Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Side 1
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987.
19
Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahus - Myndbönd
o. fl.
Dreifar af dagsláttu
í Norræna húsinu og í félagsheimili Ölfusinga
Ef þú vilt dansa
Ártún,
sími 685090.
Gömlu dansarnir föstudagskvöld, þorra-
blót fyrir almenning á laugardagskvöld,
gömlu og nýju dansarnir. Hljómsveitin
Danssporið leikur bæði kvöldin.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Fats Domino og hljómsveit hans kemur
fram föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
Evrópa
v/Borgartún
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Glæsibær
við/ Álfheima, Reykjavik, sími 685660
Hljómsveitin Kýprus leikur fyrir dansi í
kvöld og annað kvöld. Ölver opið alla
daga vikunnar.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík,
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur fyir
gömlu dönsunum á sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Tiskusýning öll fimmtu-
dagskvöld.
Hótel Saga
v/Hagatorg, Reykjavík, simi 20221
Laddi og fjélagar. Skemmtidagskrá á
föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir
dansi bæði kvöldin. Dúett André Bach-
mann og Guðmundar Þ. Guðmundssonar
leikur á Mímisbar
Kreml
við/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
Opið föstudags-, Iaugardags- og sunnu-
dagskvöld.
Leikhúskjallarinn
v/Hverfisgötu, Reykjavík, sími 19636
Dansleikur á föstdags- og laugardags-
kvöld.
Sigtún
v/Suðurlandsbraut, Reykjavík, sími
685733
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Roxzy,
við Skúlagötu
Diskótek föstudagskvöld og laugardags-
kvöld.
Upp og niður,
Laugavegi 116, Reykjavik, simi 10312
Opið alla daga vikunnar, lifandi tónlist.
Þórskaffi,
Brautarholti 2, Reykjavík, simi 23333
Þórskabarett föstudags- og laugardags-
kvöld
AKUREYRI
H-100
Diskótek á öllum hæðum hússins föstu-
dags-, laugardags- og sunnudagskvöld.
Akureyringar munu mæta til liðs
við Reykvíkinga og Hvergerðinga
um helgina og flytja þeim Dreifar
af dagsláttu en dagskráin var sýnd
seint á nýliðnu ári við góðar undir-
tektir heimamanna. Fyrri sýningar
verða í Norræna húsinu á morgun,
laugardag, kl. 14.00 og kl. 17.00 en
á sunnudag flytja norðanmenn sig
í Hveragerði, í félagsheimili Ölfus-
inga, og sýna þar kl. 15.00.
Sýningin er sett saman í tilefni
70 ára afmælis Kristjáns frá Djúpa-
læk síðastliðið sumar. Titillinn er
Fats Domino, hin skæra rokk-
stjarna, mun helja upp raust sína
á íslandi að nýju í Broadway um
helgina og skemmta fólki í kvöld,
laugardagskvöld, og sunnudags-
kvöld. Að því búnu heldur hann
norður í land, nánar tiltekið til
Akureyrar þar sem hann skemmtir
í Sjallanum annan, þriðja og fjórða
febrúar. Er hann kemur til Reykja-
víkur leggur hann lykkju á leið
sína og skemmtir í Stapanum,
Keflavík, næstkomandi föstudags-
kvöld og lýkur síðan skemmtan
sinni í Broadway á laugardag og
sunnudag eftir rúma viku.
sóttur í heiti nýjustu bókar hans,
Dreifar af dagsláttu. Ævi og verk-
um hans eru gerð góð skil, sungin,
leikin og lesin ljóð. Til gamans má
geta þess að á sýningu þessari eru
allir með alpahúfur því eins og
kunnugt er gengur Kristján ævin-
lega með slíka húfu.
Til stóð að sýna Dreifar af dag-
sláttu um miðjan desember á
síðasta ári en vegna ófærðar varð
að fresta sýninguni. En nú, eins og
fyrr segir, gefst Sunnlendingum
kostur á að sjá þessa sýningu.
Fats Domino kom sem kunnugt
er til íslands í apríl í fyrra og sló
hér heldur betur í gegn. Uppselt
var á alla tónleika hans og komust
færri að en vildu. Haft er eftir
nokkrum mætum mönnum, sem
sóttu sýningu þessa, að betri
skemmtan væri varla hægt að fá.
Eftir þá tónleika lofaði Fats lands-
mönnum að koma til landsins að
nýju og við það stóð hann.
Fats Domino mun sumsé
skemmta hér á landi í rúma viku
ásamt hljómsveit sinni frá New
Orleans.
Kristján frá Djúpalæk meðal þeirra sem gera Dreifum af dagsláttu skil
fyrir sunnan.
Fats Domino mun skemmta hér á landi ásamt hljómsveit sinni frá New
Orleans i rúma viku.
Fats Dornino vermir
landanum að nýju
„Hvers vegna spuröi Karítas?"
í tengslum við sýninguna að
Hallveigarstöðum, Konur í list
kvenna. í tilefni 80 ára afmælis
Kvenréttindafélags íslands, verður
opinn ræðustóll á morgun, laugar-
dag, kl. 15.00 um efnið Hvers vegna
spurði Karítas? og mun hún sjálf,
það er að segja Karítas Gunnars-
dóttir hjá sjónvarpinu, verða
málshefjandi en auk hennar taka
til máls nokkrar þeirra stjórn-
málakvenna er hún spurði í sjón-
varpsþættinum í takt við tímann
nú fyrir skemmstu og eru allir vel-
komnir að hlusta á umræður
þessara kvenna og taka þátt ef vill.
Myndlistarsýningin stendur enn
yfir og lýkur henni sunnudaginn
8. febrúar. Hún er öðrum þræði
sölusýning og verður opin frá 14.00
til 22.00 um helgar en frá 16.00 til
20.00 virka daga.
Söngferill Andreas Schmidt hefur verið glæstur þrátt fyrir ungan aldur.
Ljóðatónleikar í Gamla bíói:
Stórsöngvarinn
Andreas
íslendingum gefst kostur á að sjá
og heyra í hinum heimsþekkta ba-
rítónsöngvara Andreas Schmidt frá
Vestur-Þýskalandi, er hann syngur
ljóðasöngva eftir Mozart, Beetho-
ven og Schumann við píanóundir-
leik Thomas Palm á mánudags-
kvöld klukkan 20.30. Það er mikill
viðburður að Andreas Schmidt
skuli syngja á íslandi, en hann er
nú svo eftirsóttur að óperuhús og
tónleikahús út um allan heim
keppast um að fá hann til að
syngja.
Andreas er aðeins 26 ára gamall
og hefur hlotið skjótan frama.
Hann hlaut fyrstu verðlaun í
tveimur stærstu söngvakeppnum
Þýskalands árið 1982. í framhaldi
Schmidt
af því var honum boðinn árs styrk-
ur hjá óperunni í Berlín og síðan
starfssamningur og hefur hann
komið fram í mörgum aðalhlut-
verkum þar. í desember síðastliðn-
um söng hann hlutverk Wollframs
í Tannháuser eftir Wagner og var
það einn stærsti söngsigur hans til
þessa.
Andreas Schmidt hefur áður
heimsótt ísland og er mikill aðdá-
andi lands og þóðar. Það má telja
til tíðinda að fyrsta sjónvarpspró-
gramm sem hann gerði var hjá
íslenska sjónvarpinu árið 1982.
Aðgöngumiðar kosta 400 krónur
og eru til sölu hjá ístóni við Freyju-
götu. Einnig hjá í íslensku ópe-
runni við innganginn.