Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1987. 49 Liberace hafði ekki bara gaman af því að skreyta sjálfan sig. Heimili hans var einnig mjög iburðarmikið. ætlaði aldrei að linna hjá Liberace. Þegar hann var búinn að koma sjón- varpsþætti sínum vel á laggirnar á sjötta áratugnum fór hann að leika í kvikmyndum en hans verður seint minnst sem góðs kvikmyndaleikara. Að því kom að hætt var að senda út sjónvarpsþætti hans en Liberace fann nýja áhorfendur í Evrópu og Las Vegas. Á sjöunda áratugnum Andvígur hommum Fljótlega eftir að Liberace varð frægur komst orðrómur á kreik um að ekki væri allt með felldu með kynferðislegar hneigðir hans. Árið 1954 átti hann nokkur stefnumót við unga leikkonu en það virtist vera meira til að slá ryki í augu fólks en að nokkur alvara byggi þar að baki. Eftir að því ævintýri lauk sagðist En Liberace reyndi hins vegar alla tíð að breiða yfir samkynhneigð sína. 1982 var samið í máli sem fyrrver- andi einkabílstjóri hans og félagi, Scott Thorson, hafði höfðað gegn honum. Scott krafðist lífeyris frá Liberace og sagðist hafa verið ást- maður hans. Málið var þaggað niður og var aldrei dæmt í því en Liberace þurfti að punga út með nítíu og fimm Liberace borinn til grafar í fjölskyldugrafreitnum í Hollywood. Yfirvöld hafa nú staðfest að banamein hans hafi verið eyðni. síns hafði hanii iðulega konur klæddar sem nunnur á sviðinu hjá sér sem virtist eiga að undirstrika trúarhitann þegar hann lék Ave Maria. Kvenlegur rómantíkus Liberace gerði iðulega mikið grín að sjálfum sér. Stráksleg stríðni skein alls staðar í gegn og í upphafi vakti hann móðurlegar kenndir hjá konum sem voru tvisvar sinnum eldri en hann. Undir lokin vakti hann sams konar kenndir hjá konum sem voru helmingi yngri en hann. Fram- koma hans alltaf fremur ókarlmann- leg. Löngu áður en tímabil frjálsra ásta og frjálslyndis gekk í garð kom hann fram sem kvenlegur rómantík- us sem var eins hreykinn af húsinu sínu og stressaður af útliti sínu og nokkur áhorfenda hans. Konumar öfunduðu hann af krulluðu hárinu og af loðfeldum þeim sem hann klæd- dist. Liberace var óskaplega glysgjam. Píanó hans vöktu jafnan geysilega athygli. Hann átti nokkra tugi flygla í öllum regnbogans litum, stærðum og gerðum. Vörumerki Liberace var forláta kertastjaki sem hann hafði á sviðinu hjá sér. Kertastjaki þessi var raunar með rafmagnsljósum og virt- ist Liberace stjórna lýsingunni frá honum með handahreyfingum einum saman. Hýbýli hans vom jafnan ofhlaðin af alls kyns skrauti. Loftið í einu herberginu í húsi því sem hann átti í Las Vegas var til dæmis eftirlíking af þaki Sixtínsku kapellunnar í Róm. Efnilegur píanóleikari Skímamafn Liberace var Wladziu Valentino Liberace. Móðir hans var af pólskum uppruna og faðir hans ítalskur. innflytjandi í útborg Mil- wakee í Wisconsin fylki. Liberace byrjaði mjög ungur að skemmta. í æsku notaði hann sviðs- nafnið Walter Busterkes og spilaði á píanó í ólöglegum krám áður en hann komst á táningaaldurinn. Faðir hans, Salvatore, var tónlistarlegur ofsatrúarmaður sem spilaði á franskt horn í sinfóníuhljómsveit Milwakee borgar. Faðirinn var ákaflega óánægður með þau lög sem sonur hans lék og ekki hrifnari af þeim félagsskap sem Liberace sótti í. En móðir hans vissi sem var að það voru tekjur Liberace en ekki fóðurins sem héldu fjölskyld- unni á floti. Liberace þótti efnilegur píanóleik- ari. Hann kom meðal annars fram sem einleikari með sinfóníuhljóm- sveit Chicagoborgar aðeins fjórtán ára gamall. Hann varð einnig þess heiðurs aðnjótandi að vera undir handleiðslu Paderewski sem var mjög virtur pólskur píanisti. En Liberace varð alltaf hrifnari og hrifnari af dægurlagatónlist og árið 1951 sagði hann „það eru einfaldlega meiri peningar í poppmúsík". Rafmagnskertastjaki og píanósundlaugar Eins og margir aðrir „skrýtnir" skemmtikraftir var eins og öfgunum stóðst hann rokkbylgjuna sem þá tröllreið öllu og meðaltekjur hans á ári síðustu þrjá áratugi hafa verið fimm milljónir dollara, eða um það bil tvö hundruð milljónir íslenskra króna. Liberace tók virkan þátt í allskyns viðskiptum, allt frá antikmunum upp í fasteignabrask. Hann stofnaði með- al annars byggingaverktakafyrir- tæki sem sérhæfði sig í að byggja sundlaugar, lagaðar eins og flygla. Liberace þénaði óskaplega en lífsstíll hans kostaði líka sitt. Hann átti gífurlegt magn af loðfeldum, gimsteinum, gulli og glingri. Hann átti meðal annars forláta smókingföt sem nafn hans var skrifað aftan á með demantshnöppum. Liberace ekki enn hafa fundið konu sem stæðist samanburð við móður hans. Móðir Liberace bjó hjá honum þar til hún dó árið 1980. Árið 1959 vann Liberace meiðyrða- mál sem hann höfðaði gegn breska blaðinu Daily Mirror sem hafði lýst Liberace sem ákaflega vafasömum manni kynferðislega. I vitnastúk- unni lýsti Liberace því yfir að hann væri andvígur hommum vegna þess að hegðun þeirra ógnaði stoðum þjóðfélagsins. Nokkrum árum seinna hafði hann söðlað um og talaði mik- ið um kynlífsfrelsi. Sagði hann sjálfsagt réttindamál að hver og einn fengi að haga sínu lífi eins og honum sýndist, hvort væri heldur í kynlífi eða á öðrum sviðum. þúsund dollara til þessa fyrrverandi félaga síns. Megrunarkúr eða eyðni Fyrst eftir að Liberace veiktist síð- astliðið haust sagði framkvæmda- stjóri hans, Seymour Heller, að skemmtikrafturinn væri í megrunar- kúr, svokölluðum vatnsmelónukúr. Fljótlega kom í ljós að þetta virtist ekki með öllu rétt hjá framkvæmda- stjóranum og skömmu fyrir andlát Liberace birti dagblaðið í Las Vegas grein um að Liberace væri með eyðni. Nokkru eftir dauða hans staðfestu síðan yfirvöld í River Side County að krufning hefði leitt í ljós að Li- berace hefði dáið úr eyðni. Liberace meö Elvis Presley á skemmtun i Las Vegas.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.