Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Side 6
28
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
Atburðarásin i Tosca lýsir þvi hvernig miklum ástríðum reiðir af and-
spænis hættulegu stjórnmálaástandi.
Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús
Öperan Tosca fmmsýnd
Óperan Tosca, eitt af meistara-
verkum ítalska óperutónskáldsins
Puccini, verður frumsýnd í Þjóð-
leikhúsinu laugardaginn 11.
október næstkomandi undir leik-
stjórn Paul Ross. Hljómsveitar-
stjóri er Maurizio Barbacini,
hönnuður leikmyndar og búninga
Gunnar Bjarnason, ljósahönnuður
Kristinn Daníelsson og aðstoðar-
leikstjóri Sigríður Þorvaldsdóttir.
Kristján Jóhannsson, sem und-
anfarið hefur sungið aðalhlutverk
í La Boheme í New York city Op-
era og hlotið frábærar móttökur,
fer nú með hlutverk listmálarans
Mario Cavaradossi. Elísabet F. Ei-
ríksdóttir, sem sló í gegn í Grímu-
dansleik í fyrra, syngur og leikur
ástkonu Cavaradossi, óperusöng-
konuna Toscu, og bandaríski
óperusöngvarinn Malcolm Arnold
fer með hlutverk Scarpia lögreglu-
stjóra. Þau Elín Ósk Óskarsdóttir
og Robert W. Becker munu síðan
einnig fara með hlutverk Toscu og
Scarpia. í helstu hlutverkum öðr-
um eru Viðar Gunnarsson (Angel-
otti), Sigurður Bjömsson (Spo-
letta), Sigurður Bragason
(Sciarrone), Guðjón Óskarsson
(djákninn), Stefán Arngrímsson
(fangavörður) og Ásdís Krist-
mundsdóttir (smaladrengur).
óperan Tosca var fyrst frumsýnd
í Róm árið 1900 og varð strax
óhemju vinsæl. Puccini fékk hug-
myndina að óperunni þegar hann
sá spennuleikritið La Tosca eftir
Sardou með Söru Bernhardt í aðal-
hlutverkinu. Hann fékk síðan Illica
og Giacosa til að semja óperutex-
tann en þessi svokallaða „heilaga
þrenning" stóð einnig saman að
óperunum Manon Lescaut, La Bo-
héme og Madame Butterfly.
Atburðarásin gerist í Rómaborg
og lýsir því hvernig miklum ástríð-
um reiðir af andspænis hættulegu
stjórnmálaástandi. Af frægum ar-
íum í Tosca má nefna Recondita
armona, Non la sospiri la nostra
casetta, Te deum, Gia mi dicon
venal, Vissi darte, vissi damore, E
luceba le stelle og 0 dolce mani
mansuete e pure.
Um 150 manns taka þátt í sýn-
ingu Þjóðleikhússins á Tosca með
einsöngvurum, Þjóðleikhúskórn-
um, drengjakór, aukaleikurum og
70 manna sinfóníuhljómsveit undir
stjórn Barbacini. Konsertmeistari
er Sean Bradley.
Þjóðleikhúsið sýndi óperuna
Tosca áður haustið 1957 þar sem
Stefán Islandi, Guðrún Á. Símonar
og Guðmundur Jónsson fóru með
aðalhlutverkin. Sýningaíjöldi
verður takmarkaður vegna anna
Kristjáns Jóhannssonar óperu-
söngvara.
Regnboginn
I tilefni af fundi Reagansog Gor-
batsjovs hefur verið ákveðið að
halda íslenska kvikmyndahátíð í
Regnboganum fram yfir helgi.
Verða þar sýndar allar helstu kvik-
myndir sem gerðar hafa verið á
undanförnum árum. Verða allar
myndirnar með ensku tali eða en-
skum skýringartexta. Forvitnileg-
ast fyrir okkur íslendinga er
sjálfsagt að sjá amerísku útgáfuna
af Hrafninn flýgur sem mun hafa
verið breytt að einhverju leyti fyrir
amerískan markað. Aðalmynd
Regnbogans er samt snilldarverk
Woody Allen, Hanna og systurnar
(Hannah and her Sisters) sem lætur
engan ósnortinn.
