Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1987, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987.
19
DV
Kona
tippaði best
Óvænt tap Manchester United á
heimavelli fyrir Wimbledon setti
margan tipp-spámanninn út af lag-
inu' um síðustu helgi. Það var
einungis einn tippari, sem reyndar
var kona, sem náði öllum tólf leikj-
unum réttum. Hún notaði opinn
kerfisseðil, 81 raðar, og var með tólf
rétta á einni röð og hlaut fyrir það
370.295 krónur en einnig var hún
með 11 rétta á átta röðum og hlaut
10.579 krónur fyrir hveija röð með
ellefu réttum. Alls komu fram 15
raðir með ellefu þannig að þessi tipp-
glaða kona náði 86% af öllum
vinningum. Alls var potturinn
528.996 krónur en 220.415 raðir seld-
ust.
Nú má búast við því að potturinn
verði alveg sæmilega stór um næstu
helgi. Kemur tvennt til. Tipparar
eiga yfirleitt góðan endasprett og
geysast í hlað á fullum spretti og
eins er það að þau 2%, sem hafa
verið tekin undanfarið af vinning-
um, eða síðan síðasti sprengjupottur
var haldinn, bætast í pottinn.
Líkur eru á því að sú stökkbreyt-
ing, sem ég hef sagt frá í sambandi
við sölu- og dreifingarkerfi á get-
raunaseðlum, muni taka gildi um
næstu áramót. Ekki verður þá ein-
ungis boðið upp á getraunaseðla,
eins og tippurum hefur verið boðið
upp á hingað til, heldur mun verða
hægt að veðja á ýmsa aðra íþrótta-
viðburði. En þessir hlutir eru í
athugun þannig að niðurstaða mun
ekki liggja fyrir fyrr en í haust.
^TIPPAÐ, . p
A TOLF
Umsjón: Eiríkur Jónsson
Getraunaspá
fjölmiðlanna
LEIKVIKA NR.: 38
Arsenal .Norwich 1 1 X X 1 1 1
Charlton .Queens Park R 1 1 1 1 1 1 1
Chelsea .Liverpool 2 2 2 2 2 2 2
Coventry .Southampton 1 1 1 1 1 1 1
Everton .Luton 1 1 1 1 1 1 1
Nottingham F .Newcastle 1 1 X 2 1 1 1
Oxford . Leicester X 1 1 2 1 X 1
Sheffield Wed .Wimbledon 1 1 X 1 1 1 1
Watford .Tottenham X 2 1 2 2 2 1
Derby .Plymouth 2 1 1 1 1 1 1
Oldham .piackburn 1 1 1 1 1 1 1
Portsmouth .Sheffield Utd X 1 1 1 1 1 1
Hve margir réttir eftir 37 leikvikur: 183 178 182 174 180 191 171
Enska 1. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk ______________________ U J T Mörk S
40 14 4 1 45 -10 Everton............. 10 4 7 27 -20 80
41 15 3 3 43 -16 Liverpool............ 8 4 8 26 -23 76
40 14 3 4 40 -14 Tottenham............ 7 5 7 .28 -27 71
41 12 5 3 30 -10 Arsenal.............. 8 5 8 27 -23 70
40 14 5 1 27 -10 Luton............... 4 7 9 17 -29 66
41 9 10 2 27 -20 Norwich.............. 7 7 6 24 -30 65
41 11 8 1 34-13 Nottingham F......... 6 3 12 28 -37 62
40 14 2 3 33 -15 Coventry............. 3 8 10 15 -28 61
41 11 5 4 37 -20 Watford.............. 6 4 11 29 -34 60
40 10 5 5 30 -21 Wimbledon............ 7 4 9 23 -28 60
40 12 3 5 35 -17 Manchester Utd....... 1 10 9 14 -27 52
41 9 7 4 39 -22 ShoffieldWed......... 4 6 11 19 -35 52
41 11 5 5 44 -24 Southampton.......... 3 4 13 24 -43 51
40 8 5 7 28 -28 Chelsea.............. 5 7 8 22 -32 51
41 9 7 5 31 -27 Queens Park R........ 4 4 12 16 -35 50
41 9 4 7 31 -28 West Ham............. 4 6 11 19 -39 49
41 10 4 7 33 -29 Newcastle............ 2 7 11 13 -34 47
