Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Qupperneq 30
42 HJARTAKNÚSARI VIKUNNAR COCK ROBIN - WHEN YOUR HEART IS WEAK (CBS) Cock Robin sýnir hér og sannar að hér er á ferðinni einhver efailegasta hljóm- sveitin í dag, hér með gullfallegt lag í rólegum dúr, skemmtilega drunga- legur undirleikur og af- bragðssöngur. Alveg skínandi. AÐRAR HJARTNÆMAR ELVIS COSTELLO - TOKYO STORM WARNING (IMP) Það verður að viðurkenn- ast að ég er ekki alveg nógu ánægður með Costello í þessu lagi, það er hrátt og virkar dálítið fráhrindandi við fyrstu heym en venst sæmilega. Meistarinn á betra til. MADONNA -TRUE BLUE (SIRE) Ég sagðiþað þá og segiþað nú að sem smellasmiður á Madonna fáa sína líka um þessar mundir. Og það sem meira er-um vert, þetta eru engar ómerkilegar dægur- flugur heldur stórgóð lög eins og þetta titillag breið- skífunnar True Blue. Þessi lög eru bæði grípandi og vinna jafnframt á við tíðari hlustun. CYNDY LAUPER - TRUE COLOURS (PORTRAIT) Þetta er reglulega rólegt lag, fínt fyrir svefninn, góð melódía og því verður ekki neitað að hún Cyndy hefur afskaplega sjarmerandi rödd. AÐRAR MINNA HJART- NÆMAR HOLLYWOOD BEOND - NO MORE TEARS (WEA) Ekki jafnsterkt lag og Whats The Colour Of Mo- ney en engu að síður ágætislag með þéttum hljómborðsbakgrunni og grípandi undirtóni. OWEN PAUL - PLEASED TO MEET YOU (EPIC) Þetta er sýnu verri eftirfari góðs lags en í dæminu hér á undan, Owen Paul reynir hér að líkja eftir My Favo- rite Waste Of Time með mjög misheppnuðum ár- angri. CHICAGO - 25 OR 6 TO 4 (WB) Hvemig dirfast mennirnir að svívirða jafafrábært lag og 25 og 6 til 4 með því að útsetja það upp á nýtt með diskódrasli og hljóðgerfl- um? Er þessum mönnum ekkert heilagt? -SþS- Huey Lewis & The News - Fore! Aldrei verið betri Þolinmæði þrautir vinnur allar, seg- ir máltækið, og víst hefur það sannast á Huey Lewis & The News því það er loks nú á gamals aldri sem þeir fé- lagar fá að njóta umbunar fyrir áralangt puð. Og það sem meira er, þeir hafa án efia aldrei verið betri en einmitt nú. Það sannar þessi stórgóða plata, Fore! I raun og veru þyrfti þessi umsögn ekki að vera lengri, platan Fore! er í einu orði sagt stórgóð en rétt er kannski að útskýra það aðeins nánar. Það sem oft greinir góða listamenn frá öðrum, ekki eins góðum, er sú gleði og tilfinning sem þeir leggja í sitt verk, gleði og tilfinning sem þeim tekst að koma til móttakenda gegnum verkið. Þetta eru menn sem hafa augljóslega mikla ánægju af því sem þeir eru að gera og taka sjálfa sig jafhframt ekki of alvarlega. Þetta eru ennfremur menn sem fara sínar eigin leiðir og þurfa því kannski oft að bíða lengi eftir viðurkenningu og sumir fá hana aldrei. Huey Lewis & The News tilheyra þessum hópi að mínu mati, sá sem ekki kemst í þægilegt gott skap af því að hlusta til dæmis á þessa plötu hfjómsveitarinnar er fýlupúki sem ekki er viðbjargandi. Samt eru Huey og félagar ekki að gera neitt nýtt, þeir gera bara það sem þeir eru bestir í, á einfaldan og léttan hátt. Þannig er tónlist þeirra langt því frá að vera flókin, engar íburðarmiklar útsetningar, engin hrúga af hljóðgerfl- um né krúsidúllum neins konar. í þessu liggur sjarminn, gamalt heiðar- legt rokk á léttum nótum, geislandi af gleði og stuði og pottþétt í alla staði. Þeir gera ekki betur sem hafa lært. -SþS- ABBA - ABBA Live Flórinn mokaður Eftir nokkurra ára þögn ræskir sænski risinn í poppheiminum, ABBA, sig óvænt og hljómleikaplata er send á markaðinn, sumum sjálfeagt til óblandinnar ánægju. Aðrir sem ekki þoldu sænsku risana á mektardögum