Bíóhöllin
Airplane er enn mörgum í fersku
minni sem hana sáu. Þeir sem að
henni stóðu eru þeir hinir sömu
sem standa á bak við í svaka
klemmu (Ruthless People). Myndin
er gamanmynd sem fjallar fyrst og
fremst um hræðilegt fólk. Aðalleik-
arar eru söngkonan fræga, Bette
Midler, og smávaxni grínleikarinn
Danny DeVito. Þá má nefna úr-
valsmynd Martins Scorsese, Eftir
miðnætti (After Hours), sem gerist
á einum sólarhring í Soho hverfinu
í New York, og Svarta pottinn sem
er ný teiknimynd frá Walt Disney.
Stjörnubíó
Stjömubíó sýnir nýjustu kvik-
mynd Blakes Edwards, Algjört
klúður (A Fine Mess) og er hún
farsi í anda Laurels og Hardys
myndanna frá ámm þöglu mynd-
anna. Edwards á að baki margar
frábærar gamanmyndir, þar á með-
al myndimar um Bleika pardusinn.
Þessi mynd fjallar um tvo vini sem
komast við illan leik frá hverju sem
þeir takast á hendur. Aðalhlut-
verkin leika Ted Danson sem við
þekkjum úr hinum vinsælu sjón-
varpsþáttum, Staupasteini. Leikur
hann hér aukaleikara í kvikmynd-
um er hefur næmt auga fyrir fall-
egu kvenfólki. Vin hans leikur
Howie Mandell.
Bíóhúsið
Mona Lisa fjallar um smákrimma
sem Bob Hoskins leikur. Hann er
nýsloppinn úr fangelsi þegar mynd-
in hefst. Krimminn er hið besta
skinn inni við beinið. Hann fellur
fyrir gleðikonu einni og ákveður
að vernda hana gegn glæpamönn-
um sem hún umgengst. Leikstjóri
Mona Lisa er Neil Jordan sem
vakti athygli á síðasta ári fyrir
Company of Wolves. Hefur Mona
Lisa yfirleitt fengið mjög jákvæðar
viðtökur.
Austurbæjarbíó
Hin dáða mynd Stevens Spiel-
bergs, Purpuraliturinn (The Color
Purple), fékk í vetur ellefu tilnefn-
ingar til óskarsverðlauna en engin
verðlaun. Hefur mikið verið rætt
um að það sé vegna þess að vissrar
öfundar gæti í garð Stevens Spiel-
bergs sem getur gert ævintýra-
myndir, sem heilla unga sem gamla,
og svo gæðakvikmyndir á borð við
Purpuralitinn sem fjallar um líf
svertingja og baráttu þeirra fyrir
betri hag. Aðalhlutverkið leikur
Whoopi Goldberg, leikkona sem
hefur strögglast við að lifa á list
Tónabíó
Fórnin
Fyrir kvikmyndaunnendur boða
fundur Reagans og Gorbatsjovs
það að sýnd verður fram yfir helgi
nýjasta mynd rússneska leikstjór-
ans Andrei Tarkovskís, Fórnin.
Hún var frumsýnd á kvikmyndahá-
tíðinni í Cannes við mjög góðar
viðtökur sýningargesta. Það hefur
mikið verið fjallað um myndina
hérlendis, aðallega vegna þess að
íslensk leikkona, Guðrún Gísla-
dóttir, fer með aðalhlutverkið.
Fórnin gerist á afmælisdegi leik-
ara sem er búinn að draga sig í hlé
frá opinberu lífi og helgar sig
einkalífinu ásamt konu og syni.
Þegar afmælisveislan stendur sem
hæst kemur tilkynning um það í
sjónvarpi að alvarlegt kjarnorku-
slys hafi orðið og muni það valda
heimsendi. Örvænting grípur um
sig meðal afmælisgesta og í fyrsta
skipti á æfinni biður leikarinn til
Guðs og býðst að fóma öllu sem
honum er kærast megi afstýra slys-
inu. Einn afmælisgestanna kemur
þá til hans og segir að það megi
takast með því að hann fari til
fundar við Maríu frá íslandi. Hún
búi yfir krafti sem afstýrt gæti slys-
inu..
Því miður verður Fórnin aðeins
sýnd í fáa daga en vonir standa til
að hægt verði að sýna hana seinna.
Vonandi að það verði sem fyrst.
Kvikmyndahús
sinni í mörg ár en hefur nú haft
erindi sem erfiði.