40 8 7 5 30 -25 Oxford............... 2 5 13 11 -42 42
41 6 7 7 24 -21 Charlton............. 4 4 13 19 -33 41
41 9 7 5 39 -24 Leicester............ 2 1 17 15 -52 41
41 8 6 7 28 -24 Manchester City...... 0 9 11 8-31 39
41 7 7 7 25 -25 Aston Villn.......... 1 5 14 19-51 36
Enska 2. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk__________________________ U J T Mörk S
41 13 6 1 38 -16 Derby...............•„.... 11 3 7 22 -20 81
40 17 2 1 36 -9 Portsmouth.............. 6 7 7 16 -16 78
39 12 6 2 33 -16 Oldham................. 8 3 8 27 -26 69
41 15 4 2 43 -16 Leeds................. 3 7 10 14 -28 65
41 12 5 3 28 -9 Ipswich................ 5 7 9 30 -33 63
41 12 4 5 35 -20 Crystal Palace......... 7 1 12 16 -30 62
41 12 6 3 40 -23 Plymouth............... 4 7 9 20 -30 61
40 10 5 4 35 -18 Stoke.................. 5 5 11 23 -32 55
41 10 8 3 31 -19 Sheffield Utd.......... 4 5 11 17 -29 55
41 10 5 6 36 -27 Bradford............... 5 4 11 24 -33 54
41 8 7 6 26 -23 Barnsley............... 5 6 9 20.-27 52
41 11 4 6 33 -23 Reading................ 3 6 11 18 -35 52
40 10 4 6 29 -22 Blackburn.............. 4 6 10 15 -30 52
40 10 4 6 26 -15. Millwall.............. 4 4 12 12 -26 50
40 8 9 3 27 -19 Birmingham............. 3 8 9 20 -37 50
40 9 6 5 22 -22 Hull................... 3 7 10 14-31 49
41 8 6 6 35 -30 Huddersficld........... 4 6 11 16-31 48
40 7 5 7 26 -20 W.B.A.................. 5 6 10 22 -27 47
40 8 6 6 23 -20 Sunderland............. 4 5 11 23 -35 47
40 10 3 7 22 -14 Shrewsbury............. 3 3 14 15 -39 45
40 5 7 8 16 -19 Grimsby................ 5 6 9 20 -33 43
41 7 6 7 22 -19 Brighton............... 2 6 13 15 -34 39
Kevin Ratcliffe, fyrirliði Everton og
velska landsliðsins, hefur spilað vel
i vetur og mun að öllum likindum
taka á móti enska deildarmeistara-
bikarnum innan hálfs mánaðar.
Clive Allen hefur nú skorað 47 mörk
það sem af er keppnistimabilsins
og til að kóróna glæsilegt keppnis-
tímabil var hann valinn leikmaður
ársins i Englandi bæði af samtökum
knattspyrnumanna og breskum
blaðamönnum.
nslf.l
ra-j
Tippað á tólf
Síðasta tippvikan
1 Axsenal - Norwich 1
Þessi lið eru bæði við toppinn í 1. deildinni ensku. Norwich
hefur tapað fæstum leikjum liða í vetur í 1. deildinni en
gert flest jafatefli. Arsenal hefur tapað fáum leikjum á heima-
velli og ekki fengið á sig nema 10 mörk í tuttugu heima-
leikjum. Þetta verður erfiður leikur fyrir ungu barónana frá
Highbury en þeir munu samt sem áður vinna. Heimasigur.
2 Charlton - QPR 1
Charlton á enn möguleika á að halda sér í 1. deildinni en
liðið kom úr 2. deild í fyrravor. Liöið er þriðja neðsta liðiö
sem stendur og verður að vinna. OPR hefur gengið herfi-
lega undanfarið og ekki unnið í niu síðustu leikjum sínum.
Charlton vinnur þó leiki öðru hverju og vinnur nú. Heima-
sigur.
3 Chelsea - Liverpool 2
Þrátt fyrir tap fyrir Coventry um síðustu helgi á Liverpool
ennþá tækifæri til að verða Englandsmeistari enda þótt
Everton sé komið meó þónokkra forystu. Chelsea hefur
ekki verið sannfærandi undanfarið. Liðið hefur aUs tapað
sjö leikjum á heimavelli og tapar nú.