þeirra verða sjálfeagt undrandi. Eftir að Abba hætti hefúr gengi þeirra fjögurra einstaklinga, Anni- Frid, Agnetha, Bjöm og Benny, ekki verið neitt í líkingu við ABBA-ævin- týrið. Stúlkumar hafa sent frá sér nokkrar plötur sem að visu hafa ekki verið alslæmar en langt frá því að vera minnisverðar. Bjöm og Benny hafa farið sér hægar. Eftir þá liggur þó ágæt tónlist við söngleikinn Chess sem sýndur er við mikla aðsókn í Lon- don þess dagana. Tilgangurinn með að senda ABBA Live nú eftir nokkurra ára þögn er óljós. Ékkert hefúr frést um endur- komu hljómsveitarinnar svo ætla má að peningasjónarmið hafi ráðið ferð- inni. Platan inniheldur ellefu af þekktustu lögum ABBA og em upp- tökumar frá þrennum tónleikum, einum í Ástralíu, öðrum á Wembley og þriðji skammturinn er úr sjón- varpsþætti er ber heitið Dick Cavett Meets ABBA. Þegar hlustað er á þessi lög, sem svo sannnarlega iljuðu mörgum mannin- um, er ekki laust við að aldurinn segi til sín. Lögin vom góð afþreying á sín- um tíma en ekki mikið meira. Svo hefur það kannski áhrif að tónlist ABBA var svo mikið spiluð að maður var eiginlega alveg búinn að fá nóg af lögum þessum. Hefði hljómsveitin sýnt einhver önnur tilþrif á hljóm- leikaplötu þessari en á upprunalegu útgáfimum hefði maður kannski hugs- að öðmvísi, en hér er um að ræða sömu útsetningar. Eina tilbreytingin er klappið. Aftur á móti er ég viss um að það em margir sem sakna ABBA úr tón- listarheiminum og fyrir þá er ABBA Live kjörgripur, því þama em öll lög- in, Waterloo, Dancing Queen, Take A Change On Me, Femando og Super Trouper, svo einhver séu nefiid. ABBA Live er minjagripur um fræg- ustu hljómsveit er Norðurlönd hafa átt, hljómsveit sem var um tíma helsta útflutningsvara Svíþjóðar FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1986. Langjiráð plata frá Paul Young er væntanleg á næs- tunni, lítil plata er þegar komin út með laginu Wond- erland.. . Allrahanda samvinna ólíklegustu eín- staklinga og hljómsveita er nú m jög i tisku og það nýj- asta úr þeirri deildinni er væntanlegt samstarf Pet Shop Boys og Dusty „gömlu''Spríngfield!.,. Þungarokkarar ætla að taka næsta ár með trukki og dýfu, þegar í ársbyrjun munu koma út plötur með Deep Purple og Mötley Crue og í kjölfarið koma plötur frá Def Leppard, Scorpions, Whit- esnake og Kiss.. . Sammy Hagar, söngvari Van Halen, hefur ekkí lagt sólóferil sinn á hilluna þrátt fyrir að hann sé genginn til liðs við þá Van Halen bræóur, hann er þegar farinn að leggja drög að næstu sólóplötu og til að stjórna upptökum og sjá um bassaleík hefur Sammy fengið Eddie Van Halen... Ekki erbúist viðaðVan Hafen sendi frá sér nýja plötu fyrr en 1988... For- eigner eru að hugsa sér til hreyfings og má búast við plötu frá þeim fyrri hluta næsta árs,.. llppboð á r ýmsu dóti tilheyrandi fræg- um poppurum eru vinsæl og þann 27. október næstkom- andi verður haldið slikt uppboð í New York þar sem á boðstóium verður meðal annars sokkapar sem Don Johnson á, baðföt Chrístíe Brinkley (konu Billy Joel), smókingföt árituð af David Bowie og sokkabuxur í eigu David Lee Roth!... Sól- kónyurinn, James Browne, sendírfrá sér nýja plötu á næstunní og meöal gesta sem fram koma á plötunni eru Stevie Ray Vaughan, blúsgítaristi með meiru, og Steve Winwood... Hljóm- plötufyrirtækið Stiff Rec- ords helur verið selt og er kaupandinn fyrirtæki að nafni Cashmere og það fyrir- tæki rekur Jill Sinclair sem jafnfraiíit er stjórnarmaður i hljómplötufyrirtækinu m. . .búiðibili. -SþS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.