Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986.
55
Góðu málefnin og gleðileg jól
Eins og stendur í grunnskólalög-
unum er íslenska þjóðfélagið í
stöðugri þróun og sem dæmi um
það þambaði ég gosdrykk um dag-
inn úr íslenskri dós en hingað til
hefur maður orðið að láta sér
nægja að horfa á fólk í útlöndum
gera þetta í sjónvarpinu sem er
ekki nálægt því eins gaman og að
þamba sjálfur ef maður er svo hepp-
inn að skera sig ekki í framan á
dollunni.
Þessar dollur eru nefnilega dálít-
ið hættulegar og þurfa óvanir þess
vegna að taka á þeim nokkrar gen-
eralprufur áður en hægt er að
drekka úr þeim áhyggjulaus. Vil
ég þess vegna hér með ráðleggja
því fólki sem ætlar að hafa dolluöl
með jólasteikinni að fara að æfa
sig svo að það endi ekki í biðröð-
inni uppi á slysadeild en þangað
fara allir sem hafa gleypt bein
klukkan hálfsjö á aðfangadag og
ekki tekist að pota því neðar en í
vélindað á sér.
Annað einkenni á íslensku nú-
tímaþjóðfélagi er beina útsending-
in svokallaða sem var fólgin í því
fyrst í stað að fengið var fólk úti í
bæ sem var vant því að skjálfa á
beinunum og það látið gera það
fyrir framan alþjóð sem hló sig
máttlausa einu sinni i viku og
heimtaði að fá að vita hvað væri
borgað fyrir svona lagað og hvort
ekki mætti eyða peningunum í eitt-
hvað þarfara, til að mynda fegurð-
arsamkeppni.
Einnig voru enskir fótboltamenn
látnir hlaupa upp vinstri kantinn
beint einu sinni í viku og til þess
að ekkert færi á milli mála var
Bjarni látinn lýsa því yfir nokkrum
sinnum á meðan á útsendingunni
stóð að þarna hlypu Englendingar
upp vinstri kantinn og þá vissum
við það.
En vegna þess að þjóðfélagið er
í stöðugri þróun, eins og stendur í
grunnskólalögunum, eru áður-
nefndar beinar útsendingar ekki
látnar nægja, nú er farið að senda-
alla skapaða hluti út beint og geta
menn ef svo ber undir orðið millj-
ónamæringar í beinni útsendingu
á laugardögum ef þeir hafa verið
svo forsjálir að kaupa happanúm-
erin sín úti í sjoppu sem tengd er
við móðurtölvu íþróttahreyfingar-
innar en hún er með þessu móti að
afla fjár til að geta tapað fyrir fleiri
þjóðum í fleiri greinum og þar að
auki oftar.
Og nú bíðum við bara eftir því
að Þorsteinn og Steingrímur fari
að stjóma þjóðinni í beinni útsend-
ingu og steríó og má þá búast við
að hlutirnir snúist við sem ég
minntist á í upphafi greinarinnar,
menn fari sem sagt að skjálfa hérna
megin sjónvarps.
Til styrktar góðu málefni
Þessa dagana er póstkassinn
minn fullur af góðum málefnum á
hverjum morgni og er ég vinsam-
legast beðinn að styrkja þau með
kaupum á happdrættismiðum því
að kannski verði ég einhvern tím-
ann svo heppinn að týnast á fjöllum
og þá komi hjálparsveitir og finni
mig eins og skot eða að minnsta
kosti mjög fljótlega öllum til hug-
arhægðar.
Aðrir hóta því að breyta til að
þessu sinni og draga aðeins úr seld-
um miðum þakka þér fyrir eins og
það skipti okkur einhverju máli
sem fáum ekki einu sinni vinning
þegar dregið er úr þeim óseldu og
erum vissir um það að ef við keypt-
um alla miðana yrði drætti einfald-
lega frestað.
Mér er sagt að á þessu ári hafi
um það bil þrjú þúsund aðilar feng-
ið leyfi til að halda skyndihapp-
drætti með borgardómara til að sjá
Háaloft
Benedikt Axelsson
um að allt fari vel fram eins og í
sjónvarpinu og eru vinningar fjöl-
breyttir eða allt frá fjórtán bílum
í happdrætti áfengisþambara og
upp í sjö komma fimm í stafsetn-
ingu hjá niunda bekk grunnskóla
norður í landi.
Blessuð jólin
Og í gluggum heimilanna stunda
börnin happdrættin sin þessa dag-
ana og fá svo mikið ógeð á kartöfl-
um að það er ekki víst að
landbúnaðurinn bíði þess nokkurn
tímann bætur.
Óskalistarnir þeirra lengjast dag
frá degi og það eina sem þau vilja
ekki í jólagjöf er örbylgjuofn og
Daihatsu Charade og kerti og spil.
Og nú getum við eytt peningun-
um okkar til klukkan tíu í kvöld
og ellefu á Þorláksmessu guð blessi
kaupmannastéttina eins og hún
leggur sig og kaupfélögin og útibú
þeirra um allt land.
Ég óska ykkur gleðilegra jóla.
Kveðja
Ben. Ax.
Finnurðu
átta breytingar?
23
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á
neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða
þeir breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt
að finna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast
um að leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að
lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru
og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dag-
ar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum
og veitum þrenn verðlaun: Útvarpsklukku frá Sjónvarps-
búðinni h/f (verðmæti kr. 2.290,-), vasadiskó frá Sjón-
varpsbúðinni h/f (verðmæti kr. 2.240,-) og kassettuhirslu
(verðmæti kr. 650,-).
I þriðja helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar- 23“, c/o DV, pósthólf 5380,125 Reykja-
vík.
Verðlaunahafar reyndust vera: Matthías Ólafsson, Hæð-
argarði 40, 108 Reykjavík (útvarpsklukka kr. 2.290,-),
Sverrir NorðQörð, Hrefnugötu 8, 105 Reykjavík (vasa-
diskó kr. 2.240,-), Jónas R. Jónsson, Eskihlíð 22, 105
Reykj avík (kassettuhirsla).
Vinningarnir verða sendir heim.
IMAFN .......
HEIMILISFANG
PÓSTNÚMER ..
tDOttSHC?
HiSH (itflN
comfSHc?
HiGH hSQN