Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Page 4
28
MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987.
Iþróttir_________________
„Fyrsti titillinn
á mínum ferii“
- sagði Hannes Lerfsson, fyrirliði Stjömunnar
„Þetta var mikill spennuleikur. Það
sýndi sig svo sannarlega í þessum leik
að leikurinn er ekki búinn fyrr en
hann er flautaðar af. Þetta er minn
fyrsti titill á ferlinum. Það var búist
við miklu af okkur á keppnistímabil-
inu en því miður fór það á annan veg,
þ.e. í deildakeppninni. Undir það síð-
asta small allt saman hjá okkur. Við
eigum þetta mikið að þakka Páli
Björgvinssyni þjálfara. Hann hefur
unnið mikið og gott starf. Þetta var
mjög ánægjulegur endir á keppnis-
tímabilinu," sagði Hannes Leifsson,
fyrirliði Stjömunnar, í samtali við DV
eftir leikinn.
Hörður Jóhannesson,
liðsstjóri Fram
„Leikurinn bauð upp á allt fyrir
áhorfendur. Við spmngum í framleng-
ingunni. Þetta er það lengsta sem
Fram-liðið heíúr náð í mörg ár. Við
verðum að horfa raunsætt á hlutina.
Stjaman er með reynslumeira lið en
við. Það var líka greinilegt að strax í
upphafi leiksins voru Stjömumenn
mrm ákveðnari og gerðu færri mistök.
Annars lít ég björtum augum fram á
veginn. Eg vil nota tækifærið og óska
Stjömunni til hamingju með sigurinn
og drengilegan leik,“ sagði Hörður í
samtali við DV. -JKS
Fram meistari
- sigraói FH, 14-13, í kvennaflokki
Fram-stúlkumar urðu bikarmeist-
arar 1987 þegar þær sigruðu FH í
úrslitaleik með 14 mörkum gegn 13 í
Laugardalshöllinni í gær. Eins og
kunnugt er urðu Fram-stúlkumar
einnig Islandsmeistarar í sínum-flokki.
Fram var mun sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik og náði fljótlega góðu for-
skoti. Kolbrún Jóhannsdóttir, mark-
vörður Fram-liðsins, fór á kostum í
fyrri hálfleik, varði meðal annars 6
vítaskot og lokaði hreinlega markinu.
FH-stúlkunum tókst aðeins tvisvar í
hálfleiknum að koma knettinum fram-
hjá Kolbrúnu. En í hálfleik var staðan
7-2.
I seinni hálfleik fóm FH-stúlkumar
fyrst í gang og leikurinn jafhaðist tölu-
vert. Undir lokin var talsverð spenna
en Framarar reyndust sterkari á enda-
sprettinum og tiyggðu sér titilinn. Það
var Arna Steinsen sem tryggði Fram
sigurinn skömmu fyrir leikslok
Hjá Fram var Kolbrún markvörður
yfirburðamanneskja. Einnig áttu þær
Margrét Blöndal og Oddný Sigsteins-
dóttir góðan leik.
Hjá FH átti Heiða góðan leik. Ann-
ars var liðsheildin jöfn í þessum leik.
Mörk Fram: Guðríður 4/1, Margrét
3, Oddný 3, Jóhanna 2, Ama 1, Ósk 1.
Mörk FH: Rut 3/2, Heiða 3, Inga 2,
Kristín 2, Sigurborg 2, María 1.
-JKS
• Hannes Leifsson, fyrirliði Stjömunnar, sést hér með bikarinn eftirsótta. Hannes vann sinn fyrsta titil í handknattleik
með Stjörnunni í gaer. DV-mynd Gunnar Sverrisson
„Þetta hefur verið að smella
betur saman undir það síðasta
- sagði Páll Björgvinsson, þjátfari Stjörnunnar, eftir að bikarmeistaratitillinn var í höfh
„Þetta var frábær bikarúrslitaleikur.
Leikurinn bauð upp á allt til að gera
svona leiki skemmtilega, framleng-
ingu og mikla spennu. Ég verð að
viðurkenna að ég hefði viljað sjá fleiri
áhorfendur en raun bar vitni en leik-
urinn var að vísu sýndur beint í
sjónvarpinu. Við eigum mjög
skemmtilega liðsheild. Eftir frekar ró-
lega byrjun á íslandsmótinu hefur
liðið verið að smella betur saman und-
ir það síðasta. Ég er mjög ánægður
með að bikarinn hafnaði í okkar her-
búðum,“ sagði Páll Björgvinsson,
þjálfari og leikmaður Stjörnunnar, í
samtali við DV eftir að Stjaman hafði
sigrað Fram með 26-22 i úrslitaleik
bikarkeppni HSÍ í Laugardalshöllinni
í gær.
