Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1987, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987.
Stjómmál
Uppspuni að ég hafi talað
við menn í Borgaraflokki
- segir Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins
„Það er hreinn uppspuni. Ég hef
ekki talað við einn einasta mann
þar,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra og formaður
Framsóknarílokksins, um þá fullyrð-
ingu Þjóðviljans að Steingrímur
hefði átt óformlegar viðræður við
Borgaraflokkinn um aðild að ríkis-
stjóm.
Ekki kvaðst Steingrímur vita til
þess að aðrir þingmenn Framsóknar-
flokks hefðu rætt við menn úr
Borgaraflokki. Taldi hann ólíklegt
að sér hefði ekki verið skýrt frá því
ef svo væri.
Steingrímur kvaðst heldur ekki
hafa rætt við kvennalistakonur um
stjómarmyndun. Hann heíúr rætt
við Þorstein Pálsson, formann Sjálf-
stæðisflokksins, síðast í fyrradag
„um stöðuna almennt", og Jón Sig-
urðsson, efsta mann Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík, íyrir um tíu dög-
um.
Steingrímur kvaðst hafa spúrt Jón
Sigurðsson meðal annars hvers
vegna Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins, væri svo
andsnúinn samstarfi með Framsókn-
arflokki en ekkert svar fengið.
Um afstöðu til samstarfs með
Borgaraflokki sagði Steingrímur að
hann útilokaði engan.
Albert Guðmundsson, formaður
þingflokks Borgaraflokksins, sagði
DV í gær að við hann hefði enginn
úr öðrum flokki rætt um stjómar-
myndun. Lýsti Albert þeirri skoðun
sinni að Borgaraflokkurinn ætti að
vera í stjómarandstöðu.
Skiptar skoðanir em í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins til hugsanlegs
stjómarsamstarfs með Borgara-
flokki. Formaður og varaformaður
flokksins, Þorsteinn Pálsson og
Friðrik Sophusson, em taldir vera
mjög andsnúnir slíku samstarfi.
Friðrik sagði til dæmis í grein í
Morgunblaðinu tveimur dögum fyrir
kosningar að samstarf sjálfstæðis-
manna gæti aldrei orðið í tveimur
flokkum. Ymsir landsbyggðarþing-
WWmm
Friórik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Kjarfan Jóhannsson, þingmaður Alþýðuflokksins, ganga saman meðfram vegg þinghússgarðsins
í gær. DV-myndir: GVA.
menn Sjálfstæðisflokks em hins veg-
ar ekki taldir fráhverfir því að reyna
að fá Borgaraflokk í samstarf með
Sjálfstæðisflokki og Framsókn-
arflokki.
I þingflokki Framsóknarflokks em
margir þeirrar skoðunar að sterk-
asta ríkisstjómin yrði stjóm Fram-
sóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks. Andstaða forystu Al-
þýðuflokksins við samstarf með
Framsóknarflokki virðist slík að
þetta stjómarmynstur verður vart
rætt fyrr en stjórnarmyndunarvið-
ræður fara að dragast á langinn.
-KMU
Þær Kristín Karlsdóttir og Guðrun Agnarsdóttir ganga á fund forseta ís-
lands af hálfu Kvennalista. Litlu munaði að Kristín, sem var i efsta sæti
Kvennalistans á Austurlandi, kæmist á þing.
Olafur Þ. Þorðarson, þingmaður Framsoknarflokksins, og Sigriður Duna Kristmundsdóttir, fráfarandi þingkona
Kvennalistans, kváðust ekki ætla að mynda ríkisstjórn á bilastæði Alþingis.