Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Síða 15
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986.
71
Jól fyrir austan og vestan
Vestræn jól eru farin að setja mark
sitt á jólahald Austur-Þjóðverja.
Auglýsingamar í vestur-þýska sjón-
varpinu færa glansmyndir af jólun-
um inn á yfirlætislausari austurþýsk
heimili. Og þó búðir í Austur-Þýska-
landi séu skreyttar og ljósum prýdd-
ar, þá kemst úrvalið hjá þeim ekki í
hálfkvisti við dásemdimar sem boðið
er upp á vestan megin.
Erick Honnecker, leiðtogi Austur-
Þýskalands, gerir sér grein fyrir að-
dráttarafli því sem þessi vestræna
„paradís" kann að hafa og hefur til-
kynnt um nýja áætlun til að brúa
bilið milli óska neytenda og vöru-
framboðs í landinu, sérstaklega hvað
varðar fatnað. Efnhagsáætlanir fyrir
tímabilið 1986 til 1990 sýna að
Honnecker vildi frekar draga úr fjár-
festingum í iðnaði heldur en fresta
þessum umbótum til handa neytend-
um.
Jólin eru sá tími ársins sem bilið á
milli vöruframboðs í austri og vestri
verður hvað mest áberandi. A óska-
lista barnanna fyrir jólin er að finna
hluti sem bömin hafa séð í vestur-
þýska sjónvarpinu en eru með öllu
ófáanlegir í Austur-Þýskalandi.
„Ég gerði ráð fyrir að foreldrar
vestur frá ættu líka í vandræðum
þegar þeir hafa ekki efhi á öllum
þessum dýru gjöfum en það gerir það
ekki auðveldara fyrir okkur að út-
skýra fyrir börnunum okkar að
vörubílinn sá arna eða dúkkan sé
einfaldlega ekki til í landinu," segir
örg austurþýsk móðir. „Þetta er sá
tíminn sem ég get alveg hugsað mér
að vera án þessa „glugga í vestur“,
bætir hún við og kinkar kolli í áttina
að sjónvarpinu.
En jól í Austur-Þýskalandi em svo
sannarlega engin sultarhátíð, með
tómum búðarhillum. Búðir þar em
kannski heldur fátæklegar í saman-
burði við það sem gerist í vestrænum
löndum en vöruúrvalið þar er stórum
meira en hjá nágrönnunum austan
megin en Pólverjar og Rússar renna
öfundaraugum til verslananna í
Austur-Þýskalandi.
Um jólin birtast appelsínur frá
Kúbu í búðarhillum, einnig er nægj-
anlegt framboð á banönum, hnetum
og alls kyns góðgæti, sem er sjaldséð
í öðmm austantjaldslöndum. I Aust-
ur-Þýskalandi eru heimsþekkt leik-
föng úr tré, en fólk kvartar yfir því
að úrvalið af þeim sé flutt út. Sá
ráðherra, sem ábyrgur er fyrir þess-
um málum, hefur neitað þessum
ásökunum og segir þær einfaldlega
ósannar. Hann segir einnig að þó
skortur sé á ýmsum vörutegundum
þá sé eftirspurninni í það heila tekið
fullnægt á flestum sviðum.
En það gæti reynst Honnecker erf-
itt verkefni að fullnægja á allra
næstu árum þeim kröfum sem aug-
lýsingar vesturþýska sjónvarpsins
skapa. -Reuter/VAJ
Þó vöruúrvalið i verslunum i Austur-Þýskalandi sé meira en í flestum öðrum austantjaldslöndum er það heldur
fátæklegt i samanburði vlð það sem gerist i vestrænum löndum.
OPIÐ TIL KL. 10
Opíð til kl. 10 alla daga, Þorláksmessu
til kl. 23.00
Smiðjuvegi 2, Kópavogi,
á horni Skemmuvegar.
Simar 79866, 79494.
LEITIN
ENDAR HJA ESSO
Á bensínstöðvum ESSO fást ódýrar en vandaðar
vörnr af ýmsu tagí, sem eru tílvaldar í jólapakkann.
Þar fæst Iíka jólapappír ásamt merkíspjöldum og
margs konar vamíngí tíl jólaundírbúníngs s.s. lítaðar
perur í útíseríuna, framlengíngarsnúrur og öryggí,
að ógleymdum reYkskynjurum og slökkvitækjum.
TVEIR KERTASTJAKAR
MEÐ KERTUM.
STEREÓ ÚTVARP
VONDUÐ SIMTÆKI
MEÐ TÓNVALI
VHS MYNDBAND
3 KLUKKUSTUNDIR
Komdu víð á næstu bensínstöð ESSO og gerðu góð kaup
Athugaðu að það er opíð bæðí á kvöldín og um helgar.