygðir. En Sókra- tes segir, að hann verði að tilgreina eitthvert eitt samkenni ólíkra dygða. Ella getum við ekki skorið úr um, hvort einhver hæfileiki, sem ekki hafi verið talinn upp, sé dygð eða ekki. Menón varpar þá fram tveimur tilgátum um dygðina, sem Sókrates hrekur að bragði: fyrst að hún sé hæfileikinn til að stjóma, síðan að hún sé þrá eftir því, sem sæmd sé að, ásamt hæfileikanum til að öðlast það. Þá kenningu Platóns, að við þurf- um að geta skilgreint hugtök til þess að geta notað þau af einhverju viti, má gagmýna með tvennum rökum. I fyrsta lagi má benda á, að við þurf- um ekki að vita allt það, sem við kunnum. Ég kann til dæmis að hjóla án þess að geta sagt öðrum til í smáatriðum um hjólreiðar. Svipað er að segja um ratvísi. Ég kann að komast leiðar minnar án þess að geta lýst leiðinni fyrir ókunnugum. Kunnátta í notkun hugtaka krefst ekki nauðsynlega vitneskju um eitt- hvert eitt samkenni þeirra. Er því ekki hugsanlegt, að við getum verið dygðug án þess að geta skilgreint dygðarhugtakið? Kunnátta og vitn- eskja eru sitt hvað. í öðru lagi getur verið, að hugtök séu skyld án þess að hafa eitthvert eitt samkenni, eins og Wittgenstein benti á. Svipmót sé með þeim eins og mönnum úr sömu fjölskyldunni. Upprifjunarkenning Platóns Menón gefst þó ekki upp, heldur spyr Sókrates, hvemig við getum aflað okkur þekkingar á því, sem við þekkjum ekki. Sókrates svarar, að slík þekkingaröflun sé upprifjun á því, sem við þekktum á fyrra tilvem- stigi, enda sé sálin ódauðleg. Hann kallar á ungan þræl Menóns, teiknar rúmfræðilegar myndir í sandinn og Bókmenntir Hannes H. Gissurarson lætur sveininn lýsa tengslum þeirra. Hann lætur þrælinn með öðrum orð- um uppgötva ýmis rúmfræðileg sannindi, sem hann hafði aldrei heyrt um áður. Þetta kallar Sókra- tes, að hann fái sveininn til að rifja það upp, sem hann hafi reyndar þekkt áður. Þekkingin búi því innra með okkur, og tilgangur heimspek- innar hljóti að vera að laða hana fram. Ég skal játa, að ég er of mikill reynsluhyggjumaður í anda Poppers til að geta tekið undir þessa kenn- ingu Platóns. Þekkingin verður, held ég, fremur til í samskiptum vit- undar og vemleika, í þrotlausum tilgátum okkar og tilraunum. Og mér sýnist líka, að af upprifjunar- kenningu Platóns megi leiða heldur hæpnar hugmyndir um uppeldi bama og unglinga. Tilgangur upp- eldis er að mínum dómi ekki að leyfa blessuðum bömunum að „tjá sig“ með endalausu og agalausu rausi, heldur að siða þau, kenna þeim að lúta lögmálinu, ef svo má að orði komast. f upprifjunarkenningunni í Menóni má þó greina nokkrar rætur þeirrar fmmmyndakenningar, sem Platón er frægastur fyrir, en kjarni hennar er, að stundleg fyrirbæri séu ekkert annað en dauft endurskin af eilífúm, fúllkomnum og óbreytileg- um frummyndum. Verður dygðin kennd? f síðasta hluta samræðunnar kem- ur Anýtos til sögu og ræðir við Sókrates um, hvort kenna megi mönnum dygðina. Hann telur, að sófistamir grísku, mælskukennarar eða fræðarar, kenni mönnum ekki dygð, en allir góðir borgarar geri það hins vegar. Sókrates svarar honum með því að nefna hvem góðborgar- ann af öðrum, sem hafi ekki kennt sonum sínum dygðina. Sókrates ger- ir greinarmun á skoðun og þekk- ingu, þar sem þekking er sönn, áreiðanleg og rökstudd skoðun. Hann kemst að þeirri niðurstöðu, að dygðin sé sönn skoðun án þess að vera þekking, þar sem hún sé blásin okkur í bijóst af guðunum. Sannleikur hennar er innblásinn, en ekki rödstuddur. Þótt Platón láti kennara sinn Sókrates bera sigurorð af Anýtosi í samræðunni, er ég ekki viss um, að ég deili skoðunum með Sókratesi. Til eru borgaralegar dygðir, svo sem orðheldni og virðing fyrir fjölskyld- unni og eignarréttinum, og þær má svo sannarlega kenna, eins og flestir foreldrar mannkynssögunnar geta borið vitni um. Ella fengi borgara- legt skipulag ekki staðist. Hegel gerði notadrjúgan greinarmun á borgaralegu siðferði, Sittlichkeit, sem fólst einkum í borgaralegum dygðum eða aðlögun að borgaralegu skipulagi, og einstaklingsbundnu siðgæði, Moralitat, sem fólst einkum í vali einstaklinga um verðmæti á örlagastundum. Hvort tveggja á auðvitað rétt á sér, en Platón gerði hinu fyrmefhda ekki fullkomin