4 Coventry - Southampton 1
Coventry hefur sjaldan gengið betur en í vetur. Liðið er
komið í úrslit FA-bikarkeppninnar og vinnur hvem leikinn
á fætur öðrum. Ekki hafa tapast nema þrír leikir á heima-
velli en fjórtán hafa unnist. Southampton hefur gert fjögur
jafntefli í röð en hefur ekki unnið nema þrjá leiki á útivelli
í vetur. Heimasigur.
5 Everton - Luton 1
Með sigri í þessum leik tryggir Everton sér Englandsmeist-
aratitilinn. Luton hefur verið slakt á útivöllum í vetur,
einungis náð þar nitján stigum af sextíu mögulegum. Ever-
ton hefur einungis tapað einum leik á heimavelli í vetur
og vinnur nú.
6 Nottingham Forest - Newcastle 1
Nottingham Forestliðið er sprækt á heimavelli. Newcastle
er slakt á útiveUi og hefur einungis unnið tvo leiki að heim-
an. Hvorugt þessara liða er í neinni hættu með að vinna
né falla þannig að leikmenn verða afslappaðir. Hinir ungu
og leiknu strákar í Skírisskógarliðinu munu nota fætuma
vel og vinna. Heimasigur.
2 Oxford - Leicester X
Þessi leikur er geysilega mikilvægur fyrir bæði liðin. Lei-
cester er fjórða neðsta liðið en Oxford það fimmta neðsta.
Bæði liðin þurfa því stig úr þessum leik til að komast hjá
falli. Oxford hefur verið að reyta stig af gestum á heima-
velli sínum en Leicester er frekar slakt á útivelli. Liklegt
er þó að svo haxt veröi barist að leikmenn nái ekki að
spila knettinum milli sín og leikurinn endi sem jafntefli.
8 Sheffield Wednesday - Wimbledon 1
Drengimir í hnífaborginni Shefiield gengu berserksgang
um síðustu helgi gegn sárasaklausu liði QPR og skomðu
sjö mörk hjá þeim. Þar sem áhangendur miðvikudagsliðs-
ins hafa ekki átt miklu gengi að fagna í vetur þá var þessi
hamagangur vel þeginn og nú vilja aðdáendumir meira
slíkt um næstu helgi. Það verður erfitt þvi leikmenn Wimble-
don em harðskeyttir. Þessi leikur verður sennilega ill-vígur
en mestar likur em á að knötturinn dvelji lengstum í háloft-
unum því háloftaspymur em algengar hjá leikmönnum
beggja liða. Heimasigur.
9 Watford - Tottenham X
Þessi Lundúnalið hafa marga hildina háó í vetur í deilda-
og bikarkeppni. Tottenham hefur yfirleitt gengið betur i
þessum viðureignum en þar sem Watford er á heimavelli
og hefur gengið ágætlega undanfarið þá er spáin jafntefli.
10 Derby - Plymouth 2
Derby hefur tryggt sér sæti í 1. deild að ári liðnu en Ply-
mouth á ennþá tækifæri til að ná sæti í úrslitakeppni um
laust sæti í 1. deild. Það verður þvi ekkert gefið eftir. Ply-
mouth, sem kom úr 3. deild i fyrravor, eins og Derby,
hefur gengið ágætlega á heimavelli en útiveUimir hafa
verið Akkilesarhæll liðsins. Nú sigrar Plymouth óvænt.
11 Oldham - Blackbum 1
Oldham hefur verið í einu af þremur efstu sætunum mestall-
an veturinn. Liðið er því næstum öruggt um að keppa í
úrslitum um laust sæti í 1. deild. Hin liðin, sem á effir koma,
Ipswich, Leeds og Plymouth, vantar það mörg stig upp á
til að ná Oldham. Blackbum hefur verið ákaílega misjafnt
í vetur og var reyndar komiö í neðsta sæti 2. deildar í
haust. Nú sigrar Oldham á gervigrasinu heima.
12 Portsmouth - Sheffield United X
Portsmouth er komið í 1. deild ef liðið nær einu stigi úr
þremur leikjum sem það á eftir. Reynt verður til þrautar
að ná þessu stigi. Sheffieldliðið hefur staðið sig vel á heima-
velli í vetur en síður á útivelli. Við tækifæri sem þetta ná
leikmenn samt að bæta við sig og ná jaJhtefli.
I