Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Síða 24
Tindátinn staöfasti Hér er ágætis dægradvöl til aö dunda viö milli máltíða yfir hátíðimar. Spilið byggir á ævintýri H.C. Andersen um staðfasta tindátann sem var einfættur en ætíð trúr sinni litlu dansmey. Þátttak- endur í spilinu geta verið 2-6. Hver þeirra þarf að verða sér úti um lítinn kubb, pening, sveskjustein eða eitthvað þvíumlíkt, sem hann færir svo eftir leið dátans hverju sinni. - Góða skeramtun! 2) Einu sinni var tindáti sem var ein- fættur af því hann var steyptur síðastur og ekki var nóg efni til að ljúka við aðra löppina. Engu að síður var hann jafn- staðfastur og bræður hans. Bíðið eina umferð. 3) í hallardyrunum stóð yndisleg dan- smær með slæðu um mittið. „Þetta er kona fyrir mig!“ hugsaði tindátinn. Þú færð aukakast. 8) Nú stökk trúður upp úr öskjunni og hrópaði: „Tindáti, hafðu augun hjá sjálfum þér!“ Bakka aftur á reit nr. 4. 9) Næsta morgun var tindátanum stillt út í glugga. Þá kom vindhviða sem feykti honum niður á götu. Flyst fram á reit nr. 11. 13) Hann stóð á haus með byssusting- inn fastan milli götuhellnanna. Enginn heyrði til hans er harm kallaði: „Hér er ég!“ Þú færð ekki að halda áfram fyrr en þú færð 1, 3 eða 5 upp á teninginn. 15) Nú fór að rigna eins og hellt væri úr fötu og vatnið rann eftir rennusteinin- um. Færðu þig fram á reit nr. 17. 18) „Hann á að fara í siglingu,“ hróp- uðu tveir götustrákar og ýttu honum úr vör á pappfrsbát. Tvö aukaköst. Hið fyrsta flytur þig áfram, hið síðara ffytur aðra leikmenn afturábak. 20) „Stopp, ert þú með vegabréf?“ spurði vatnsrottan undir rennusteins- ijölinni. Bíðið eina umferð. 23) Báturinn steyptist út í stóran skurð og hvolfdi. Stór fiskur gleypir tindátann í sömu mund. Þú dregur einn frá næsta kasti þínu. 25) En hvað það er dimmt héma. Tindátinn hugsar til litlu dansmeyjar- innar sem hann fær nú aldrei að sjá aftur. Þú færð ekki að fara áfram fyrr en þú færð 2, 4 eða 6 upp á teninginn. 29) Allt í einu tók fiskurinn kipp og varð loks kyrr. Áfram á reit nr. 32. 36) Fiskurinn er seldur á markaðs- torginu, eldabuska heimilisins kaupir hann. Allir færa sig fram um tvo reiti. 41) „Tindáti!" hrópaði eldabuskan þegar hún skar fiskinn upp og sá hver var inni í honum. Bíðið eina umferð. 44) Skyndilega kastaði lítill drengur tindátanum inn í ofrúnn og hann starði á litlu dansmeyna á meðan hann bráðn- aði. Bíðið þar til allir þátttakendur em komnir fram yfir reit nr. 39. 45) Dyr opnuðust og trekkurinn blés dansmeynni inn í ofrnnn til dátans. Far- ið fram á reit nr. 47. 50) Næsta morgun fann þjónustu- stúlkan hann sem lítið tinhjarta. Ekkert var eftir af dansmeynni nema slæðan sem var kolsvört af brnna. Sá sem fyrstur kemst í mark er sigur- vegarinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.