Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Page 2
44
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1987.
Burt Reynolds
í vandræðum
með gæs
Burt Reynolds dvelur gjarnan á bú-
garði sínum á Flórída. Þar hefur
hann mikið umleikis og hefur m.a.
komið sér upp vísi að dýragarði.
Dýrahaldið hefur þó valdið honum
meiri vandræðum en efni stóðu til í
upphafí.
Einkum er það gæs nokkur sem er
erfið viðureignar og hefur hún verið
völd að þrotlausum málarekstri
síðustu þrjú ár. Gæsin á það til að
ráðast á gesti leikarans og bíta þá
til óbóta.
Það er bandaríski lögfræðingurinn
George Vogelsang sem hefur rekið
málin á hendur Reynolds. í síðasta
Burt Reynolds.
mánuði tapaði hann máli sem hann
höfðaði fyrir hönd Selmu Binderman.
Hún varð fyrir árás illfyglisins árið
1984 og kom stórslösuð frá þeim við-
skiptum. Þótt málið sé nú tapað vill
Binderman taka það upp aftur.
Vogelsang hefur og fengið annan
skjólstæðing sem varð fyrir árás
gæsarinnar. Það er Imogene Prater,
kona sem komin er á efri ár. Hún
segir að gæsin hafi ráðist á sig
skömmu eftir að Binderman varð
fyrir sömu reynslu. Vörn Reynolds
fyrir gæsina sína er því hvergi nærri
lokið þótt hann hafi unnið áfanga-
sigur í fyrsta málinu.
CIA foringi
rændur
William Colby, sem réð fyrir CIA á
árunum 1973 til 1976, varð nýverið
fyrir fólskulegri árás ræningja nærri
heimili sínu í Washington. Fólin
brutu gleraugu leyniþjónustumanns-
ins fyrrverandi og veittu honum
myndarlegt glóðarauga.
Tilgangurinn var að hafa af honum
fé en sá gamli var svo heppinn að
gleyma veskinu sínu heima. Hann
varð þó að sjá á eftir forláta úri þeg-
ar ræningjarnir drógu upp skamm-
byssu - mikið vopn - og hótuðu
lífláti.
Yamani
til Sviss
Yamani, fyrrum olímálaráðherra
Saudi-Arabíu, hefur sótt um að fá
fast aðsetur í skíðabænum Crans-
Montana í Sviss. Sheikh Ahmed Zaki
Yamani, eins og hann heitir fullu
nafni, var um árabil með valdamestu
Sheikh Ahmed Zaki Yamani.
mönnum í heiminum og hafði veru-
leg áhrif á stefnu helstu olíuríkja í
verðlagninu á olíu. Hann varð þó að
hrökklast frá völdum á síðasta ári
eftir að hafa lent upp á kant við
stjórnvöld í heimalandinu.
Katharine
Hepburn
mesta stjarnan
Katharime Hepburn er mesta stjarn-
an úr hrtpi kvenmanna sem nokkru
sinni heiur verið uppi. Þetta er nið-
urstaða skoðanakönnunar sem
bandaríska tímaritið People hefur
gert. Hepburn fékk 36 prósent at-
kvæða í könnuninni.
Af körlum, sem fengu atkvæði í
könnuninni, hafði Cary Grant naum-
an sigur með 18 prósent atkvæða.
Fast á hæla honum kom Clark Gable
með 16 prósent atkvæða.
Oliver Stone
nælir í
verðlaun
Platoon, kvikmyndin umtalaða um
hermennskubrögð Bandaríkja-
manna í Víetnam, átti góðu gengi
að fagna þegar Goldern Globe verð-
laununum var úthlutað í 44. sinn.
Oliver Stone fékk viðurkenningu
sem besti leikstjórinn og Tom Ber-
enger fyrir besta leik í aukahlut-
verki.
Bob Hoskins hlaut hins vegar við-
urkenninguna sem besti leikarinn í
aðalhlutverki fyrir leik sinn i Mónu
Lísu. Marlee Matlin fékk viðurkenn-
inguna sem besta leikkonan í
aðalhlutverki fyrir leik sinn í mynd-
inni Children and a Lesser God.
Mynd Woody Allen, Hanna og
systur hennar, hlaut viðurkenningu
sem besta leikna myndin.
Oliver Stone er kominn vel á veg
með undirbúning næstu myndar sem
hann kallar Wall Street. Tökur á
henni eiga að hefjast í apríl. Þetta
er saga um græðgi og spillingu. Hún
fjallar um ungan framagosa í við-
skiptalífinu. Hann á að vera óvandur
að meðulunum þrátt fyrir fágun á
yfirborðinu.
Oliver Stone.
er fjfölbreyttasta blaöiö
**L !
Manni sýnist ef til vill aö nú séu
ar alveg aö nást en svo á
stu stundu hleypur allt í bak-
ás. Ég væri ekki mennskur ef ég
yrði ekki pirraður þá,“ segir Guö-
laugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari meöal annars í Vikuviö-
talinu í þessari Viku. Hann segir
einnig: ,,Það var mikillífsreynsla
aö fara í forsetaframboðiö og þrátt
fyrir allt hefði ég ekki undir nein-
um kringumstæðum viljaö missa
enni..
Guölaugur Þorvaldsson kemur
víða við í skemmtilegu viðtali.
:
T' •
„Eg er eins konar borgareinbúi,“
segir Brian Pilkington, nafn Vik-
unnar. List Brians þekkja margir
en færri þekkja hinn hógværa
mann sem er að baki listaverk-
anna.
Engel Lund fæddist í Reykjavík
aldamótaárið. Hún söng um víða
veröld en lauk söngferlinum er
henni bauðst söngkennarastaða á
íslandi. Grein um þessa merki-
legu konu, sem er betur þekkt
sem Gagga Lund, er í Vikunni.
Demantar- eilíf fegurð. Demantar
hafa löngum verið hjúpaðir mikilli
dulúð í vitund okkar og ekki að
ófyrirsynju. Hvers vegna heillar
þessi harði steinn? Fróöleg grein
umdemantaíVikunni.
Vikan áferð um þrjár heillandi og rómantískar
þýskar borgir, Trier, Heidelberg ogFreiburg.