skil, sennilega vegna þess að hann var sjálfur enginn fjölskyldumaöur. Óvandað mál f eftirmála kveðst ritstjóri lær- dómsritanna, Þorsteinn Gylfason heimspekidósent, hafa verið í vafa um, hvort ætti að gefa út þessa skólaþýðingu Sveinbjamar Égils- sonar. Hann hafi þó að lokum tekið ráðum þeirra Eyjólfs Kjalars og Gunnars. Ég skal játa, að ég er þeim tveimur ekki sammála. Þýðingin er dönskuskotin og alls ekki á nægilega vönduðu máli, enda hafði Sveinbjöm sjálfur ekki búið hana til prentunar. Eg hefði i sporum þeirra Eyjólfe Kjalars og Gunnars endurskoðað þýðinguna miklu betur - með svip- uðum hætti og Sigurður Nordal á sínum tíma, þegar hann sá um út- gáfú á Síðustu dögum Sókratesar og studdist þá líka við skólaþýðingar Sveinbjamar Egilssonar. Reyndar má hafa formála þeirra Eyjólfe Kjalars og Gunnars til marks um, að þeir séu ekki nægilega vand- fysnir á íslenska tungu. Þeir segja til dæmis (bls. 13) „heldur ekki“, þegar þeir ættu að segja „ekki held- ur“. Þeir segja (bls. 26): „En Sókrates vill meina...“ Þetta er danska, ekki íslenska. Þeir nota uppfyllingarorð eins og „nefnilega" og „einatt“ í óhófi. Og stundum gera þeir beinar málfræðivillur, nota til dæmis at- viksorð, þar sem þeir ættu að hafa forsetningar. Stíll þeirra er að vísu ekki óskýr, en hann er flatneskjuleg- ur og tilþrifalítill. Skylt er að geta þess, að formáli þeirra er fróðlegur um þá Platón og Sveinbjöm Egils- son, en af honum er að ráða, að þeir séu textafræðingar fremur en heim- spekingar. HHG. Nauðungaruppboð annað og sfðasta á fasteigninni Granaskjóli 70, tal. eigandi Guðjón Andrés- son, ferfram á eigninni sjálfri mánud. 6. oict. '86 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Eggert B. Ólafsson hdl. Borgarfógetaembaettið í Reykjavik. Nauðungaruppboð á fasteigninni Granaskjóli 44, þingl. eigandi Ágúst Þ. Jónsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. okt. '86 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Skeljagranda 8, íb. 0203, tal. eigandi Margrét Guðnadóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. okt.'86 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Ammundur Backman hrl., Búnaðarbanki íslands, Útvegsbanki íslands og Klemens Eggertsson hdl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Skildinganesi 1, lóð, þingl. eigandi Loftorka sf„ fer fram á eign- inni sjálfri mánud. 6. okt. '86 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. ______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Skógarhlíð 12, þingl. eigandi Isam hf„ fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. okt. '86 ki. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. ______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð á fasteigninni Skipholti 27, 2. og 3. hæð, þingl. eigandi Staður hf„ fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. okt. '86 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru Gjald- heimtan í Reykjavík, SigríðurThorlacius hdl. og SigurðurG. Guðjónsson hdl. ___________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Skipholti 20, hl„ tal. eigandi Aðalheiður Hafliðadóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. okt. '86 kl. 13.45. Uppboðs- beiðendur eru Jón Þóroddsson hdl„ Gjaldheimtan í Reykjavík, Veðdeild Landsbanka íslands og Ævar Guðmundsson hdl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð á fasteigninni Stigahlíð 18, 4.t.v„ þingl. eigandi Guðrún Ragnarsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. okt. '86 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Veðdeild Landsbanka íslands. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Baldursgötu 14, 3. hæð og risi, þingl. eig- andi Helga Þorsteinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. okt.'86 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru Sigurður Sigurjónsson hdl., Gjaldheimtan I Reykjavík og Baldur Guðlaugsson hrl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Þú hringir — við birtum og auglýsíngin verður færð á kortið. Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar og ganga frá öllu i sama simtali. Hámark kortaúttektar í síma er kr. 2.050,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.