Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Blaðsíða 8
60 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986. allur Dalí brátt „Hvað vill meistarinn ræða um?“ „Meistarinn vill ræða um nauðg- un Evrópu."1 Leiðin til meistarans liggur í gegnum röð dimmra herbergja. í herbergi hans er hátt til lofts og á veggjunum eru málverkaskreyt- ingar sem hefðu þótt mjög við hæfi efnaðra góðborgara í litla katal- ónska bænum Figueras en þetta hús, sem er frá miðöldum, var end- urbyggt fyrir um öld. Þar er hins vegar ekkert sem minnir á fyrri tíð meistarans og þar erengin mynd afkonu hans, Gala. 1 Evrópa var fonísk prinsessa scm Seifur er hann hafði breytt sér í hvítt naut synti með til Krítar. Þar varð hún móð- ir Mínosar, Radamantusar og Sarp«' dons. Breyttur maður f rauninni bendir fátt til þess að gamli maðurinn í silkisloppnum sé Salvador Dalí. Hann situr í hæginda- stól og virðist sjúkur og áhugalítill. Yfirvaraskeggið fræga, sem hann var svo vanur að vaxbera og límvæta á hverju kvöldi svo það vísaði á augu hans eins og svartir hnífar allan dag- inn, er nú svipur hjá sjón. Það hefur verið klippt og er bara nokkur rytju- leg hár. Höndin. aem ran.n eitt 6inn með ótrúlegri leikni yfir blöð og striga, skelfur er hann heilsar. Augun sem lýstu forðum áhuga og forvitni eru dauf. Sá sem minnist daganna er Salva- dor Dalí sat tignarlegur við borð í Maximsveitingahúsinu eða S. Regis- gistihúsinu með gullsleginn staf, sem hann sagði að hefði verið í eigu Söru Bemhardt, kemst samstundis að þeirri niðurstöðu að flest sé í heimin- um hverfult. Dalí borðar ekki lengur kavíar og drekkur kampavín eins og hann gerði þá; reyndar getur hann ekki lengur kyngt. Fæðuna tekur hann til sín um slöngu sem liggur upp i aðra nösina og stundum svelgist honum á. Þá gerir rennslið honum erfitt um mál. Vinur, félagi og túlkur Antonio Pitxot stendur við hlið meistarans. Hann skilur að minnsta kosti sjö af hverjum tíu orðum sem hann segir. Fjölskylda Dalís og fjöl- skylda Pitxot hafa þekkst í tvær kynslóðir. Ein af fyrstu myndum Dalí er af foður Antonios í náttfötum. Dalí var sautján ára er hann gerði hana. Antonio er framkvæmdastjóri Dalisafnsins sem er í næsta nágrenni við hús meistarans. Um fimmleytið á hverjum degi kemur hann til að svara spumingum Dalis um ástandið í heiminum og til að taka niður bréf. „Meistarinn vill fá að vita hvað þú vilt tala um.“ „Ég vil tala um nauðgun Evrópu.“ Það bregður fyrir ánægjuglampa í augum meistarans aldna. Torskilinn venjulegu fólki Dalí talar um hríð og hann talar hratt og það er erfitt að skilja hann. Einu orðin sem skiljast - og það er svona tíunda hvert - eru á borð við „la methode paranoiaque-critique og la gare de Perpignon". Allt í einu þagnar Dalí til að ná andanum. Það er ljóst hvað hann er að fara þegar Antonio hefur túlkað. Það er nauðsynlegt að hafa nauðg- un Evrópu í huga til þess að skilja það sem er að gerast á okkar tímum; reyndar alla söguna. Titían vissi það, Rubens vissi það og Velasquez vissi það. Nauðgun Evrópu er táknræn fyrir aðskilnað meginlandanna; klofning þess sem var eitt sinn ein jörð; klofning austurs og vesturs. Sagði ekki Heródótus að upphaf styrjaldanna milli austurs og vesturs væri nauðgun Evrópu? Hann hafði líka rétt fyrir sér. Meginlöndin eru að fjarlægjast eins og jarðfræðing- amir hafa sýnt fram á meðjandreks- kenningunni. Aðeins Spánn er óhagganlegur í miðjunni af því hann er ekkert nema granít. „Það var of- sóknar-gagnrýnisaðferðin sem leiddi til skilnings á sannleikanum," segir Dalí. „Það er sýn hugsjónamannsins en ekki stærðfræðingsins. Vísinda- mennimir em aftur á móti búnir að staðfesta niðurstöðuna.“ Hann kastar á ný mæðinni en seg- ir svo: „Hve oft hefiir fólk ekki hæðst að mér þegar ég hef haldið því fram að miðpunktur heimsins sé jám- brautarstöðin í Perpignan? Nú hefur stærðfræðingurinn mikli, René Thorn, komið til Figueras og sagt mér að ég hafi haft rétt fyrir mér því þrýstilínur misgengislaganna - þær sem em að kljúfa heiminn liggi beint undir Perpignan.