Háskólabíó
Þeir bestu (Top Gun) er vinsæl-
asta kvikmyndin vestan hafs um
þessar mundir og virðist sem vin-
sældir hennar ætli að verða miklar
hérlendis. Myndin fjallar um orr-
ustuflugmenn í blíðu og stríðu og
þrotlausar æfingar þeirra til að
verða frábærir flugmenn. Það sem
gerir þessa mynd sérstaka eru af-
bragðs flugsenur sem slá út allt sem
áður hefur verið gert á því sviði.
Þetta er skemmtileg kvikmynd sem
höfðar mikið til þjóðerniskenndar
Bandaríkj amanna.
Laugarásbíó
Laugarásbíó sýnir spennumynd-
ina Gísl í Dallas sem fjallar um
leiðangur sem sendur er til Afgan-
istan til að fá sýni af eiturgasi sem
Rússar framleiða. Það færist alvara
í leikinn þegar sýninu er stolið
þegar til Bandaríkjanna kemur. Þá
má nefna nýja ævintýramynd með
hryllingsívafi, Leppana (Critters).
Myndin gerist úti í heimi. Öllum
illvígustu dýrum alheimsins er
safnað saman á eina plánetu.
Nokkur þeirra sleppa og taka
stefnuna beint á jörðina...
-HK
Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina —
Sýningar
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga og
sunnudaga kl. 13.30-16.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Opnunartími safnsins er á þriðjudögum,
Fimmtudögum, laugardögum og sunnudög-
um frá kl. 14-17.
Ásmundarsalur
við Freyjugötu
Á morgun verður opnuð sýning á frétta-
myndum, originalblöðum úr vikuritinu
The Illustrated London News sem enn
kemur út á Englandi. Myndir þessar eru
úr blöðum frá árunum 1860-1866 og hefur
sýningin hlotið nafnið „Af spjöldum sög-
unnar". Sýningin stendur til sunnudags-
kvölds 19. október og er opin um helgar
kl. 14-22.30 en á virkum dögum frá kl.
18-22.30. Myndirnar eru úr safni Friðriks
Ásmundssonar Brekkan. Nokkrar mynd-
imar eru frá íslandi og hafa aldrei sést
áður. Þá eru og myndir af styttum Thor-
valdsens og listgagnrýni um þær.
Galleri Borg,
Pósthússtræti.
Erla Þórarinsdóttir sýnir 11 olíumálverk
og 10-15 teikningar, unnar með krít og
blýanti. Sýningin stendur til 14. október
og er opin kl. 10-18 virka daga og kl. 14-18
um helgar.
Gallerí íslensk list,
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir sýning Septem-hópsins.
Gallerí Langbrók-Textíll,
Bókhlöðustíg 2
Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18 og
laugardaga kl. 12-16.
Kjarvalsstaðir,
Miklatúni
Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum
Eyjólfs J. Eyfells og sýningin Islensk graf-
ík ’86.
Mokkakaffi,
Skólavörðustíg
Árni Elfarsýnir jassmyndirá Mokkakaffi.
Nýlistasafnið,
Vatnsstíg
Félag Nýlistasafnsins heldur sýningu nú
um helgina á verkum sem eru í eigu safns-
ins eða hafa verið sýnd þar á undanförnum
árum. Sýningin er sérstaklega sett upp til
þess að hinir fjölmörgu erlendu gestir, sem
hér eru staddir, fái að kynnast þeirri
grósku sem verið hefur í íslenskri mynd-
list síðari ár. Sýningin stendur frá fimmtu-
degi til mánudags og er opin frá kl. 16-20
virka daga og kl. 14-20 um helgar og er
öllum velkomið að skoða hana.
Norræna húsið
v/Hringbraut
Sýning á verkum norska málarans Ed-
vards Munch. Hún stendur til 2. nóvember
og er opin daglega kl. 14-19.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi
Á morgun opnar Pétur Halldórsson sýn-
ingu á málverkum. Sýningin verður opin
virka daga kl. 16-20 og um helgar frá
14-22. Sýningin stendur til 26. október.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið aila daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá kl.
14-16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 14-18.
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Gallerí Gangskör
Þar stendur yfir sýning á pastelmyndum
og teikningum Sigrid Valtingojer og
keramik Kristínar ísleifsdóttur. Sýning
þeirra stendur til 23. október.
Slunkaríki
ísafirði
Nú stendur yfir í Slunkaríki á Isafirði
sýning Rögnu Hermannsdóttur. Á sýning-
unni eru einkum tréristur og steinþrykks-
myndir og eru þær allar unnar á síðustu
tveimur árum. Sýningin stendur til 2. okt-
óber.