Leikurinn var æsisþennandi undir
lok venjulegs leiktíma, en þá tókst
Fram að jafha metin. Framlengingu
þurfti til að knýja fram úrslit, og
reyndust þá Stjörnumenn sterkari og
tryggðu sér bikarmeistaratitilinn í
fyrsta skipti i sögu félagsins. En áður
hefur Stjaman keppt tvisvar til úrslita
í þessari keppni en beðið lægri hlut.
Því var þessi sigur þeim mjög kærkom-
inn.
Stjarnan var mun ákveðnari í byijun
leiks. Þeir komust fljótlega í 2-0. Það
var ekki fyrr enn sex mínútur vom
liðnar af leiknum að Fram skoraði
fyrsta markið. Eftir það hélst leikurinn
nokkuð í jafhvægi, en þó var Stjaman
ávallt með forystu.
Undir lok fyrri hálfleiksins átti
Stjarnan mjög góðan sprett. En í hálf-
leik höfðu þeir þriggja marka forystu,
12-9. Það sýndi sig greinilega hvað
reynslan í úrslitaleikjum sem þessum
getur komið liði til góða, eins og það
gerði með Stjömu-liðið. Leikmenn
þess hafa tvisvar áður keppt til úr-
slita. Leikur þeirra var mun yfirveg-
aðri heldur en Fram-liðsins enda hefur
Fram-liðið ekki í mörg ár komist svona
langt í handknattleikskeppni.
Framarar byrjuðu seinni hálfleik vel
og skomðu fyrstu tvö mörkin og stað-
an orðin 11-12. Munurinn á liðunum
var aldrei meiri en eitt mark fram í
miðjan hálfleikinn en þá kom góður
leikkafli Stjömunnar og náðu þeir
þriggja marka forskoti þegar um fimm
mínútur vom til leiksloka og héldu
þá margir að úrslitin væm ráðin, en
það var öðm nær.
Framarar vom ekki búnir að segja
sitt síðasta orð og með miklu harð-
fylgi tókst þeim að jafna metin. Per
Skámp jafhaði leikinn, lfl-19, úr víta-
kasti þegar 16 sekúndur vom eftir af
leiktímanum. Stjaman bmnaði í sókn
og fékk aukakast eftir að leiktíminn
var úti. Or aukakastinu skomðu þeir
ekki og varð því að framlengja leikinn.
Fram sprakk í framlengingunni
Stjaman átti mun meira úthald eftir
en Framarar þegar út í framlengingu
var komið. Eftirleikurinn var þeim því
auðveldur og fjögurra marka sigur
þegar upp var staðið. Stjaman sigraði
sanngjamt og er vel að sigrinum kom-
in.
Sigmar Þröstur, markvörður Stjöm-
unnar, átti stórleik og varði meðal
annars þijú vítaskot. Gylfi Birgisson
var einnig mjög sterkur og skoraði
grimmt. Stjaman barðist annars vel í
leiknum, bæði í vöm og sókn, og því
erfitt að taka einstaka menn út. Liðið
átti allt góðan leik.
Þegar upp er staðið mega Framarar
vel við una. Að ná svona langt í keppn-
inni er viss árangur út af fyrir sig.
Þeir eru búnir að vera í basli í deild-
inhi vetur en héldu þó sæti sínu þar.
Þeir geta því litið björtum augum fram
á veginn því efniviðurinn er nógur.
Júlíus Gunnarsson og Birgir Sigurðs-
son vom þeirra bestu menn i þessum
leik. Júlíus hefur sýnt það og sannað
í leikjum Fram-liðsins að þar er á ferð-
inni mikið efni. Per Skámp náði sér
aldrei á strik. Þáttur Agnars Sigurðs-
sonar í leiknum var sérstakur. Hann
brenndi af þremur vítaskotum og var
mjög bráður í skotunum þegar-mest
reyndi á.
Dómarar leiksins vom Gunnlaugur
Hjálmarsson og Óli Olsen. Þeir hafa
oft dæmt betur en þeir gerðu í þessum
leik.
Mörk Stjörnunnar: Gylfi 9, Siguijón
5, Hannes 5/4, Skúli 3, Páll 2/1, Einar
1, Hafsteinn 1.
Mörk Fram: Birgir 6, Hermann 4,
Júlíus 4, Agnar 3, Skámp 3/2, Ragnar
2.
-JKS
• Lið Stjömunnar úr Garðabæ sem varð bikarmeistari í gær og leikur því í Evrópukeppni bikarhata á næsta keppnis-
tímabili. DV-mynd Gunnar Sverrisson