“ Táknræn framsetning Þessi ummæli meistarans eru ekki þau fyrstu sem margir myndu telja dæmigerð fyrir það ríkulega ímynd- unarafl sem hefur stundum fært hann yfir landamærin sem venjulegt fólk telur skilja að raunvemleikann og það sem er handan hans. Meistarinn mikli hefur hins vegar svo oft verið sakaður um að gefa sig taumlausu ímyndunarafli á vald að það er ekki nema fyrir þá sem þekkja hann vel að segja hvort hann heldur sig við táknræna framsetningu hverju sinni eða fer út fyrir áður- nefnd landamerki. í fyrra skrifaði Dalí textann sem var kynning á málverkasýningu An- tonios í Barcelona. Hann er um hálf önnur síða en var þrjá mánuði að verða til á katalónsku. Hann fjallaði allur um sigur Konstantíns yfir Max- entíusi, baráttu austurs og vesturs og aðskilnað meginlandanna. Sýn- ingin var opnuð í apríl og nokkmm dögum síðar kom einkaritari meist- arans, María Teresa, með morgun- blöðin tii hans. Dalí leit yfir fyrirsagnirnar og augun hans lýstu ánægju. Þarna stóð það, svart á hvítu: Reagan og Kaddafí. Konstant- ín og Maxentíus. Vestur og austur. La methode paranoiaque- critique. Fljótt þreyttur Litli maðurinn í sloppnum er orð- inn þreyttur. Hann á líka svo skammt eftir ólifað. Dalí hefur verið leikari alla ævi. Stundum hefur hann verið í hlut- verki snillingsins en stundum í hlutverki trúðsins. Nú er hins vegar orðin breyting á og hún lýsir sér ekki aðeins í fram- komu hans heldur einnig í umhverf- inu. Herbergi meistarans í Figueras lík- ist helst anddyri í höll eins og á Helsingjaeyri eða í Thebes. Segja má að það sé ekki með öllu ólíkt „tvöföldu" myndunum hans þótt erf- itt sé að lýsa því. Þannig minnir það á mynd eftir hann sem við fyrstu sýn virðist vera af austurlenskum þræla- markaði þar sem tveir viðskiptavin- anna standa undir bogadregnum glugga; en þegar betur er að gáð er glugginn orðinn að marmaraenni og viðskiptavinimir að augum. Allt í einu er gamli maðurinn orð- inn að spánskum aðalsmanni; hann gæti verið málverk eftir Zurbarán. Stoltið er mikið og það örlar á brjál- æði í yfirbragðinu, en brjálæði hefúr alltaf komið fram í hæfilega mældum skömmtum i fari Dalí. Reyndar var hann sjálfur vanur að segja: „Eini munurinn á mér og brjálæðingi er sá að ég er ekki brjálaður." Aðalsmaðurinn ekki uppgerð Aðalsmaðurinn sem braust allt í einu fram hjá meistaranum var ekki uppgerð. 1982 gerði Juan Carlos kon- ungur Dalí að Marqués de Dali de Púbol. Ekkert hefur veitt honum meiri ánægju en að þiggja mark- greifatignina. Allt frá bamæsku hefur Dalí til- einkað sér konunglega siði. Hann var mikið dekraður því foreldrar hans höfðu fyllst sektarkennd er son- ur, sem þau höfðu eignast fyrr, lést. Hann hét líka Salvador. Salvador Dalí fór stundum til frænda Antonios, Pepitos, í loðkápu og með kórónu. Honum var tekið eins og konungbornum manni. „Þú sýnir okkur mikinn heiður, hátign.“ Þá sneri Salvador II. sér að systur sinni, prinsessunni, og sagði: „Við megum ekki láta það vitnast hver við erum í raun og veru." Hann hefúr aldrei gleymt loðkáp- unni og kórónunni. Það er því ekki að undra þótt Dalí endurspegli nú á síðustu dögum sínum Filippus II. Spánarkonung sem var uppi fyrir fjórum öldum og stjórnaði þá mesta veldi í heimi er hann var að enda æviskeið sitt. Filippus II. lauk lífi sínu í herbergi í klaustrinu við Esc- oralhöll eftir að hafa sagt skilið við pomp og pragt hirðlífsins. Konungur gat út um lítinn glugga séð inn í hallarkirkjuna. Dalí á líka sinn glugga. Það em leynidyr á garð- veggnum og út um þær getur hann séð Dalísafnið. Hann stofnsetti það fyrir tólf ámm í rústum gamla borg- arleikhússins í Figueras en það hafði orðið eldi að bráð í spönsku borgara- styrjöldinni. Gala og Dalí Dalí var kvæntur Gala og það var trú þeirra að örlögin hefðu ætlað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.